Fréttablaðið - 05.09.2003, Blaðsíða 31
5. september 2003 FÖSTUDAGUR32
Skrýtnafréttin
Tollvörðunum á Schiphol-flugvell-inum nálægt Amsterdam í
Hollandi brá heldur í brún þegar
þeir opnuðu ferðatösku manns sem
hafði komið inn í landið frá Nígeríu.
Maðurinn hafði skilið töskuna eftir í
geymslu á flugvellinum og var
ákveðið að opna töskuna eftir að
starfsfólk kvartaði yfir vondri lykt
sem kom frá töskunni.
Þegar tollverðirnir opnuðu tösk-
una sáu þeir að eigandinn var búinn
að troða inn í hana um 2.000 bavíana-
trýnum. Þau voru byrjuð að rotna,
sem útskýrir lyktina ógurlegu.
Ekki er vitað hvað eigandinn
hafði ætlað sér að gera með apatrýn-
in en talið er að annað hvort hafi þau
átt að enda á matardisknum hans
eða vera notuð í einhvers konar
lyfjagerð.
Taskan var fjarlægð og trýnun-
um eytt. Enn hefur ekki náðst í eig-
anda töskunnar. ■
Britney Spears:
Britney í Footloose
Ekki virðast allir Kaliforníubúarjafn ánægður með framboð
Arnolds Schwarzeneggers til ríkis-
stjóra. Þegar hann mætti til þess að
halda ræðu fyrir nema í California
State University við Long Beach
var hann grýttur eggi. Það brotnaði
á öxl hans og innihaldið dreifðist
yfir jakka hans.
Aðstoðarmaður hans reyndi
strax að ná egginu af en Arnold lét
þetta lítið á sig fá, klæddi sig úr
jakkanum og hélt ræðuna á skyrt-
unni.
Í ræðu sinni sagði Arnold að
helsta ástæðan fyrir því að hann
væri að bjóða sig fram væri að
hann langaði til þess að endur-
greiða fylkinu, sem gerði hann að
því sem hann er í dag, greiðann.
Flestir nemendurnir tóku vel í
ræðu Schwarzeneggers en nokkrir
mótmælendur frá nemendasamtök-
um La Raza héldu skiltum á lofti
þar sem stóð ritað; „Hasta La Vista
Latinos“. Þar vitnuðu þeir í það að
Arnold studdi á sínum tíma Uppá-
stungu 187 sem lagði fram að hefta
þjónustu fyrir ólöglega innflytj-
endur. ■
Hver er skilgreiningin áhinni fullkomnu konu?
Heyrnarlaus, heimsk og brók-
arsjúk dóttir bareiganda.
Með súrmjólkinni
BAVÍANI
Finnst ykkur trýnið vera litríkt?
Þið ættuð að sjá rassinn á honum.
Undarlegum farmi
fargað á Schiphol
ARNOLD SCHWARZENEGGER
Missti ekki brosið af vörum sér þrátt fyrir
að hafa verið grýttur eggi við komu sína til
California State University.
Framboð Schwarzeneggers:
Arnold grýttur eggi
Kvikmyndaferill Britney Spearsfór ekki beint í þær hæðir sem
vonir stóðu til þegar hún lék í kvik-
myndinni Crossroads fyrir
nokkrum misserum. Þar lék hún á
móti systur sinni, sem stal senunni.
En nú hefur hún haft spurnir af því
að undirbúningur sé hafinn á end-
urgerð kvikmyndarinnar Foot-
loose, sem sló rækilega í gegn 1984.
Myndin kom Kevin Bacon endan-
lega á kortið og Sarah Jessica Park-
er og John Lithgow voru einnig í
hlutverkum þarna. Britney er sögð
hafa auga á aðalkvenhlutverkinu
en enn hefur ekki verið ákveðið
hver muni leikstýra myndinni. ■
BRITNEY SPEARS
Ætlar að næla sér í
hlutverk í endurgerð-
inni á Footloose.
KEVIN BACON
Sló í gegn í kvikmyndinni Footloose, en nú
er endurgerð komin upp á borð hjá kvik-
myndaframleiðendum í Hollywood.
MARY J. BLIGE OG BRITNEY
Söngkonurnar Mary J. Blige og Britney
Spears stilltu sér upp fyrir myndavélarnar á
blaðamannafundi sem haldin var af NFL
vegna bandaríska fótboltans. Þær ætla
báðar að skemmta gestum á leikjum.