Fréttablaðið - 25.09.2003, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 25.09.2003, Blaðsíða 20
20 25. september 2003 FIMMTUDAGUR ■ Andlát ■ Afmæli Þúsund hermenn þurfti til þessað halda æstum múg hvítra að- skilnaðarsinna í skefjum svo níu svört ungmenni gætu komist í skólann sinn í Little Rock í Arkansas, Bandaríkjunum, þann 25. september árið 1957. Árið 1954 hafði Hæstiréttur Bandaríkjanna komist að þeirri niðurstöðu að aðskilnaður barna í skólum eftir kynþætti bryti í bága við stjórnarskrá landsins. Orval Faubus, ríkisstjóri í Arkansas, þverneitaði að taka mark á þessum úrskurði Hæsta- réttar. Þann 2. september árið 1957 skipaði hann herliði Arkansas að koma í veg fyrir að ungmennin níu kæmust í skólann, sem fram að því hafði eingöngu verið sóttur af hvítum börnum. Þremur vikum síðar þurfti þetta herlið þó frá að hverfa sam- kvæmt úrskurði frá alríkisdóm- ara. Þá tók hvíti múgurinn við og hindraði ungmennin í að sækja skólann. Borgarstjórinn í Little Rock leitaði til forseta Bandaríkjanna, sem þá var Dwight D. Eisen- hower. Forsetinn brást við þann 25. september og sendi rúmlega þúsund hermenn, sem mynduðu varnarvegg í kringum ungmennin níu svo þau kæmust í skólann. ■ Bera Nordal listfræðingur er 49 ára. Ólafur Björgúlfsson tannlæknir er 68 ára. Arnar Páll Hauksson fréttamaður er 49 ára. Sigurður Guðmundsson landlæknir er 55 ára. Soffía Auður Birgisdóttir bókmennta- fræðingur er 44 ára. Jónína Margrét Jónasdóttir, Suðurgötu 51, Siglufirði, lést fimmtudaginn 18. september. Jónas M. Lárusson, Sóltúni 2, Reykjavík, lést þriðjudaginn 23. september. Þorsteinn Axelsson, Teigaseli 3, Reykja- vík, lést sunnudaginn 21. september. Gróa Þorvarðardóttir frá Bakka, Kjalar- nesi, lést sunnudaginn 14. september. Útförin fór fram í kyrrþey. Sigþrúður Albertsdóttir lést sunnudag- inn 7. september. Útförin fór fram í kyrr- þey. Ég hef verið að skrifa þessa bókí mörg ár en það má segja að ég hafi einkum einbeitt mér að því síðustu fimm árin,“ segir Erla Stefánsdóttir sjáandi sem sendir frá sér bók um líf sitt og þann heim sem hún hefur lifað í og er öðrum að mestu hulinn. „Bókin fjallar einnig um það sem ég hef verið að kenna í gegnum árin,“ segir hún. Samhliða bókaútgáfunni ætlar Erla að koma sér fyrir að Ingólfs- stræti 8, þar sem félagsskapurinn Lífsýn hefur aðstöðu, og taka á móti fólki. „Guð var mér svo góð- ur að gefa mér augu sem sjá meira en almennt gerist. Ég ætla að miðla því til annarra, hjálpa fólki að sjá hlutina í öðru ljósi, og hlusta og sjá með hjartanu. Ég gef líka góð ráð, skyggnist aðeins inn í framtíðina og leiðbeini þeim sem eru í vanda með hvaða stefnu þeir eigi að taka í lífinu,“ segir Erla, sem verður að njóta nærveru fólks til að geta sjá. „Ég hef stund- um sagt að guð hafi gefið mér fullan poka af fræjum sem mér hefur verið falið að sá,“ segir Erla, sem ekki þekkir fólk í sjón- varpi. Hún bætir við að erfitt sé að fara með henni í bíó því hún rugli öllum saman og sé sein að átta sig á hver er hvað. Í bókabúðinni Ljós og líf við Ingólfsstræti, þar sem Erla er með aðstöðu, rekur einnig Bjarni Sveinbjörnsson bókaverslunina Ljós og líf. „Um er að ræða nokk- urs konar miðstöð þeirra sem miðla á svipuðum nótum og ég. Þar verða fyrirlestrar og fundir auk þess sem ég tek fólk í einka- tíma,“ segir Erla. „Þetta eru nokk- urs konar kaflaskil hjá mér að fara á annan stað og ég hlakka mjög til. Ég byrja þann 8. október og þangað er hægt að hringja til að panta tíma,“ segir hún en um þessar mundir er mikið að gera hjá Erlu við að leggja lokahönd á bókina sem kemur út síðar í haust. ■ Að handan ERLA STEFÁNSDÓTTIR ■ er að senda frá sér bók um líf sitt og starf. Hjá henni eru kaflaskil um þessar mundir því hún er að koma sér fyrir að Ingólfsstræti 8 þar sem hún tekur meðal annars fólk í einkatíma. Tímaritið Heima er bezt, semkomið hefur út í liðlega fimmtíu ár, fæst nú í fyrsta sinn í lausasölu. Guðjón Baldvinsson ritstjóri segir blaðið hafa komið fyrst út árið 1951 og verið mjög vel tekið. „Það hefur alla tíð verið eingöngu selt í áskrift og meirihluti áskrifenda búið á landabyggðinni. Þrátt fyrir það er aukning á lestri þess á höfuð- borgarsvæðinu og við viljum koma til móts við þá sem ekki sjá sér hag í að kaupa blaðið í áskrift en vilja eigi að síður kynna sér efni þess,“ segir Guðjón. Guðjón hefur ritstýrt Heima er bezt í nærri ellefu ár en segir ekki óvanalegt að ritstjórar séu lengi í starfi. Steindór Steindórs- son hafi til að mynda verið við stjórnvölinn í tæp fjörutíu ár. „Hann segir ekki miklar breyt- ingar hafa orðið á þessum árum og lesendahópinn mjög tryggan. „Við höldum okkur alltaf á þess- um þjóðlegu nótum og ekki síður eins og það var. Í því er alltaf eitt meginviðtal og ekki endilega við þekkta einstaklinga heldur ósköp venjulegt fólk. Í blaðinu rifjar fólk gjarnan upp liðna tíð enda er það frá upphafi orðið geysilegt heimildarsafn um þjóðlífið á liðnum árum.“ Guðjón segir forsíðuviðtölin orðin hátt í fimmhundruð frá fyrstu tíð. „Þriðjungur lesenda okkar er af landsbyggðinni en þeim er að fjölgi á höfuðborgar- svæðinu.“ Dæmi eru um að blaðið gangi í erfðir. „Ég fékk eitt sinn bréf frá áskrifanda úti á landi sem taldi að það væri hluti af sveitarómantíkinni að kaupa Heima er bezt, eiga fingra- vettlinga og aka um á Land Rover jeppa og hann ákvað að halda sig við það,“ segir ritstjóri Heima er bezt, sem þrátt fyrir breytingar á högum fólks hefur lítið breyst á þessum fimmtíu árum. ■ WILL SMITH Bandaríski leikarinn Will Smith er 35 ára í dag. 25. september ■ Þetta gerðist 1932 fæddist kanadíski píanóleikarinn Glenn Gould. 1951 fæddist spænski kvikmyndaleik- stjórinn Pedro Almadovar. 1951 var lagið Come on-a My House með Rosemary Clooney efst á vinsældalistum í Bandaríkjunum. 1981 varð Sandra Day O’Connor fyrst kvenna dómari við Hæstarétt Bandaríkjanna. 1983 brutust 38 fangar út úr hinu rammgerða Maze fangelsi á Norður-Írlandi. 1992 komst dómari í Flórída í Banda- ríkjunum að þeirri niðurstöðu að börn gætu fengið lögskilnað frá foreldrum sínum. 2001 slitu stjórnvöld í Sádi-Arabíu tengsl sín við Talibanastjórnina í Afganistan. UNGMENNI Í ÓVINVEITTUM HEIMI ■ Mörg helstu vígi aðskilnaðar- stefnunnar í Bandaríkjunum féllu á sjötta áratug síðustu aldar. 25. september 1957 Land Rover og fingravettlingar HEIMA ER BEZT Það kom fyrst út 1951 og hefur lítið breyst síðan. GUÐJÓN BALDVINSSON RITSTJÓRI Hann hefur ritstýrt Heima er bezt í rúm ellefu ár en það er ekki óvana- legt að menn séu lengi í starfi við blaðið. Guð gaf mér fullan poka af fræjum ERLA STEFÁNSDÓTTIR SJÁANDI Hún þarf að hitta fólk augliti til auglits til að geta séð, henni dugar ekki að tala við fólk í síma eða horfa á það af sjónvarpsskjá. CATHERINE ZETA-JONES Óskarsverðlaunaleikkonan Catherine Zeta- Jones á afmæli á sama degi og hljómsveit- in Sálin hans Jóns míns. Hún er þó örlítið eldri, fædd árið 1969, og fagnar því 34 ára afmæli sínu í dag. ■ Minningarathöfn 11.00 Kristinn Friðbjörn Ásgeirsson (Dengsi), Hringbraut 128c, Kefla- vík, lést sunnudaginn 21. septem- ber. Minningarathöfn verður hald- in í Keflavíkurkirkju. Þurftu herfylgd í skólann ■ Tilkynningar Fréttablaðið býður lesendum aðsenda inn tilkynningar um dán- arfregnir, jarðarfarir, afmæli eða aðra stórviðburði. Tekið er á móti tilkynningum á tölvupóstfangið: tilkynningar@frettabladid.is. Athugið að upplýsingar þurfa að vera ítarlegar og helst tæmandi. Tímamót HEIMA ER BEZT ■ Tímaritið Heima er bezt hefur komið út í liðlega fimmtíu ár. Það hefur lítið breyst og á sér dyggan lesendahóp, einkum á landsbyggðinni. Nú gefst mönnum kostur á að kaupa það í lausasölu í fyrsta sinn. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.