Fréttablaðið - 05.09.2003, Side 24

Fréttablaðið - 05.09.2003, Side 24
Fyrir tveimur árum seldi sveit-arstjórn Skagafjarðar Raf- veitu Sauðárkróks. Talsverðar deilur voru í sveitarfélaginu um söluna og vildi meirihlutinn sem samanstóð af full- trúum Framsókn- arflokks og Skaga- fjarðarlista selja, en aðrir voru mjög á móti sölunni. Frá bæjardyrum þeirra sem reka fyrirtæki á Sauðárkróki var salan algjört glapræði og nánast aðför að rekstri fyrirtækja í bæn- um. Dæmi er um að rafmagns- reikningur fyrirtækja hafi hækk- að um 60% og munar um minna í rekstri fyrirtækja. Þessi hækkun kemur einnig á óvart vegna þess að öll rök hníga að því að hag- kvæmara ætti að vera að reka stóra landsveitu RARIK en örlitla bæjarveitu á Sauðárkróki. Samkeppnisstöðu fyrirtækja mismunað Vegna þessara gríðarlegu hækkana fór undirritaður að skoða verð á raforku til fyrir- tækja alls staðar á landinu. Það var hægur vandi því að greinar- góðar upplýsingar eru um afl- taxta allra rafveitna í landinu á heimasíðu Samorku. Þar eru búin til dæmi um þrjú mismun- andi orkufrek fyrirtæki og hvað þau myndu greiða eftir því hvaða rafveita seldi þeim raf- magnið. Dæmin sýna berlega að það er ótrúlega mikill munur á því verði sem fyrirtæki greiða ann- ars vegar á Snæfellsnesi sem er svæði sem RARIK þjónar og hins vegar í Reykjavík sem Orkuveita Reykjavíkur þjónar. Dæmi er tekið af fyrirtæki sem þarf að greiða 1.632.790 kr. á ári fyrir rafmagn, á starfssvæði RARIK, t.d. Blönduósi, en ef sama fyrirtæki væri staðsett í Reykjavík, greiddi það einungis 1.252.648. Munurinn er um 30%. Vill Framsóknarflokkurinn okra á landsbyggðinni? Hvers vegna er þessi augljósi mismunur á samkeppnisstöðu fyrir- tækja látinn viðgangast? Nú er það sami ráðherra sem heldur um alla þræði málsins. Valgerður Sverris- dóttir er yfirmaður samkeppnis- mála en augljóst er að fyrirtæki sem keppa á sama markaði búa ekki við sömu samkeppnisaðstöðu þegar þau þurfa að greiða 30% hærra verð fyrir orkuna. Valgerður er ráðherra byggðamála og ætti að vera ljóst að þessi grófa mismunun er ekki vel til þess fallin til þess að hvetja til fyr- irtækjareksturs á landsbyggðinni og Valgerður er einnig yfirmaður orkumála í landinu. Ef til vill er það einfaldlega stefna Framsóknarflokksins að okra á fyrirtækjum á landsbyggð- inni. Frjálslyndi flokkurinn mun beita sér fyrir því að farið verði ofan í saumana á verðlagningu á raforku og tryggja að landsmenn allir sitji við sama borð. ■ 25FÖSTUDAGUR 5. september 2003 Umræðan SIGURJÓN ÞÓRÐARSON ■ alþingismaður Frjálslynda flokksins skrifar um rafmagnsverð sveitarfélaga.■ Valgerður Sverrisdóttir er yfirmaður sam- keppnismála en augljóst er að fyrirtæki sem keppa á sama markaði búa ekki við sömu samkeppnisað- stöðu þegar þau þurfa að greiða 30% hærra verð fyrir orkuna. ■ Bréf til blaðsins Öfundsýkin eltir mig, kvað Jónas Sveinn Kjartansson skrifar: Í nýlegum Bakþönkum Sigur-jóns M. Egilssonar í Fréttablað- inu hafði hann verið á rölti og hitt KR-ing sem gat ekki annað. Á þessu rölti sínu kom hann á Lækj- artorg og sá drukkna konu pissa á tröppurnar á húsi Héraðsdóms Reykjavíkur. Tókst ekki betur til en svo að hún bleytti buxurnar í leiðinni. Síðan tókst henni ekki að hysja upp um sig blautar og þung- ar buxurnar, heldur rambaði burt nakin frá nafla og niður á hné. Sigurjón skrifaði: þetta var óláns kona, sem gat ekki annað. Fyrir 15 til 20 árum var ég á leiðinni í Útvegsbankann. Á tröppunum á þessu sama húsi brosti róni í sólskininu og var að bjástra við að opna vodkapela. Tókst nú ekki betur til en hann missti pelann, sem mölbrotnaði og brást róninn grátandi við. Þrír götustrákar hlógu. Ég bað hann að bíða og skrapp inn og skipti ávís- un fyrir nýjum pela. Fallegra sól- skins- og þakklætisbros hef ég aldrei séð á nokkrum manni. ÉG held að Sigurjóni hefði verið meira sæmandi að hjálpa aumingja konunni að hysja upp um sig. Sannur KR-ingur hefði sennilega gert það heldur en að hlæja eins og götustrákur og líkja síðan tvöföldum Íslands- meisturum við þessa ólánsömu konu. ■ Hvað kostar rafmagnið?

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.