Fréttablaðið - 25.09.2003, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 25.09.2003, Blaðsíða 38
Hrósið 38 25. september 2003 FIMMTUDAGUR Sigurður G. Guðjónsson, forstjóriNorðurljósa, hefur samið við skattayfirvöld um að hætta að veita starfsfólki sínu fría áskrift af miðl- um fyrirtækisins. Hefur það verið siður um árabil en nú verða starfs- mennirnir að greiða skatt af þess- um hlunnindum: „Ég hef reynt að mótmæla þessu og tókst að halda þessu svona í þrjú ár. En þá var ég krafinn um lista yfir alla starfsmenn fyrirtækisins sex ár aftur í tímann og átti að fara að skattleggja þá. Þá semur mað- ur,“ segir Sigurður. Hjá Ríkisútvarpinu fá starfs- menn einnig frí afnotagjöld eftir ákveðinn tíma í starfi: „“Eftir þriggja ára starf fá starfsmenn starfshlunnindi sem nema afnota- gjöldunum en borga skatt af þeim. Þannig hefur þetta verið alla tíð og staðfest í bréfi frá menntamála- ráðuneytinu frá árinu 1979,“ segir Bjarni Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Ríkissjónvarpsins. ■ Áskrift FJÖLMIÐLAR ■ Skattayfirvöld hafa lagt til atlögu við fría áskrift starfsmanna Norðurljósa að miðlum fyrirtækisins – og náð sínu fram. ...fær Kári Stefánsson fyrir að finna erfðavísi sem gagnast í bar- áttunni gegn heilablóðfalli og hækka þar með gengi hlutabréfa í fyrirtæki sínu. Fréttiraf fólki Skatturinn bannar fría áskrift Ef ég ætti eina ósk myndi égóska mér þess að ég kynni öll tungumál heimsins,“ segir Jó- hanna Vilhjálmsdóttir, sjónvarps- stjarna í Íslandi í dag. „Og svo langar mig líka að flytja til út- landa.“ ■ Leiðrétting Að gefnu tilefni skal tekið fram að stöðugleiki getur þýtt stöðnun. SIGURÐUR G. GUÐJÓNSSON Átti að leggja fram lista með nöfnum starfsmanna sex ár aftur í tímann. BJARNI GUÐMUNDSSON Engin afnotagjöld eftir þrjú ár í starfi en hlunnindi skattlögð. Það er altalað hér fyrir vestanað þegar aflakóngar fara í land snúa þeir sér að berjatínslu af þvílíkum krafti að þeir verða berjakóngar,“ segir Guðmundur Einarsson, aflakóngur í Bolung- arvík, en hann aflaði á nýliðnu fiskveiðiári mest allra smábáta hérlendis, 849 tonna í 262 róðr- um. Þykir fiskirí Guðmundar með eindæmum og hann er einnig liðtækur í berjatínslu: „Við hjónin förum á hverju ári í Jökulfirðina til að slappa af og tínum þá ber. Þar æfi ég mig í berjatínslu fyrir efri árin þeg- ar ég verð kominn í land,“ segir Guðmundur, sem vill helst ekk- ert annað en aðalbláber. „Ég tíni ekki annað og bý til sultur úr þeim. Afganginn set ég svo í frystinn og geymi til að hafa með sunnudagssteikinni. Það jafnast ekkert á við aðalbláber,“ segir Guðmundur aflakóngur og verðandi berjakóngur í Bolung- arvík. ■ Aflakóngar verða berjakóngar AFLAKÓNGUR Í BERJAMÓ Guðmundur Einarsson ásamt Ásgerði Jóns- dóttur, eiginkonu sinni, við berjatínslu á Hesteyri í Jökulfjörðum. Íslendingar hafa enn ekki kveiktá nýjasta æðinu; skyndihópun eða flash-mob eins og það heitir á ensku. Flash-mob byggist á því að fólk hópast saman á tilteknum stað á tilteknum tíma og hefur í frammi ákveðna hegðun. Hvatt er til fund- arins á Netinu og oftar en ekki þekkist fólkið ekki en sameinast á þennan hátt í gjörningi sem sting- ur í stúf við hið venjulega og trufl- ar hefðbundið líf á þeim stað sem fyrir valinu verður. Hópurinn leys- ist svo upp jafn skyndilega og hann birtist og helst áður en lög- reglan getur gripið í taumana. „Þarna sýnist mér fólk vera að brjóta upp óskráðar reglur og gera þær þar með sýnilegar,“ segir Björk Þorgeirsdóttir, félagsfræði- kennari við Kvennaskólann í Reykjavík. „Það segir sig sjálft að þetta getur orðið ódýrt og öflugt valdatæki þegar og ef því verður þannig beitt.“ Skyndihópun er í raun listræn upplifun margra sem snertir ekki færri. Fyrir skömmu safnaðist hópur fólks saman í anddyri hótels í New York, tók sér stöðu og byrj- aði að klappa í nokkrar mínútur. Svo leystist hópurinn upp. Annar kom saman fyrir framan gælu- dýrabúð og fylgdist þar með eðlu í búðarglugganum. Allt í einu fór hópurinn að skrækja og skrækti í eina mínútu. Svo burt. Á fjölsóttu torgi kom hópur saman, tók af sér vinstri skóinn og barði í gangstétt- ina um tíma og hvarf svo á braut eins og ekkert hefði í skorist. Svo mætti lengi telja. Hægt er að líta á skyndihópun sem listræna upplifun þeirra sem þátt taka og í raun væri hún óhugs- andi án Netsins. Enn hefur hún ekki verið reynd hér á landi en möguleikarnir eru óþrjótandi eins og liggur í augum uppi: „Þarna fer saman forvitni og jákvæð sýniþörf og líka þörf mannsins fyrir að láta til sín taka,“ segir Björk í Kvenna- skólanum. ■ FUNDARBOÐ Á NETINU Fólk hvatt til að mæta við Karlskirkju í Vínarborg með brauðhleif. Staðurinn merktur með rauðu. Flash-mob SKYNDIHÓPUN ■ Netið hefur getið af sér nýja gerð hóphegðunar sem ryður sér nú til rúms víða um heim. Skyndihópun eins og eldur í sinu BJÖRK ÞORGEIRSDÓTTIR Getur orðið ódýrt og öflugt valdatæki þegar og ef því verð- ur þannig beitt. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M Veitingarnar á stjórnarfundiKR-sport á þriðjudag, fyrsta fundi eftir að KR-liðið skíttapaði fyrir FH í lokaleik Landsbanka- deildar karla í knatt- spyrnu, komu ekki á óvart. Skipuleggj- anda fundar- ins þótti við hæfi, svona í ljósi úrslita leiksins, að bjóða upp á 7- Up, enda lauk leiknum með sigri FH, 7-0. Lárétt: 1 ílát, 6 verkfæri, 7 staður á Austur- landi, 8 í röð, 9 kaldi, 11 pota, 13 einkennis- stafir, 14 fönn, 13 elskar, 17 inganginn. Lóðrétt: 2 staður í Eyjafirði, 3 fríðindi, 4 agn- ir, 5 verkfæri, 7 ástarguð, 10 fela, 12 sérhljóð- ar, 15 tvíhljóði, 16 ónefndur. LAUSN: Lárétt: 1skrína,6tól,7eiðar, 8rs,9kul, 11ota,13re,14snæ,15ann,17öskuna. Lóðrétt: 2kristnes,3ítak,4nórur, 5al, 9eros,10leyna,12aæ,15au,16nn. 1 6 7 8 9 10 14 15 17 16 2 3 4 131211 5 ■ Veistu svarið? Svör við spurningum á bls. 6 1. 2. 3. Tæpar sjö milljónir króna. Mýrdalsjökli. Peter Hill-Wood. ■ Eina ósk Frá Svalbarða Nú erum við ansi súr- súrhvalur - súrhvalasulta- súrnautasviðasulta sólþurrkaður saltfiskur - marineraður saltifskur- saltfisk- og fiskibollur með hvítlaukssósu siginn fiskur - þorsklifrarpaté - niðursoðin þorskalifur - hvalkjötspiparsteikur Athugið! Hjá okkur er ekki bara mánudagstilboð á ýsuflökum. Sama verð síðastliðna 3 mánuði kr 590kg Verslanir Svalbarða Framnesvegur 44 og Reykjavíkurvegi 68 sími 551 2783 sími 564 2783

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.