Fréttablaðið - 25.09.2003, Síða 1
tískuvikan í london ● ný verslun
Hægt að drepa
mann með tánni
tíska o.fl.
Uppáhaldsskórnir:
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 34
Leikhús 34
Myndlist 34
Íþróttir 30
Sjónvarp 36
FIMMTUDAGUR
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í sept. ‘03
Meðallestur fólks 25-49 ára
á höfuðborgarsvæðinu
á fimmtudögum
80%
53%
23%
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
M
O
R
G
U
N
B
LA
Ð
IÐ
D
V
FURÐAR SIG Á
KVIKMYNDA-
MIÐSTÖÐ Einar
Þór Gunnlaugsson
kvikmyndagerðar-
maður furðar sig á
því að Kvikmynda-
miðstöð hafi ekki
veitt kvikmynd hans mótframlag eftir að er-
lendir aðilar lofuðu að fjármagna hana að
mestu leyti. Hann varð því að gefa fjár-
mögnunina frá sér. Sjá síðu 8.
VILJA SELJA AUÐLINDINA
Það hefur ekkert gott upp á sig fyrir ís-
lenska þjóð að leyfa útlendingum að fjár-
festa ótakmarkað í íslenskum sjávarútvegi,
segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmda-
stjóri LÍÚ. Sjá síðu 2.
STJÓRNENDUR ÓSÁTTIR
Óánægja ríkir meðal stjórnenda Ferskra af-
urða, sem komnar eru í greiðslustöðvun.
Þeir kenna Kaupþingi Búnaðarbanka um
hvernig komið er. Sjá síðu 2.
ÞOLINMÆÐIN Á ÞROTUM
Þorbjörn Guðmundsson, formaður Sam-
ráðsnefndar verkalýðsfélaganna, segir
þolinmæði verkalýðshreyfingarinnar gagn-
vart Impregilo á þrotum. Leysa verði úr
málum hið fyrsta. Sjá síðu 4.
SMEKKLEYSA Í ÞJÓÐARBÓK-
HLÖÐU Sýningin Humar eða frægð –
Smekkleysa í 16 ár verður sett upp í
Þjóðarbókhlöðunni í dag, reyndar nokkuð
minni en sýningin sem naut vinsælda í
Listasafni Reykjavíkur og fór til Spitz Gall-
ery í London. Þar verða þó fluttir fyrir-
lestrar og kvikmyndir sýndar reglulega
fram eftir hausti.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
BONGÓBLÍÐA VÍÐA Allir ættu að
viðra sig í blíðunni í dag. Hvernig væri að
fjölskyldan færi saman út að hjóla, nú eða
róla. Þykknar upp á morgun. Sjá síðu 6.
▲
SÍÐUR 22 & 23
golf á torremolinos ● kanada
Rívíeran
áhugaverð
ferðir o.fl.
Hvert fórstu í sumar?
▲
SÍÐUR 24 & 25
25. september 2003 – 232. tölublað – 3. árgangur
SVÍÞJÓÐ Sænska lögreglan hefur
handtekið annan mann í tengslum
við rannsókn á morði utanríkisráð-
herrans Önnu Lindh. Hinum 35 ára
gamla Per Olof Svensson, sem úr-
skurðaður var í gæsluvarðhald síð-
astliðinn föstudag, var sleppt laus-
um í gær. Hann er ekki lengur grun-
aður um morðið.
Maðurinn sem nú er í haldi lög-
reglu, grunaður um að hafa stungið
Lindh til bana, var handtekinn í
Stokkhólmi í gærmorgun. Lögregl-
an verst allra frétta af handtökunni.
Hún viðurkennir þó að hinn grunaði
hafi áður komist í kast við lögin og
að hann líkist mjög manninum sem
sést á myndum úr öryggismynda-
vélum verslunarmiðstöðvarinnar
NK.
Að sögn heimildarmanns sænska
dagblaðsins Dagens Nyheter er lög-
reglan nú sannfærð um að sér hafi
tekist að hafa hendur í hári morð-
ingjans. Saksóknarinn Agneta Blid-
berg fullyrðir að yfirvöld hafi undir
höndum áreiðanleg sönnunargögn
sem bendi til sektar mannsins. Blid-
berg hefur nú fjóra daga til að taka
ákvörðun um það hvort maðurinn
verður ákærður. „Þeir hafa leyst
málið, ég er nokkuð viss um að svo
sé,“ sagði Leif G.W. Persson, pró-
fessor í afbrotafræði hjá yfirstjórn
lögreglunnar, við blaðamann AP.
Yfir 60% sænsku þjóðarinnar
telja að lögreglunni muni takast að
upplýsa morðmálið, samkvæmt
skoðanakönnun sem birtist í Dagens
Nyheter. ■
Rannsóknin á morði Önnu Lindh tekur nýja stefnu:
Annar maður handtekinn
fylgir Frétt
ablaðinu
www. bt.is
LÆKKAÐ
VERÐ
Ætla sér ekki að kæra
Móðirin sem varð fyrir því að hópur ungmenna ruddist inn á heimili fjölskyldu hennar á mánu-
dagskvöld á enn erfitt með svefn. Hún segir að ekki sé um kynþáttafordóma að ræða og vonar að
þeir sem eigi hlut að máli láti hér við sitja.
HÚSBROT Filippeyska fjölskyldan
sem varð fyrir því að hópur ungra
manna ruddust inn í íbúð hennar í
Seljahverfi á
mánudagskvöld,
með því að möl-
brjóta útidyra-
hurðina, ætlar
ekki að kæra
húsbrotið. Eftir
að mennirnir
voru komnir inn
í íbúðina gengu
þeir berserks-
gang, brutu allt
og brömluðu og
börðu tæplega
tvítugan íbúa
með golfkylfu.
Enginn hefur verið handtekinn
vegna málsins.
Frú Montemayor segir að hún
sé skelfingu lostin eftir húsbrotið
og kveðst enn eiga mjög erfitt
með svefn á nóttinni. Þegar hóp-
urinn ruddist inn reyndi hún eftir
megni að verja son sinn, sem
sætti barsmíðum árásarmann-
anna, en gat ekki varist. Margir
þeirra sem ruddust inn í íbúðina
voru vopnaðir, ýmist hnífum,
golfkylfum eða öðrum bareflum.
Hún segir að kynþáttahatur sé
ekki orsökin atburðanna heldur
séu ástæðurnar persónulegar.
Hvorki hún né sonur hennar ætla
að kæra húsbrotið og vonast hún
til að allir sem eigi hlut að máli
láti hér við sitja. Sjálf hefur hún
búið hér á landi í níu ár og fluttist
sonur hennar hingað fyrir fjórum
árum síðan.
„Við erum að rannsaka bæði
þetta mál og átökin sem urðu á
Select aðfaranótt sunnudags og
hvort þau hugsanlega tengist,“
segir Benedikt Benediktsson,
rannsóknarlögreglumaður í
Reykjavík. Að sögn Harðar Jó-
hannessonar, yfirlögregluþjóns í
Reykjavík, hefur lögreglan talað
við hluta ungu mannanna sem
áttu þátt í húsbrotinu á mánu-
dagskvöldið. Hins vegar er ekki
orðið ljóst hver gerði hvað.
Húsbrotið í Seljahverfi var
þriðja árásin í Breiðholtinu á
tveimur dögum. Aðfaranótt sunnu-
dags urðu ryskingar í söluturnin-
um King Kong í Eddufelli og hlaut
einn unglingur skurðsár. Sama
kvöld var unglingur fluttur á slysa-
deild eftir að hafa verið barinn
með hafnaboltakylfu fyrir utan
Select í Fellahverfi.
hrs@frettabladid.is
Sjá nánar síðu 4.
LÖGREGLA Á VETTVANGI
Rannsóknarlögreglan vinnur að því að
upplýsa húsbrot sem framið var á mánu-
dagskvöld í Seljahverfi.
„Við erum
að rannsaka
bæði þetta
mál og átökin
sem urðu á
Select aðfara-
nótt sunnu-
dags og hvort
þau hugsan-
lega tengist.
FRÚ MONTEMAYOR VIÐ HURÐINA SEM MENNIRNIR BRUTUST INN UM
Frú Montemayor segir að hvorki hún né sonur hennar ætli að leggja fram kæru vegna húsbrotsins.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
FRÁ BLAÐAMANNAFUNDI LÖGREGLUNNAR
Vonir eru bundnar við að maðurinn sem er í haldi sé sá sem myrti Önnu Lindh.
Deilt um atvinnuleyfi:
Vísað til
lögreglu
ATVINNUMÁL Lögregla rannsakar
hvort pólskir starfsmenn KM-
bygginga sem vinna við upp-
setningu sílós í álverinu í
Straumsvík séu með fullgild at-
vinnuréttindi. Vinnumálastofn-
un fór fram á lögreglurannsókn
eftir að Félag járniðnaðarmanna
hafði komið athugasemdum sín-
um við störf mannanna á fram-
færi. Félagið telur að lög um at-
vinnu- og dvalarleyfi hafi verið
brotin.
Samkvæmt upplýsingum frá
Vinnumálastofnun má búast við
niðurstöðum lögreglurannsókn-
ar í dag.
Heiða Gestsdóttir, forstöðu-
maður stjórnsýslusviðs Vinnu-
málastofnunar, segir ekki mikið
um að málum sem þessu sé vís-
að til lögreglunnar en það komi
fyrir af og til. ■
AP
/M
YN
D