Fréttablaðið - 25.09.2003, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 25.09.2003, Blaðsíða 8
8 25. september 2003 FIMMTUDAGUR Fjandinn laus Nú er allt eignarhald í uppnámi: Fyrst eru bankarnir einkavædd- ir og síðan eru fyrirtækin bankavædd. Árni Bergmann um viðskiptaumskipti í DV 24. september. Allir vilja þeir eitthvað Varaðu þig, Björgólfur minn, versta Dalían er í sjónmáli en þótt ég viti hvar hún er og hvernig megi bregðast við henni þá segi ég þér það ekki nema fyrir mikla peninga. Guðbergur Bergsson um Samson í DV 24. september. Verður vart einfaldara Heimurinn er svart-hvítur, ég einn ræð því, hvað flokkast sem svart, áskil mér rétt til að ráð- ast á það, og þeir sem ekki eru með mér, eru á móti mér. Jónas Kristjánsson um heimssýn Bandaríkjaforseta. Jonas.is 24. september. Orðrétt DÓMSMÁL Félag ábyrgra feðra hyggst vísa máli forsjárlauss föður til Mannréttindadómstóls Evrópu í Strassborg. Garðar Baldvinsson, formaður félagsins, segir að af nógu sé að taka en vill ekki upplýsa hvert málið sé. Garðar segir félagið fagna niðurstöðunni í máli Sophiu Han- sen gegn tyrkneska ríkinu. Bar- átta hennar sýni getu einstak- lings til að berjast fyrir sínum málum, jafnvel á alþjóðavett- vangi. Umgengnistálmanir, líkt og Sophia hafi verið beitt, séu harkaleg mannréttindabrot. Garðar Baldvinsson segir það fólskulega misnotkun að svipta barn móður eða föður. Á Íslandi búi þúsundir barna við föður- sviptingu, þúsundir íslenskra feðra séu með öðrum orðum í sömu sporum og Sophia Hansen, að fá ekki að sjá börn sín lang- tímum saman. Réttur barna til að umgangast báða foreldra sína sé því í reynd engu betri á Íslandi en í Tyrklandi. ■ KVIKMYNDAGERÐ Einar Þór Gunn- laugsson kvikmyndaleikstjóri óskar eftir skýringum Kvik- myndamiðstöðvar Íslands á því að styrkumsókn vegna myndar hans Grunsamlega venjulegur var hafnað. Einar segir að eftir að svokölluð 40/60 regla var sam- þykkt með nýrri reglugerð í mars hafi hann sent inn um- sókn. Hann hafi þá haft enska og franska fjár- festa sem vildu fjármagna 60 prósent af 100 milljón króna kostnaði við gerð myndar- innar. Þar með væri Kvik- myndasjóðnum, s a m k v æ m t 40/60 reglunni, heimilt að lána þær 40 milljónir sem upp á vant- ar. Því var hafnað í júlí. „Reglugerðin segir ekki að Kvikmyndamiðstöðin eigi að gera þetta heldur sé þetta heim- ild. Hins vegar hafa öll fagfélög, eins og til dæmis bæði SÍK (Samtök íslenskra kvikmynda- framleiðenda) á aðalfundi í vor og opinbera nefndin sem vann reglugerðina, lýst því yfir að heimildina ætti að nýta. Þarna virðist eins og verið sé að búa til reglur eftir á,“ segir Einar. Að sögn Einars taldi hann, þegar hann fékk synjun Kvik- myndastöðvarinnar í júlí, að fjármagn sjóðsins hefði einfald- lega klárast í myndir sem væru fjármagnaðar að fullu. Hann og samstarfsaðilar hans hefðu því gefið styrkvonina frá sér: „Síðan áttuðum við okkur á því að myndir höfðu verið styrktar sem ekki voru fullfjár- magnaðar. Þá sendum við inn at- hugasemd og óskuðum í ágúst eftir skriflegum útskýringum. Þær hafa ekki komið enn þá,“ segir Einar. Samtök íslenskra kvikmynda- framleiðenda hafa einnig fengið erindi frá Einari þar sem hann óskar umsagnar þeirra um mál- ið. Stjórn samtakanna ætlaði að taka málið fyrir á stjórnarfundi á fimmtudag. „Stjórnin er í þeir- ri stöðu að annað hvort mæla með því að Kvikmyndamiðstöð- in breyti þessari afstöðu sinni eða þá að fara strangt til tekið gegn samþykkt aðalfundar fé- lagsins. Það verður spennandi að sjá hvort verður,“ segir Ein- ar. Einar segir að sögusvið myndarinnar sinnar hafi nú ver- ið fært frá Reykjavík til Liver- pool. Verið sé að afla viðbótar- fjármagns. Erfitt hafi hins veg- ar verið að útskýra vinnubrögð Kvikmyndamiðstöðvarinnar fyrir upphaflegu fjárfestunum. „Þótt þetta séu jákvæðir menn eru þeir óneitanlega orðnir dá- lítið skrítnir í framan,“ segir hann. gar@frettabladid.is Kjarasamningar: Viðræður í október ATVINNUMÁL Starfsgreinasamband- ið og Samtök atvinnulífsins komu sér í gær saman um viðræðuáætl- un kjarasamninga félaga utan Flóa- bandalagsins. Þetta eru 32 félög, að sögn Halldórs Björnssonar, forseta Starfsgreinasambandsins. Í þeim hópi eru nokkur af stærstu verka- lýðsfélögum landsins. Kjarasamningar eru lausir um áramót en Halldór segir að viðræð- ur hefjist um miðjan október. Í framhaldinu af því liggi kröfugerð félaganna fyrir. Halldór segir að þótt svo virðist að góðæri sé í upp- siglingu þýði það ekki að vinnandi fólk geti náð góðum samningum við sína viðsemjendur. ■ Níu Vítisenglar: Myrtu 13 í uppgjöri glæpagengja MONTREAL, AP Dómstóll í Kanada dæmdi níu félaga í bifhjólasam- tökunum Vítisenglum í 10 til 15 ára fangelsi fyrir margvíslega glæpi. Meðal þess sem Vítisengl- arnir voru sakfelldir fyrir var fíkniefnasmygl og samsæri um að fremja 13 morð. Sakborning- arnir játuðu sekt í öllum á k æ r u l i ð u m . Vítisenglarnir hafa setið í varðhaldi í 30 mánuði en varðhaldsvistin kemur ekki til frádráttar fangelsisdómunum. Glæpirnir sem mennirnir frömdu tengjast allir uppgjöri milli glæpasamtaka í Quebec um miðjan síðasta áratug. Rúmlega 100 manns féllu í þeim átökum. Að minnsta kosti 12 morðanna sem mennirnir frömdu voru hluti af þessu uppgjöri en upplýst var að þrettándi maðurinn var myrtur fyrir mistök. ■ KARLSRUHE, AP Hæstiréttur í Þýska- landi hefur úrskurðað að íslömsk- um kennara sé heimilt að stunda kennslu með slæðu á höfðinu. Yfirvöld í Baden-Württem- berg í Þýskalandi synjuðu Fer- eshtu Ludin, 31 árs Þjóðverja af afgönskum uppruna, um kennslu- starf þar sem hún krafðist þess að fá að bera slæðu við kennsl- una. Ludin er Íslamstrúar en samkvæmt trúnni ber henni að hylja höfuð sitt. Yfirvöld sögðu að með því að heimila Ludin að bera slæðuna væri varpað fyrir róða stjórnar- skrárbundnu hlutleysi gagnvart trúarbrögðum. Á þetta féllst þýskur undirréttur en hæstirétt- ur landsins var á öðru máli og sagði óheimilt samkvæmt núgild- andi lögum að banna konunni að bera slæðu við kennslu. Hæsti- réttur segir hins vegar nauðsyn- legt að löggjafinn finni einhvern meðalveg milli trúfrelsis og hlut- leysis í þýskum grunnskólum. ■ Nemendur læra hvernig tölva er samsett, framkvæma bilana- greiningu og uppsetningar á Win XP og Win 2003. Náminu lýkur með alþjóðlegu Microsoft Certified Professional prófi sem er innifalið í verði. Vélbúnaður Uppsetning stýrikerfa Netkerfi Rekstur tölvukerfa Windows 2003 Server Námsgreinar Lengd: 108 stundir Næsta námskeið: 8. október Tími: 2 kvöld og laugard. Einingar: 4 Verð: 145.000 SLÆÐAN MÁ VERA Þýskur múslimi af afgönskum uppruna hafði betur í 5 ára baráttu við yfirvöld í Þýskalandi um hvort hún mætti bera slæðu við kennslu. Íslömsk kona hafði sigur eftir fimm ára baráttu: Má kenna með slæðu Félag ábyrgra feðra fagnar niðurstöðu í máli Sophiu Hansen: Hyggst vísa máli forsjár- lauss föður til dómstólsins RÉTTUR BARNANNA RÍKUR Formaður félags ábyrgra feðra segir rétt barna til að umgangast báða foreldra sína í reynd engu betri á Íslandi en í Tyrklandi. Félgið hyggst vísa máli forsjárlauss föður til Mannréttindadómstóls Evrópu. Nýrri skiptareglu ekki beitt við styrkúthlutun Einar Þór Gunnlaugsson fær ekki 40 milljóna króna styrk frá Kvikmyndamiðstöðinni þrátt fyrir loforð erlendra aðila um fjármögnum 60 prósent kostnaðar nýrrar bíómyndar. Hann óskar skýr- inga á að ekki sé beitt nýrri svokallaðri 40/60 skiptareglu. Hann vill stuðning starfssystkina. „Þótt þetta séu jákvæðir menn eru þeir óneitan- lega orðnir dálítið skrítnir í framan. VÍTISENGLAR Níu félagar Hells Angels fengu þunga fangelsisdóma fyrir glæpi sína. EINAR ÞÓR GUNNLAUGSSON Kvikmyndaleikstjórinn Einar Þór Gunnlaugsson telur að með því að Kvikmyndamiðstöðin synjaði að fjár- magna 40 prósent kostnaðar við mynd sem er fjármögnuð að öðru leyti sé verið að starfa eftir reglum sem búnar hafi verið til eftir á – fremur en eftir nýrri reglugerð og túlkun allra fagaðila á henni. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A LD A LÓ A Rafrænt samfélag: Völdu tvö verkefni VERÐLAUN Um 120 milljónum króna verður varið til tveggja verkefna sem valin voru í samkeppni um rafrænt samfélag á vegum iðnað- ar- og viðskiptaráðuneytisins. Að þeim stóðu annars vegar sveitarfélögin Árborg, Hvera- gerði og Ölfus, undir heitinu Sunnan 3 sem er sagt líkleg fyrir- mynd í þróun upplýsingavæðing- ar í stjórnsýslu, og hins vegar verkefni sveitarfélaganna Aðal- dælahrepps, Húsavíkur og Þing- eyjasveitar, undir heitinu Virkj- um alla þar sem lögð er áhersla á uppbyggingu rafrænna upplýs- ingatorga fyrir íbúana. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.