Fréttablaðið - 25.09.2003, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 25.09.2003, Blaðsíða 35
FIMMTUDAGUR 25. september 2003 ■ LISTOPNUN 35 Sýningin „Humar eða frægð –Smekkleysa í 16 ár“ naut mik- illa vinsælda í Listasafni Reykja- víkur í sumar. Hún var einnig sett upp í Spitz Gallery í London í sumar og vakti þar ekki síður at- hygli. Í dag verður hún sett upp í Þjóðarbókhlöðunni í Reykjavík og verður þar í námunda við náms- menn, en reyndar í örlítið smækk- aðri mynd. Þar verða einnig flutt- ir fyrirlestrar og sýndar kvik- myndir reglulega fram eftir hausti. Á næstu misserum má svo bú- ast við að sýningin fari á flakk um heiminn. „Við erum að fá margar fyrir- spurnir frá útlöndum þar sem fólk vill setja upp þessa sýningu,“ seg- ir Ólafur Engilbertsson, sem er höfundur sýningarinnar. Nú þegar er ákveðið að sýningin verði sett upp á Norðurbryggju í Kaup- mannahöfn í vor. Einnig verður hún sett upp í Riga í Lettlandi, væntanlega í mars. Á opnuninni í Þjóðarbókhlöð- unni í dag flytur Ólafur erindi um rætur Smekkleysu og Margrét Sigurðardóttir erindi um stefnu- skrá Smekkleysu. ■ Smekkleysa komin í Þjóðar- bókhlöðuna KUKL Smekkleysusýningin „Humar eða frægð“ verður í Þjóðarbókhlöðunni fram eftir vetri. Átta kröftugar konur í Reykja-vík hafa tekið höndum saman og stofnað félagsskap sem kallast Kvenfélagið Garpur. Hér er ekki um að ræða kvenfélag í hefð- bundnum skilningi heldur leikhóp sem samanstendur af hópi ungra leikkvenna. „Við stofnuðum þetta um mitt sumar af einskærri þörf fyrir að gera öðruvísi leikhús,“ segir Unnur Ösp Stefánsdóttir leikkona. „Það er staðreynd að það er minni vinnu að fá fyrir konur í leikhúsinu og okkur lang- aði til að stofna félagsskap þar sem við störfum á eigin forsend- um.“ Kvenfélagið Garpur áætlar að sýna verk sitt, Riddarar hring- borðsins, með veskið að vopni, í Listasafni Reykjavíkur eftir þrjár vikur: „Við höfum verið að skoða muninn á orðræðu kvenna og karla í stríði og erum með texta úr Lýsiströtu, Ríkharði 3. og bíó- myndinni Conspiracy. Útkoman verður í raun uppákoma frekar en hefðbundið leikverk. Það er mikill húmor í þessu, við garparnir stíg- um m.a. veskjadans til heiðurs nú- tímakonum og gerum óspart grín að sjálfum okkur.“ Í Kvenfélaginu Garpi eru leikkonurnar Maríanna Clara Lúthersdóttir, María Heba Þor- kelsdóttir, Unnur Ösp Stefáns- dóttir, Vigdís Hrefna Pálsdóttir, Þrúður Vilhjálmsdóttir, Esther Talia Casey, Margrét Eir og Sól- veig Guðmundsdóttir en Þórhild- ur Þorleifsdóttir leikstýrir verk- inu. ■ Með veskið að vopni Það var víst fyrir fimmtán árumsíðan sem Stefán Hilmarsson, Guðmundur Jónsson og félagar létu Þorstein Joð Vilhjálmsson, þáverandi útvarpsmann, plata sig í það að leika í hljómsveit fyrir Blues Brothers-skemmtun í Sig- túni við Suðurlandsbraut. Sálar- tónlistin og blúsinn fengu svo snemma að víkja fyrir afbragðs poppsmíðum Gumma og félaga. Sálin í sveitinni er í dag fólgin í þeim þó liðsmenn eigi það enn til að verða Syngjandi sveittir. Enda sveitin rétt komin á táningsaldur- inn. Miðað við uppruna sveitarinn- ar er við hæfi að halda afmælis- tónleikana á NASA, gamla Sig- túni, við Austurvöll. Á þessum tímamótum ætlar sveitin að halda tónleika þar sem farið verður í gegnum sögu henn- ar. Gestir NASA munu þannig sitja við borð sín og hlýða á sveit- ina leika lög sín í lágstemmdum útsetningum við kertaljós. Þetta verður þó ekki endurtekning á frægum órafmögnuðum tónleik- um sveitarinnar þann 12. ágúst 1999 því rafmagnið verður notað þar sem við á hverju sinni. Auk þess að leika ný lög af væntan- legri plötu Sálarinnar með Sin- fóníuhljómsveit Íslands verður rykið dustað af eldri lögum sem hafa ekki verið leikin á tónleikum um árabil. Stefán mun svo líkleg- ast fylla upp í eyðurnar með upp- lestri úr sögubókum Sálarinnar. Þar sem borðum og stólum hef- ur verið raðað upp á gólfið fyrir framan sviðið verður miðafjöldi takmarkaður. Meðlimir Gullna liðsins, sem er nýstofnað félag áhugamanna um sveitina, fá for- gang að miðum. Nú þegar eru um 400 manns í félaginu en áhuga- samir geta skráð sig á www.sal- in.is. Forsala miða fer fram á NASA og opnar miðasalan í dag kl. 13.00. Tónleikarnir hefjast kl. 22.00. Eftir tónleikana í kvöld verða hljóðfærin skilin eftir uppi á sviði NASA því annað kvöld held- ur sveitin öllu hefðbundnari dansleik þar sem svitinn mun leka úr loftinu. ■ Lágstemmd Sál á 15 ára afmæli ■ LEIKLIST ■ TÓNLEIKAR SÁLIN HANS JÓNS MÍNS Sálin fagnar 15 ára afmæli sínu um þessar mundir um leið og piltarnir eru að koma sér í startholurnar fyrir útgáfu vetrarins. ROSARIO DAWSON Leikkonan Rosario Dawson mætir á frum- sýningu myndarinnar „The Rundown“ er haldin var í Universal Studios, Universal City í Los Angeles. FRÉTTAB LAÐ IÐ /VILH ELM Miðasalan, sími 568 8000 Sala áskriftarkorta og afsláttarkorta stendur yfir . Sex sýningar: Þrjár á Stóra sviði, þrjár að eigin vali. Kr. 9.900 STÓRA SVIÐ LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren Lau 27/9 kl 14 - UPPSELT Su 28/9 kl 14 - UPPSELT Lau 4/10 kl 14 - UPPSELT Su 5/10 kl 14 - UPPSELT Su 5/10 kl 17 - AUKASÝNING Lau 11/10 kl 14 - UPPSELT Su 12/10 kl 14 - UPPSELT Lau 18/10 kl 14 -UPPSELT Su 19/10 kl 14 - UPPSELT Lau 25/10 kl 14 Su 26/10 kl 14 Lau 1/11 kl 14 Su 2/11 kl 14 ÖFUGU MEGIN UPPÍ e. Derek Benfield Lau 27/9 kl 20 Lau 4/10 kl 20 Fö 10/10 kl 20 PÚNTILA OG MATTI e. Bertolt Brecht Í kvöld kl 20 Fö 3/10 kl 20 Lau 11/10 kl 20 Su 19/10 kl 20 Su 26/10 kl 20 Ath. Aðeins þessar sýningar FÖSTUDAGUR 26. SEPT. kl. 20 STÓRTÓNLEIKAR -UPPSELT Diddú, Gunnar Guðbjörnsson, Kristinn Sigmundsson og Jónas Ingimundarson. LAUGARDAGUR 27. SEPT. kl. 21 Ferðalög um Ísland KK og Magnús Eiríksson flytja. SUNNUDAGUR 28. SEPT. kl. 20 TÍBRÁ: Beethoven, Þorkell, Brahms Sigurður I Snorrason, Pavel Panasiuk, og Helga B Magnúsdóttir leika. MÁNUDAGUR 29. SEPT. kl. 20 STÓRTÓNLEIKAR ENDURFLUTTIR! Nokkur sæti laus. NETSALA: www.salurinn.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.