Fréttablaðið - 25.09.2003, Blaðsíða 39

Fréttablaðið - 25.09.2003, Blaðsíða 39
39FIMMTUDAGUR 25. september 2003 Kári Waage, birtingastjóriSkjás Eins frá upphafi, hefur ráðið sig sem framkvæmda- stjóra á Hótel Valaskjálf á Egils- stöðum. Flytur Kári austur á næstu dögum: „Hótelið sjálft er að vísu leigt út til Menntaskólans á Egilsstöð- um yfir vetrarmánuðina en ég sný mér að samkomusalnum og veitingaaðstöðunni að staðnum í vetur,“ segir Kári, sem starfað hefur hjá Skjá Einum frá því stöðin var stofnuð. Segir hann það heldur fátítt í fjölmiðlageir- anum, á þessum síðustu og verstu tímum, að menn segi upp sjálfir: „Hótel Valaskjálf er risastórt hús sem býður upp á mikla möguleika. Ég stefni að því að gera þetta að miðstöð menningar og skemmtanahalds á Austur- landi. Til að byrja með ætum við að opna sportpöbb og taka niður um gervihnött alla þá íþróttavið- burði sem í boði eru. Svo eru það böllin. Við byrjum með Stuð- menn um helgina,“ segir Kári en möguleikar á skemmtanahaldi á Egilsstöðum hafa stóraukist eftir að framkvæmdir hófust við Kárahnjúka. Ítalirnir þar efra sækja oft niður í byggð í fríum sínum og vilja þá stundum fá sér snapps eða snúning á dansgólfinu: „Þeir koma hingað og ég fæ ekki betur séð en þetta sé ágætis fólk. Einhverjir peyjar hér í plássinu eru þó að pota í þá enda eykst samkeppnin um flest þeg- ar fjölgar á barnum.“ ■ Einn þekktasti sjónvarpskokk-ur Breta var staddur hér á landi við veiðar um síðustu helgi. Fylgdi honum fjölmennur hópur blaðamanna en heimsókn kokks- ins hingað til lands var liður í því að loka veiðiglaða sælkera frá Bretlandi hingað til lands. Kokk- urinn heitir Hugh Fearnley- Whittingstall og er með mat- reiðsluþætti á Channel 4 hjá BBC. Þá hefur hann gefið út eina vinsælustu matreiðslubók síðari ára, The River Cottage Cook- book. Áhersla hans á lífrænt ræktað hráefni hefur skapað honum miklar vinsældir. Til að hafa alltaf rétta hráefnið er hann með heilmikinn búskap á búgarði sínum River Cottage og heldur m.a. svín og kindur, auk þess að rækta heil ósköp af grænmeti. Allt lífrænt ræktun að sjálf- sögðu. Hugh renndi fyrir lax í Eystri- Rangá og matbjó síðan aflann fyrir fylgdarlið sitt. Hann gerði graflax úr hluta aflans, en stærsta stykkið kryddaði hann með rauðum piparkornum, vafði inn í álpappír og bakaði í ofni. Hann sneiddi laxaroðið síðan í strimla, velti því upp úr hveiti og djúpsteikti. Roðið var í forrétt ásamt laxahrognum á ristuðu brauði. Hugh Fearnley-Whittingstall þykir uppátækjasamur í sjón- varpsþáttum sínum. Meðal ann- ars eldaði hann fylgju móðurinn- ar í fæðingarveislu, en sá siður að borða fylgjuna er útbreiddur víða um heim, þótt hann þekkist lítt á Vesturlöndum. Kom sjón- varpskokkurinn mörgum í upp- nám við þessa eldsmennsku en hélt þó striki sínu. Hugh Fearnley-Whittingstall lét vel af dvöl sinni hér á landi. ■ KÁRI WAAGE Stefnir að því að reka Hótel Vala- skjálf sem miðstöð menningar og skemmtanahalds á Austurlandi. Viðskipti AUSTURFÖR ■ Kári Waage, birtingastjóri auglýsinga á Skjá Einum frá upphafi, hefur ráðið sem framkvæmdastjóra á Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum. Landkynning VEIÐI ■ Hugh Fearnley-Whittingstall var stadd- ur hér á landi á dögunum. Hann er sjón- varpskokkur hjá BBC. Frægur sjónvarps- kokkur í Rangá Kári Waage færir sig frá Skjá Einum yfir í Hótel Valaskjálf HUGH FEARNLEY-WHITTINGSTALL Þykir uppátækjasamur í sjónvarpsþáttum sínum og eldaði til að mynda fylgju móður í fæðingarveislu fyrir skemmstu. Myndin er tekin við Eystri-Rangá.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.