Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.09.2003, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 05.09.2003, Qupperneq 8
8 5. september 2003 FÖSTUDAGUR Skynsöm skepna Hér sést bakhliðin á rjúpnablóð- baðinu mikla í áratugi fyrir hver jól. Rjúpan er sjálf búin að gefa margfaldan fyrirvara um útrým- ingarhættu. Rósa B. Blöndal í Morgunblaðinu 4. september. Og einn var... Við vorum að koma úr Miðfjarð- ará og hollið veiddi 37 laxa, það var víða lax á svæðinu og við vorum alls staðar í fiski. Jóhann Þorbjörnsson í DV 4. september. Góður þessi Jæja, loksins var hann sýndur í vikunni, þátturinn af West wing þar sem varaforsetinn neyðist til að segja af sér vegna fram- hjáhalds og lausmælgi. Þáttur- inn vakti hjá mér þá umhugsun; Hvað ef þetta hefði gerst á Ís- landi? Jón Einarsson á Maddaman.is 3. september. Orðrétt Dómsmálaráðherra heimsækir gamlan vinnustað: Sprengjudeild æfði fyrir ráðherra LANDHELGISGÆSLAN Björn Bjarnason dómsmálaráðherra heimsótti Land- helgisgæsluna ásamt fylgdarliði í vikunni. Heilsaði Björn upp á starfsfólk og kynnti sér starfsemina en Björn starfaði um tíma hjá Land- helgisgæslunni. Hófst heimsóknin um borð í varðskipinu Tý. Var skipið skoðað og snæddur hádegisverður um borð. Eftir það var haldið í höfuð- stöðvar Landhelgisgæslunnar en þar fór fram kynning á starfsem- inni. Sprengjudeild hélt æfingu fyr- ir ráðherrann en síðan var haldið út á Reykjavíkurflugvöll þar sem að- staða flugdeildar var skoðuð. Heim- sókninni lauk með stuttu flugi á stærri þyrlu deildarinnar, TF-LÍF. „Það er ávallt ánægjulegt að fara þangað í heimsókn,“ sagði Björn Bjarnason. „Það hefur margt breyst síðan ég starfaði þarna fyrrum. Verkefni á könnu Gæslunnar eru önnur og viðameiri og allt önnur viðhorf ríkja gagnvart ýmsum mál- efnum.“ Björn sagðist ekki hafa gert neinar áætlanir um breytingar inn- an Landhelgisgæslunnar en stofn- unin hefur glímt við fjárskort í langan tíma. „Það þarf að skoða rekstur Gæslunnar eins og annarra stofnana undir minni stjórn en ég svara engu um þetta fyrr en ég hef kynnt mér málið betur.“ ■ HVALVEIÐAR Flaggskip náttúruvernd- arsamtakanna Greenpeace, Rain- bow Warrior, lagðist að bryggju við Faxagarð í Reykjavík upp úr há- degi, eftir tæplega þriggja vikna siglingu frá Miðjarðarhafinu. Hafði skipið stutta viðkomu í Skotlandi á leiðinni til að taka vistir. Skipið verður í Reykjavíkurhöfn yfir helg- ina og mun fólki gefast kostur á að koma um borð til skrafs og skoðun- ar á meðan það liggur bundið þar. Skipverjar sem Fréttablaðið náði tali af sögðu ferðina hingað hafa gengið vel en vildu að öðru leyti ekki tjá sig, enda væru þeir ein- göngu starfsmenn um borð, en tengdust ekki herferð samtakanna gegn hvalveiðum. Aðspurðir sögð- ust þeir ekki hafa orðið fyrir neinu áreiti eða mótmælum síðan lagst var að. Tveir Íslendingar sem fylgd- ust með skipinu leggjast að lágu þó ekki á skoðun sinni. Vildu þeir meina að Grænfriðungar hefðu hag- að sér illa síðast þegar þeir komu hingað og réttast væri að þeir færu strax af landi brott. Skipið sem statt er hér nú er ekki hið upprunalega Rainbow Warrior. Það skip komst í heims- fréttirnar árið 1985 þegar fransk- ur leyniþjónustumaður sökkti því þar sem það lá í höfn á Nýja-Sjá- landi. Það skip sem hingað er komið er arftaki þess og var tekið til notkunar árið 1989. Það var áður fyrr fiskiskip en samtökin létu breyta því mikið, meðal ann- ars setja upp þrjú möstur, og reynt er eftir megni að nota vind- orkuna í stað vélarafls á ferðum skipsins. Áhöfn skipsins telur 16 manns. Rainbow Warrior hefur tekið þátt í flestum herferðum Grænfrið- unga frá því að það var tekið í notk- un. Starfsemi samtakanna hefur þó breyst í tímans rás og nú eru Græn- friðungar ekki eins herskáir og þeir voru fyrrum. Blaðamannafundur hefur verið boðaður um borð í skip- inu í dag þar sem stefna Green- peace gagnvart hvalveiðum Íslend- inga verður kynnt. albert@frettablaðið.is Tryggingamiðstöðin: Hluthafa- fundur 11. september TRYGGINGAFÉLÖG Stjórn Trygginga- miðstöðvarinnar hf. hefur að beiðni Kaldbaks hf. ákveðið að boða til hluthafafundar þann 11. september næstkomandi. Fyrir fundinum ligg- ur stjórnarkjör, en frá síðasta aðal- fundi hefur Kaldbakur keypt yfir 20% hlut í félaginu. Dagsetningin vekur athygli, því þennan dag verða tvö ár liðin frá hryðjuverkunum í Bandaríkjunum. Sá atburður hafði mikil áhrif á heimsbyggðina, ekki síst á trygg- ingafélög þar sem iðgjöld af endur- tryggingum hækkuðu í kjölfarið. ■ HRYÐJUVERK Rannsóknarmenn kanna verksummerki við lestina skammt frá Kislovodsk í Kákasus- héraði. Fimm manns létust og 30 særðust. Kákasushérað í Rússlandi: Fimm létust í sprengjutil- ræði MOSKVA, AP Að minnsta kosti fimm létust og 30 slösuðust þegar sprengja sprakk í farþegalest í Rússlandi í fyrradag. Fullvíst er talið að um hryðjuverk hafi verið að ræða. Tvær sprengjur eru sagðar hafa sprungið undir í ein- um lestarvagni. Lestin var á leið frá Kislovdosk til Mineralnye Vody í Kákasushéraði. Einn mað- ur var handtekinn á slysstað, grunaður um tilræðið. Hinn grun- aði var meðal farþega í lestinni og slasaðist alvarlega. Sprengjutil- ræði hafa verið tíð í Rússlandi að undanförnu og kenna stjórnvöld uppreisnarmönnum frá Tsje- tsjeníu um þau. ■ GEFA UMSÖGN UM LÖGGJÖF Nokkur fjöldi fyrirtækja hefur með milligöngu Samtaka atvinnu- lífsins skráð sig til þátttöku í raf- rænu umsagnarkerfi um mótun nýrrar Evrópulöggjafar. Um er að ræða nýjan þátt í undirbúningi löggjafar Evrópusambandsins.                ! "!         #$ %  && &    $  &                    ! "  # (  ) & *  ! +     %  ", "!   %   & ) & -  &$ Bandaríkjamenn afsala sér völdum í Írak: Pólverjar stjórna nú miðhluta Íraks BAGDAD, AP Fjölþjóðlegt herlið undir stjórn Pólverja hefur tekið við stjórn í miðhluta Íraks. Þetta er í samræmi við yfirlýsingar Bandaríkjamanna, sem hafa sagst vilja draga úr ábyrgð sem hvíli á eigin herliði. Pólverjar tóku við stjórn herafla 21 þjóðar við form- lega athöfn í hinni frægu borg Babýlon. Níu þúsund manna her- lið er nú í miðhluta Íraks, á svæð- inu milli höfuðborgarinnar Bagdad og Basra. Inni á yfirráða- svæði Pólverja er hin helga borg Najaf, borgin þar sem yfir 100 manns voru myrtir í sprengjutil- ræði við Iman Ali-moskuna fyrir viku. Bandaríkjamenn völdu Pól- verja til að stjórna svæðinu í við- urkenningarskyni fyrir stuðning þeirra í Íraksstríðinu og einnig vegna reynslu þeirra af friðar- gæslu. Tæpur þriðjungur heraflans í miðhluta Íraks, um 2.300 manns, er Pólverjar. Frá hverju landi um sig, Úkraínu, Spáni og Ítalíu, koma rúmlega 1.000 hermenn og tæplega 900 frá Taílandi. Pólland eru þriðja ríkið sem tekur við ábyrgðarhlutverki í Írak en Bretar fara nú með stjórn á einstökum svæðum. Bandaríkja- stjórn hefur rætt við stjórnvöld í Ankara um að Tyrkir taki að sér stjórn landsvæða í Írak. ■ BJÖRN BJARNASON Var ánægður með heimsókn sína á gamla vinnustaðinn. RAINBOW WARRIOR Í REYKJAVÍKURHÖFN Fólki gefst kostur á að skoða farkostinn um helgina. Rainbow Warrior komið til landsins Rainbow Warrior, flaggskip Greenpeace-samtakanna, lagðist að bryggju í Reykjavíkurhöfn skömmu eftir hádegið. Á hlið skipsins var stór borði þar sem Íslendingar voru minntir á að hugsa um ferðaþjónustuna í landinu. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M VALDAAFSAL Í BABÝLON Bandaríkjamenn afhentu Pólverjum stjórn í miðhluta Íraks við hátíðlega athöfn. Lúðrasveit lék meðal annars en þungvopnaðir verðir voru skammt undan, enda hefur hálfgerð skálmöld ríkt í landinu. ■ Atvinnulíf

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.