Fréttablaðið - 25.09.2003, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 25.09.2003, Blaðsíða 16
16 25. september 2003 FIMMTUDAGUR HILLARY RITSKOÐUÐ Búið er að þýða og gefa úr ævisögu Hillary Clinton á kínversku. Útgáfan hefur þó vald- ið reiði bandaríska útgefandans þar sem búið er að ritskoða bókina og sleppa sum- um köflum hennar. LUNDÚNIR, AP Scotland Yard segist hafa upprætt stærsta eiturlyfja- hring sem starfað hefur í Bret- landi. Gripið var til samstilltra að- gerða gegn hringnum í Lundúnum og Kólumbíu og meintur leiðtogi hans handtekinn. Hátt í hundrað lögreglumenn gerðu áhlaup á 23 hús í bresku höfuðborginni og handtóku tíu karlmenn og tvær konur. Á sama tíma réðust yfirvöld í Kólumbíu inn í 25 byggingar og færðu fimmtán manns til yfirheyrslu. Að sögn talsmanns Scotland Yard lagði breska lögreglan hald á sem svarar yfir 32 milljónum ís- lenskra króna í reiðufé. Flestir þeirra sem voru handteknir eru Kólumbíumenn. Aðgerðirnar voru liður í rann- sókn sem staðið hefur yfir í hálft annað ár. Fyrir skemmstu var lagt hald á kókaín í eigu hringsins að verðmæti sem svarar rúmum 2,5 milljörðum króna. Áætlað hafði ver- ið að selja efnið á götum Lundúna. Talið er handtökurnar eigi eftir að hafa veruleg áhrif á framboð og markaðsverð á kókaíni í Bret- landi. ■ Með lukta glugga vegna villikattafárs Íbúar við Fjarðarstræti á Ísafirði þora vart að opna glugga. Nágrannar íhuga að kæra stórfellt kattahald í kjallara til lögreglu. DÝRAVERND „Við höfum reynt eftir megni að verja okkar helming fyr- ir ágangi villikattanna með því að skvetta á þá vatni en við getum ekki opnað glugga í kjallaranum hjá okkur því þá koma þeir inn og merkja að kattasið,“ segir Matt- hildur Helgadóttir, íbúðareigandi við Fjarðar- stræti 38 á Ísa- firði. Eins og fram hefur komið í F r é t t a b l a ð i n u hefur umsáturs- ástand ríkt við húsið. Meindýra- eyðir bæjarins hefur setið um villiketti sem hann segir að haldi til í kjallara Höskuldar Guðmundssonar, sem býr í enda hússins við Fjarðar- stræti 38. Höskuldur hefur bannað Vali kattabana að fara í kjallarann eða inn á lóðina. Valur hefur því haldið sig á lóðamörkum með búr til að fagna kettina og vopnaður riffli. Valur segist hafa náð 25 kött- um á lóðinni undanfarnar vikur. Höskuldur hefur kært Val vegna þess að skot úr riffli hans endur- kastaðist í gegnum kjallarahurð. Þá hefur hann einnig borið Val þeim sökum að hafa fargað tveim- ur heimilisköttum sínum sem hurfu sporlaust. Matthildur ná- granni Höskuldar segir að vandinn sé sá að villikettirnir gangi inn og út úr kjallara Höskuldar, sem hafi opna glugga þar að staðaldri. „Meindýraraeyðirinn hefur að meðaltali komið tvisvar á ári í þau þrjú ár sem ég hef búið hér og drepið einhverja tugi katta í hvert skipti, flesta á bak við húsið okkar. Það sér það hver sem vill að þetta ástand er óviðunandi og blessuð dýrin eiga ekki góða vist þarna,“ segir Matthildur. Hún segist sjálf vera hlynnt kattahaldi enda eigi hún sjálf ró- lega læðu. En villikettirnir í Fjarð- arstræti sé fjarri því að vera litlar sætar heimiliskisur, heldur grind- horaðir og illa farnir kettir og frá dýraverndunarsjónarmiði sé ótækt að viðhalda núverandi ástandi. Hún segist ekki undan öðru að kvarta varðandi nágrannann en „þessari kattavitleysu“. „Þannig að allt tal hans um of- sóknir er undarlegt. Það eru ekki bara við í hinum enda hússins sem erum orðin langþreytt á þessu ástandi. Fólkið í húsunum í kring er ekki mikið betur sett því það þarf að jafnaði að hafa glugga lok- aða til að fá ekki kettina inn til sín. Það er hart til þess að vita að yfir- völd virðast ekkert geta gert í þessu máli. Líklega endar þetta með því að við nágrannarnir tökum okkur saman og kærum til lög- reglu,“ segir Matthildur. rt@frettabladid.is SAMVINNA Samtök álframleið- enda og framleiðenda léttmálma í Kína og Málmgarður undirrit- uðu í gær viljayfirlýsingu um víðtækt samstarf. Viljayfirlýsingin var undir- rituð í tengslum við tvíhliða fund viðskiptanefnda Íslands og Kína. Í Stiklum, vefriti við- skiptaskrifstofu utanríkisráðu- neytisins, segir að yfirlýsingin kveði á um að báðir aðilar skuli skiptast á upplýsingum og koma á tengiliðum viðvíkjandi fram- leiðslu og notkunar áls. Sam- komulagið á að styrkja sam- vinnu og viðskiptatengsl fyrir- tækja í álframleiðslu. Þá er stefnt að því að koma á sam- starfi æðri menntastofnana og rannsóknarstofnana. Í vefritinu segir að bæði Ís- land og Kína eigi það sameigin- legt að vera að auka áfram- leiðslu sína verulega. Kína sé stærsti framleiðandi áls í heim- inum og Ísland verði brátt á meðal stærstu álframleiðenda Evrópu. Málmgarður er vett- vangur vöruþróunar, markaðs- og tæknirannsókna, menntunar og upplýsingamiðlunar á sviði léttmálma. ■ „Við höfum reynt eftir megni að verja okkar helming fyrir ágangi villi- kattanna. ÁRNI MAGNÚSSON Undirritaði viljayfirlýsinguna fyrir Íslands hönd. Ráðherrar átta ríkja: Átak gegn fíkniefnum FÍKNIEFNAVARNIR Ráðherrar átta ríkja, Norðurlandaríkjanna fimm og Eystrasaltsríkjanna þriggja, undirrituðu í gær viljayfirlýsingu um sameiginlega stefnumótun í baráttu gegn fíkniefnum. Þetta segja þeir raunhæft svar ríkjanna við vaxandi vanda sem stafi af fíkniefnum. Ríkin munu miðla hvers kyns upplýsingum, grípa til aðgerða gegn skipulögðum glæpum og styðja raunhæfa endurhæfingu þeirra sem ánetjast fíkniefnum. Árni Magnússon félagsmála- ráðherra sat fundinn fyrir Íslands hönd. ■ Ráðist á kvikmyndahús: Beint gegn klám- sýningum MÓSÚL, AP Tveir menn létust og að minnsta kosti sjö slösuðust í gær þegar sprengja sprakk við kvik- myndahús í Mósúl í Írak. Sprengingin varð við Nojoom- kvikmyndahúsið og virðist sem sprengjunni hafi verið kastað í loftinntak á þaki hússins. Verið var að sýna erlendar klámmyndir í bíóinu en bann við sýningum þeirra var afnumið þegar stjórn Saddams Husseins, fyrrum Íraksforseta, var steypt af stóli. Enginn hefur lýst ábyrgð á hendur sér en böndin berast að ýmsum trúar- og stjórnmálahóp- um sem hafa barist gegn sýningu klámmynda. ■ ■ Sjávarútvegur ÓBREYTT STJÓRN Rækjuveiðum á Flæmingjagrunni verður áfram stjórnað sem sóknarstýringu þrátt fyrir ítrekuð mótmæli Ís- lendinga, sem vilja stjórna sókn- inni með aflamarki. Ákvörðun um þetta var tekin á ársfundi Norðvestur-Atlantshafsfiskveiði- stofnunarinnar. EITURLYFJASMYGLARI HANDTEKINN Tólf manns voru handteknir í Lundúnum, þar á meðal meintur leiðtogi eiturlyfjahringsins. Umfangsmikill eiturlyfjahringur upprættur: Samstilltar aðgerðir í Bretlandi og Kólumbíu ÁLVERIÐ Í STRAUMSVÍK Viljayfirlýsingin var undirrituð í tengslum við tvíhliða fund viðskiptanefnda Íslands og Kína. Kínverjar og Íslendingar undirrita viljayfirlýsingu: Aukið samstarf í álframleiðslu KATTABANINN Valur Richter, meindýraeyðir Ísafjarðarbæjar, hefur undanfarið setið um villiketti við lóðamörkin á Fjarðarstræti 38. Íbúðareigandinn bannar honum að koma inn á lóðina og hefur kært hann fyrir að skjóta í gegnum hurð.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.