Fréttablaðið - 05.09.2003, Qupperneq 35
36 5. september 2003 FÖSTUDAGUR
OLIVER KAHN
Oliver Kahn, fyrirliði þýska landsliðsins, við
komuna til Reykjavíkur í gær.
Fótbolti
Rúnar Kristinsson:
Klárar þær keppnir sem hann byrjar á
FÓTBOLTI „Þegar maður byrjar á
einhverri keppni hlýtur maður að
reyna að klára hana,“ sagði Rún-
ar Kristinsson. Hann lýsti því
yfir fyrr í sumar að hann hygðist
hætta að leika með landsliðinu
þegar þátttöku þess í Evrópu-
meistarakeppninni lýkur. Það
veltur á leikjunum gegn Þjóð-
verjum hvort það verður í haust
eða jafnvel næsta sumar.
„Þetta er ein sterkasta þjóðin
sem hingað hefur komið,“ sagði
Rúnar. „Frakkar komu hingað
fyrir nokkrum árum þegar þeir
voru nýorðnir heimsmeistarar.
Þjóðverjar voru í öðru sæti í síð-
ustu heimsmeistarakeppni
þannig að þeir eru með geysilega
sterkt lið. Fólk er að tala um að
þeir séu í lægð en það er aldrei
um neitt slíkt að ræða hjá Þjóð-
verjum. Þeir leiddu þennan riðil
þar til við náðum forystu en við
höfum leikið einum leik meira en
þeir.“
Munurinn á Frökkunum árið
1998 og Þjóverjum nú er sá að
Frakkarnir voru sáttir við lífið í
sviðsljósinu eftir sigurinn á HM
en Þjóðverjarnir koma hingað til
að berjast um sigur í riðlinum.
„Við vonum að við veitum
þeim harða keppni og leyfum
þeim ekki að spila eins vel og
þeir kannski geta. Það hefur
alltaf verið hlutverk okkar gegn
stærri þjóðum að verjast og
reyna að halda markinu hreinu.
Svo er bara að sjá hvað við ger-
um þegar við erum með boltann.
Auðvitað viljum við fá færi og
reyna að skora mörk. Það er
alltaf markmiðið í fótbolta að
vinna leiki.“ ■
Hefur trú á íslenskum sigri
Guðjón Þórðarson, fyrrum landsliðsþjálfari í knattspyrnu, hefur trú á íslenskum sigri á morgun.
Segir það fara íslensku landsliðsmönnunum vel að leika mikilvæga leiki. Spáir Íslandi
aukasæti í undankeppni Evrópumótsins.
FÓTBOLTI „Það eru hörkustrákar í
landsliðinu sem vilja láta til sín
taka og ég get alveg séð íslenska
liðið vinna,“ segir Guðjón Þórðar-
son, stjóri enska liðsins Barnsley
og fyrrum landsliðsþjálfari í
knattspyrnu, um leikinn gegn
Þjóðverjum á morgun. „Margir
þessara stráka eru vel kunnugir
því að spila stóra leiki og ég held
að það fari þeim ekkert síður að
spila stóra leiki en þá minni. Það
verður toppstemning á Laugar-
dalsvelli og ég veit að þeir sem
standa að liðinu vilja láta til sín
taka.“
Guðjón hefur ekki séð mikið til
landsliðsins und-
anfarið. Síðasti
leikur sem hann
sá var gegn Fær-
eyingum heima
síðasta vor. „Ég
var ekki hrifinn af
því sem ég sá en
það skiptir ekki
máli þar sem liðið
er í toppsæti rið-
ilsins,“ segir Guð-
jón en bætir við
að það hefði verið skemmtilegra
að hafa náð hagstæðari úrslitum
við Skota.
„Ef við hefðum náð tveimur
stigum gegn Skotum væri sæti
okkar í aukakeppninni tryggt. Það
hefði óneitanlega verið skemmti-
legri að spila við Þjóðverja í þeirri
stöðu og geta leikið upp á jafntefli
– en þetta er ennþá hægt,“ segir
Guðjón. „Ég hef trú á því að Ís-
land geti náð aukasætinu og það
er ennþá tækifæri til þess.“
Guðjón getur ekki fylgst með
landsleiknum þar sem Barnsley
leikur á sama tíma við Chester-
field í ensku 2. deildinni. Þegar
hann var beðinn um að spá fyrir
um úrslitin í leik Íslands og
Þýskalands sagði hann: „Ef liðið
skorar einu marki meira en and-
stæðingurinn vinnur það leikinn.
Ég vona að það gerist.“
kristjan@frettabladid.is
728 MÖRK Í PLÚS Þjóðverjar hafa
leikið 733 landsleiki, sigrað 420
sinnum, gert 144 jafntefli en tap-
að 169. Markatalan er Þjóðverj-
um hagstæð um 728 mörk, 1624
gegn 896.
ÁTTA LANDSLIÐSÞJÁLFARAR Rudi
Völler er áttundi landsliðsþjálfari
Þjóðverja. Otto Nerz þjálfaði
þýska landsliðið frá 1923 og fram
yfir Ólympíuleikana árið 1936.
Sepp Herberger var þjálfari til
1964, Helmut Schön til 1978, Jupp
Derwall til 1984, Franz Becken-
bauer til 1990, Berti Vogts til 1998
og Erich Ribbeck til ársins 2000
þegar Rudi Völler tók við.
FJÓRIR Í ÚRSLITALEIK Fjórir leik-
manna þýska liðsins sem lék árið
1960 léku úrslitaleik heimsmeist-
arakeppninnar gegn Englending-
um árið 1966. Markvörðurinn
Hans Tilkowski, bakvörðurinn
Karl-Heinz Schnellinger, fram-
herjinn Uwe Seeler og vinstri
útherjinn Helmut Haller.
LÉKU VIÐ ÍA OG KR Þýska lands-
liðið lék við ÍA og KR þegar það
lék hér árið 1960. Þjóðverjarnir
unnu ÍA 2-1 og KR 10-0. Kristinn
Gunnlaugsson skoraði mark
Skagamanna.
BENTHAUS Helmut Benthaus var
ekki með í landsleiknum en hann
skoraði fyrsta mark Þjóðverj-
anna gegn KR. Benthaus varð
síðar lærimeistari Ásgeirs Sigur-
vinssonar, landsliðsþjálfara, hjá
Stuttgart og stýrði félaginu til
sigurs í Bundesligunni árið 1984.
Leikir Íslendinga og
Þjóðverja:
Tveir sigrar í
16 leikjum
FÓTBOLTI Íslendingar hafa aðeins
tvisvar náð að sigra þýskt landslið
í sextán viðureignum. ■
LANDSLEIKIR ÍSLENDINGA
OG ÞJÓÐVERJA
Leikir við A-landslið Vestur-Þjóðverja
1960 Ísland - Vestur-Þýskaland 0-5
1979 Ísland - Vestur-Þýskaland 1-3
Atli Eðvaldsson
Leikur við vesturþýska
áhugamannaliðið
1968 Ísland - Vestur-Þýskaland 1-3
Hermann Gunnarsson
Leikir við A-landslið Austur-Þjóðverja
1973 Ísland - Austur-Þýskaland 1-2
Ólafur Júlíusson
1973 Ísland - Austur-Þýskaland 0-2
1974 Austur-Þýskaland - Ísland 1-1
Matthías Hallgrímsson
1975 Ísland - Austur-Þýskaland 2-1
Jóhannes Eðvaldsson, Ásgeir Sigurvinsson
1978 Austur-Þýskaland - Ísland 3-1
Pétur Pétursson
1979 Ísland - Austur-Þýskaland 0-3
1982 Ísland - Austur-Þýskaland 0-1
1986 Austur-Þýskaland - Ísland 2-0
1987 Ísland - Austur-Þýskaland 0-6
1988 Austur-Þýskaland - Ísland 2-0
1989 Ísland - Austur-Þýskaland 0-3
Leikir við austur-þýska ólympíuliðið
1987 Ísland - Austur-Þýskaland 2-0
Guðmundur Torfason, Ólafur Þórðarson
1988 Austur-Þýskaland - Ísland 0-3
GUÐJÓN
ÞÓRÐARSON
Hefur trú á ís-
lenskum sigri.
LANDSLIÐIÐ Á ÆFINGU
Íslenska landsliðið æfði á Laugardalsvelli í gær. Góð stemning var í hópnum og leikmenn virtust tilbúnir í slaginn við þýska stálið.
RÚNAR KRISTINSSON
Rúnar Kristinsson leikur
sinn 102. A-landsleik á
morgun gegn Þjóðverjum.
■ Molar
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
LD
A
LÓ
A