Fréttablaðið - 05.09.2003, Síða 40
FÖSTUDAGUR 5. september 2003 41
■ MYNDLIST
Gamalt fólk nýtur lífsins en ersátt við dauðann,“ segir Helga
Hansdóttir öldrunarlæknir en nú
stendur yfir sýning á verki hennar
og Magnúsar Pálssonar myndlist-
armanns í Listasafni Reykjavíkur:
„Ég gerði rannsókn um viðhorf
aldraðra til dauðans. Í rannsókn-
inni tók ég viðtöl við átta aldraða
einstaklinga og spurði þá út í líf
þeirra og viðhorf til dauðans en sex
þeirra taka þátt í sýningunni,“ seg-
ir Helga en hana langaði til að gefa
fleirum hlutdeild í rannsókninni og
því hafði hún samband við Magnús.
„Í viðtölum Helgu er að finna
mikla lífsreynslu, gleði og sorg og
því gaman að vinna úr þeim fyrir
mig sem listamann,“ segir Magnús
en á sýningunni í Hafnarhúsinu
verður hægt að hlusta á hvert við-
tal fyrir sig úr gömlum útvarps-
tækjum í stórum sal.“
Verkið er í raun sambland af list
og vísindum.
„Þetta er líka tilraun til að kanna
hvaða erindi vísindaleg hugsun á
við listina og hvort listin geti víkk-
að sjónarhorn vísindamannsins.
Það er kannski það byltingar-
kenndasta í þessu að ég ætla að at-
huga hvort listaverkið getur haft
áhrif á niðurstöður rannsóknarinn-
ar,“ segir Helga um sýninguna sem
stendur til 14. september. ■
20.00 Birgir Sigurðsson opnar
sýningu sína „Gult ljósfar“ að Hafnar-
götu 2 í Reykjanesbæ. Hluti af sýning-
unni er hljóðverk Odds Garðarssonar.
Sýningin er í tengslum við Ljósanótt í
Reykjanesbæ og stendur aðeins þessa
helgi. Sýningin „Gult ljósfar“ er sú fyrsta
af fjórum Ljósfarasýningum. Hver sýning
er sérstakt verk en saman mynda þær
eina heild: gulur, rauður, grænn og blár.
Ljósfarið er farartæki gula ljóssins á ferð
þess um himingeiminn, en hefur hér
stuttan stans. Sýningin verður opin frá
14.00 til 22.00 laugardaginn 6. septem-
ber og frá 14.00 til 18.00 sunnudaginn
7. september.
Tilkynningar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
MAGNÚS PÁLSSON
Hefur unnið listaverk upp
úr rannsókn Helgu Hansdóttur
öldrunarlæknis.
Aldraðir tjá sig
um dauðann
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
LD
A
LÓ
A
Hann bíður þín
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
22
16
3
0
9/
20
03
Áhyggjulaus og örugg bílaviðskipti - Strangt skoðunarferli, 14 daga skiptiréttur,
ókeypis skoðun eftir 1000 km, allt að 1 árs ábyrgð.
Skoðaðu úrvalið á Nýbýlavegi 4, á www.toyota.is eða hringdu í 570 5070.
Nissan Patrol Luxury
F.skráð: 06.2000
Ekinn: 85.000 km
Vél: 3000cc, sjálfskiptur
Litur: Dökkblár
Verð: 3.430.000 kr.
Búnaður: 35" breyting,
læsingar aftan/framan,
Webasto miðstöð, grillgrind,
ný dekk ofl.
Foreldrar - Stöndum saman
Styðjum börnin okkar í að afþakka áfengi og
önnur vímuefni