Fréttablaðið - 05.09.2003, Síða 22

Fréttablaðið - 05.09.2003, Síða 22
23FÖSTUDAGUR 5. september 2003 Talsvert hefur farið fyrir um-ræðu í fjölmiðlum undanfarna daga um ágreining Vélstjórafé- lags Íslands annars vegar og Sigl- ingastofnunar og samgönguráðu- neytisins hins vegar, vegna setn- ingar reglugerðar um skráningu á afli aðalvéla skipa og ákvörðunar Siglingastofnunar um að breyta afstöðu sinni til undanþáguveit- inga til vélstjóra á tilteknum far- þegaskipum. Vélstjórafélagið krafðist þess að forstjóri Siglinga- stofnunar segði af sér vegna þess- ara mála en yrði ella vikið úr starfi. Þar sem mörgum þykja viðbrögð Vélstjórafélagsins full harkaleg verður hér reynt að skýra afstöðu félagsins. Á heimasíðum Siglingastofn- unar og samgönguráðuneytisins er fjallað um setningu nýrrar reglugerðar um skráningu á afli aðalvéla skipa og segja báðir aðil- ar að umræddri reglugerð hafi verið breytt vegna þess að um- boðsmaður Alþingis og Héraðs- dómur Suðurlands teldu að eldri reglugerðina skorti lagastoð. Álit umboðsmanns Alþingis og dómur Héraðsdóms Suð- urlands Í áliti umboðsmanns Alþingis kemur fram að reglugerðin hafi verið sett samkvæmt lögum nr. 52/1970, um eftirlit með skipum. Þau lög voru síðar leyst af hólmi með lögum nr. 51/1987, sem aftur voru felld úr gildi með gildandi lögum um eftirlit með skipum, nr. 35/1993. Um gildi reglugerðarinn- ar kemur ekkert fram í síðast- nefndu lögunum. Umboðsmaður tók einnig fram í áliti sínu að sam- kvæmt almennum skýringarregl- um yrði að telja reglugerðina í gildi að því marki sem hún væri samrýmanleg ákvæðum gildandi laga um eftirlit með skipum og ályktaði samkvæmt því, að breyt- ing Siglingastofnunar á skráningu vélarafls, þar sem olíugjöf væri takmörkuð með því að sjóða hólka á tannstöng á olíudælum vélar, hefði ekki verið í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 143/1984. Í umræddum dómi Héraðsdóms Suðurlands, sem kveðinn var upp þann 18. apríl 2001, segir m.a. að þar sem reglur nr. 143/1984 sæki ekki heimild til 13. gr. laga nr. 113/1984 eða laga um skráningu skipa verði ekki hægt að beita þeim til ákvörðunar um það hvern- ig ákveða skuli afl skipsvéla. Á ofangreindu er ljóst að gleymst hefur að nefna reglugerð- ina þegar lögum um eftirlit með skipum var síðast breytt. Þessu hefði mátt kippa í liðinn án þess að breyta innihaldi reglugerðarinnar. Eldri reglugerðir Meginmálið er að í 2. grein eldri reglugerðarinnar, um skrán- ingu á afli aðalvéla nr. 143/1984, segir að breyting á afli vélar með takmörkun olíugjafar hafi ekki áhrif á skráningu vélarafls. Í 4. grein reglugerðarinnar segir líka að skráðu vélarafli verði ekki breytt, nema gerðar verði breyt- ingar á þeim búnaði sem á vélinni er og áhrif hefur á afl vélarinnar. Þetta þýðir, að mati Vélstjóra- félagsins, að takmörkun á olíuinn- gjöf, sama hvernig hún er fram- kvæmd, dugi ekki til að fá skráðu afli aðalvélar breytt. Það er athyglisvert að í grein- argerð með áliti umboðsmanns Alþingis kemur fram að allt frá því eldri reglugerðin var sett leyfði Siglingastofnun að tak- marka olíugjöf með því að sjóða í, slípa burt tennur eða setja hólka á tannstöng á olíudælum aðalvéla í þeim tilgangi að skrá niður afl að- alvélar. Stofnunin hefur því brotið umrædda reglugerð allt frá því hún var sett. Ný reglugerð Á heimasíðu Siglingastofnunar segir að í ágúst 2000 hafi Sam- gönguráðuneytið óskað eftir til- lögum að nýrri reglugerð um skráningu á afli aðalvéla og að í september 2000 hafi tillögur stofnunarinnar verið til umfjöll- unar í siglingaráði. Samkvæmt þessu hefur samgönguráðuneytið óskað eftir nýrri reglugerð, og fengið drög að henni, áður en Hér- aðsdómur Suðurlands felldi dóm sinn þann 18. apríl 2001. Í tillögum Siglingastofnunar var gert ráð fyrir að engar tak- markanir væru á því hvernig nið- urfærslu á afli væri háttað. Að mati Vélstjórafélagsins kemur þarna fram að raunverulegur til- gangur með breytingum á reglu- gerðinni hafi verið að gera löglega þá lögleysu sem Siglingastofnun hafði stundað um árabil. Tillögum Siglingastofnunar var hafnað af Vélstjórafélaginu, sem vildi að áfram yrði miðað við að skráningu á afli aðalvélar yrði ekki breytt nema gerðar væru varanlegri breytingar á búnaði vélar en þær sem þarf til að minnka olíuinngjöf. Áhrif reglugerðarbreytinga Mönnun í vélarúmi, réttinda- kröfur til vélstjóra og auka- greiðslur eru miðaðar við skráð afl aðalvélar viðkomandi skips. Vélstjórafélag Íslands væri ánægðast ef algerlega væri óheimilt að breyta skráðu afli véla líkt og í Danmörku og Færeyjum. VSFÍ ákvað að koma til móts við LÍÚ um ákvæði reglugerðarinnar með tillögum um að breyting á skráðu vélarafli væri einungis möguleg í framhaldi af raunveru- legri vélrænni breytingu á við- komandi vél sem réttlætti breyt- inguna. VSFÍ telur að með gildis- töku nýju reglugerðarinnar geti útgerðarmenn skráð niður afl að- alvéla skipa án nokkurra raun- verulegra breytinga á vélinni sjálfri. Þannig geta þeir fækkað vélstjórum, minnkað réttinda- kröfur til þeirra og losnað við aukagreiðslur. Vandséð er að verkefni af þessu tagi, þ.e. bein íhlutun í kjör vélstjóra, geti talist til eðlilegrar starfsemi Siglinga- stofnunar Íslands. Það er einnig deginum ljósara að vélstjórar þeirra skipa sem verða fyrir fækkun af þessum sökum verða undir meira álagi og vinna lengri vinnutíma, á lægri launum, án þess að vinnuumhverfi þeirra eða þær kröfur sem gerðar eru til þeirra hafi breyst. Ekki getur það aukið öryggi sjófarenda – eða hvað? ■ Verðlaunaðu þig með nýjum Opel Vectra Opel Vectra er bíllinn sem sameinar fullkomna tækni, nútímalega útlitshönnun, rými og óvenju lipurð í akstri. Þýsk vandvirkni og nákvæmni tryggja gæði og öryggi sem uppfylla ströngustu kröfur. Undir stýri lagar bíllinn sig að þínu aksturslagi, ekki öfugt. Þetta finnur þú þegar þú prófar Opel Vectra. Loftkæling og framsæti sem hver og einn stillir nákvæmlega að sínum þörfum, að ekki sé talað um hversu vel fer um fólkið í aftursætinu veita að auki hámarks vellíðan í Opel Vectra. Verð frá kr. 2.290.000 Opel Vectra Einkaleiga 38.677 kr.á mánuði* *Miðað við 36 mánaða samning Hlaut gullna stýrið í Þýskalandi 2002 Sævarhöfða 2a · sími 525 9000 · bilheimar@bilheimar.is · www.bilheimar.is Komdu, skoðaðu og prófaðu Opel Vectra á þýskum dögum, sölumenn okkar taka vel á móti þér! ÞÝ SKI R DAGA R 1. - 6. S E P T E M BE R F í t o n F I 0 0 7 7 6 3 Umræðan ■ Halldór Arnar Guðmundsson og Krist- ín A. Hjálmarsdóttir, starfsmenn Vél- stjórafélags Íslands, skrifa um deilu Vél- stjórafélagsins við Siglingastofnun og samgönguráðuneytið. FRÁ REYKJAVÍKURHÖFN Talsvert hefur farið fyrir umræðu í fjölmiðl- um undanfarna daga um ágreining Vél- stjórafélags Íslands annars vegar og Sigl- ingastofnunar og samgönguráðuneytisins hins vegar, vegna setningar reglugerðar um skráningu á afli aðalvéla skipa og ákvörðunar Siglingastofnunar um að brey- ta afstöðu sinni til undanþáguveitinga til vélstjóra á tilteknum farþegaskipum. Deila Vélstjórafélagsins

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.