Fréttablaðið - 25.09.2003, Síða 4
4 25. september 2003 FIMMTUDAGUR
Fórstu í sauðfjárréttir?
Spurning dagsins í dag:
Verður morðingi Önnu Lindh
sakfelldur?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
86,3%
13,7%
Nei
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
■ Menntamál
■ Bandaríkin
■ Lögreglufréttir
■ Tímarit
Unglingar í Breiðholti sjá ekki fyrir sér að um róist:
Einhver verður drepinn á endanum
BREIÐHOLT Unglingar búsettir í
Seljahverfi sem Fréttablaðið
ræddi við í gær um líkamsárásir,
húsbrot og átök í Efra Breiðholti
undanfarna daga lýstu versnandi
ástandi með auknum vopnaburði.
Strákarnir sögðu að það myndi
enda með því að einhver yrði
drepinn, hvort sem það yrði fyrir
slysni eða af ásetningi. Frá því á
laugardagsnótt hefur þrisvar
komið til átaka milli innfæddra Ís-
lendinga og Íslendinga sem eru af
erlendu bergi brotnir.
Drengirnir sögðu vopnaburð
unglinga fara stöðugt vaxandi og
að vopnin væru alltaf að verða öfl-
ugri. Slagsmál á milli hópa af ólík-
um uppruna væru mjög algeng og
væru að aukast ef eitthvað væri.
Flestir virtust unglingarnir sam-
mála um að þeir myndu hugsa sig
um tvisvar áður en þeir myndu
ganga einir um hverfið á kvöldin
vegna árásarhættu. Vildu þeir
meina að ekki skipti máli hvað
kvöld vikunnar væri, alltaf væri
hættan fyrir hendi. ■
ENGINN STYRKUR Borgarráð
synjaði í gær fyrirtækinu Des-
form um styrk til reksturs kart-
öflugeymslunnar í Ártúnsbrekku.
Desform segist nú verða að loka
geymslunni og rífa innrétting-
arnar upprunalegu.
BÍLAKJALLARI VIÐ LAUGAVEG
Borgarráð frestaði í gær af-
greiðslu máls er snýr að byggingu
bílakjallara við Laugaveg 86 til 94,
þar sem Stjörnubíó var til húsa.
SAMSTARF VIÐ UMFÍ Sjálfstæðis-
menn í borgarráði hafa lagt fram
tillögu þar sem því er beint til
vinnuhóps um þjónustu- og
menningarmiðstöðvar í Grafar-
vogi að hópurinn ræði við forystu
UMFÍ um hugsanlega aðkomu
UMFÍ að miðstöðinni.
HEIMILI JAFNAÐ VIÐ JÖRÐU
Að sögn vitna eyðilagði ísraelski herinn tvö
hús þegar gert var áhlaup á Rafah-flótta-
mannabúðirnar.
Árás á flóttamannabúðir:
Sextán ára
piltur féll
GAZA-BORG, AP Sextán ára gamall
palestínskur drengur féll í skotbar-
daga milli vopnaðra Palestínumanna
og ísraelskra hersveita í Rafah-
flóttamannabúðunum á Gaza-
ströndinni. Á annan tug Palestínu-
manna særðist í átökunum.
Ísraelski herinn gerði áhlaup á
búðirnar með hátt í 20 skriðdreka
og jarðýtur til að leita að göngum
sem notuð væru til að smygla vopn-
um frá Egyptalandi. Nokkrar fjöl-
skyldur misstu heimili sín þegar tvö
hús voru eyðilögð. ■
Nágranni segir ugg
í íbúum:
Gengu hratt
til verks
HÚSBROT Nágranni fjölskyldunnar
sem ruðst var inn til á mánudags-
kvöld sagði árásina hafa gengið
mjög hratt fyrir sig. Hópurinn
hafi komist inn í fjölbýlishúsið á
fölskum forsendum og þust beint
að íbúðinni með berserksgangi.
Nágranninn fór fram til að
byrja með en þegar hann sá
hversu alvarlegt ástandið væri
dreif hann sig aftur inn og hringdi
á lögregluna. Hann segir árásina
og skemmdarverkin aðeins hafa
tekið nokkrar mínútur. Eftir það
hafi hann farið til að athuga með
heimilisfólkið. Þar var fólk í
miklu uppnámi og íbúðin algjör-
lega í rúst. Hann segir sér vera
mjög brugðið og ekki vilja upplifa
slíkt aftur. ■
UPPFYLLIR ÁKVÆÐI SAMNINGS
Háskólinn í Reykjavík uppfyllir
ákvæði rekstrarsamnings síns
við stjórnvöld að mati KPMG,
sem gerði úttekt á stjórnun skól-
ans. Þar kemur fram að rekstur
skólans sé í góðu horfi, skipulag
fastmótað og skilvirkt. Formlegt
gæðakerfi hefur ekki verið tekið
upp en það verður væntanlega
gert áður en samningurinn við
stjórnvöld rennur út.
ÁKVÆÐI UPPFYLLT EÐA Í
VINNSLU Viðskiptaháskólinn á
Bifröst uppfyllir ákvæði rekstrar-
samnings við stjórnvöld í öllum
meginþáttum að mati IMG
Deloitte. Verkefni sem ekki hafa
verið uppfyllt eru í vinnslu, þeirra
á meðal formlegt gæðakerfi,
sjálfsmat og þróun mælikvarða á
árangur. Þá hefur skólinn látið
Rannsóknarstofnun Kennarahá-
skóla Íslands athuga áhrif mikillar
fjölgunar nemenda á innra starf.
Lítið breytist til batnaðar hjá Impregilo:
Þolinmæðin á þrotum
ATVINNUMÁL „Við erum orðnir
langþreyttir á aðgerðaleysinu hjá
forsvarsmönnum Impregilo,“ seg-
ir Þorbjörn Guðmundsson, for-
maður Samráðsnefndar verka-
lýðsfélaganna, um viðbrögð ít-
alska verktakans við kröfum fé-
laganna.
„Við höfum nú um langt skeið
gefið þessum mönnum frest eftir
frest í þeirri von að eitthvað
breytist til batnaðar en nú er þol-
inmæðin á þrotum. Verkalýðsfor-
ystan vill ekkert frekar en að allt
gangi eins smurt við Kárahnjúka
og hægt er og það er ekki hægt að
segja að við höfum sýnt mikla
óþolinmæði. Þvert á móti, hvað
eftir annað, sýnum við Impregilo-
mönnum mikið svigrúm en þeir
virðast ekki hafa áhuga á að not-
færa sér það.“
Þorbjörn kveðst einnig afar
vonsvikinn með íslensk stjórn-
völd. „Miðað við umfang þessa
verkefnis og stærð deilunnar sem
við stöndum frammi fyrir er ótrú-
legt að fyrst núna, mörgum vikum
eftir að deilur komu fyrst upp,
skuli Vinnumálastofnun loks farin
að skoða ásakanir okkar.“ ■
FRÁ KÁRAHNJÚKUM
Verkalýðsfélögin hafa fengið
nóg af aðgerðaleysi Impregilo.
Félagsmálaráðherra:
Niðurstaða
fyrir helgi
ATVINNUMÁL „Það hefur ekkert nýtt
komið fram síðustu daga,“ sagði
Árni Magnússon félagsmálaráð-
herra um þær
deilur sem standa
yfir vegna kjara-
mála starfs-
manna Impregilo
við Kárahnjúka.
„Ég fól Vinnu-
málastofnun að
kanna málið og
n i ð u r s t ö ð u r
hennar ættu að
liggja fyrir fljót-
lega, jafnvel fyr-
ir helgina. Fyrr
en þær eru komnar er ómögulegt
að vera með miklar yfirlýsingar
varðandi kjör starfsmanna verk-
takans.“
Össur Skarphéðinsson, formað-
ur Samfylkingar, hefur lýst því
yfir að Árni hljóti að vera hræddur
við verktakann ítalska, vegna þess
hve lítið ráðherrann hefur haft sig
í frammi vegna deilnanna.
„Það kemur ekkert á óvart að
Össur skuli kalla slíkt. Hann fær
sömu svör og aðrir, að málið er í
skoðun og fyrr verður ekkert gefið
upp.“ ■
ÓKEYPIS BARNABLÖÐ Útgáfa
tímaritanna Æskunnar og Smells
hyggst hætta sölu blaðanna og
dreifa þeim ókeypis samkvæmt
erindi félagsins til fræðsluráðs
Hafnarfjarðar. Útgáfan óskar eft-
ir því að grunnskólar Hafnar-
fjarðar greiði útgáfunni engu að
síður áfram sömu upphæð og þeir
hafa greitt í áskrift. Ráðið vísaði
óskinni til hvers skóla fyrir sig.
ÁRNI
MAGNÚSSON
Niðurstöður úr
rannsókn Vinnu-
málastofnunar ligg-
ja fyrir fljótlega.
■ Borgarmál
STJÓRNSÝSLA Fjögur utankjörfund-
aratkvæði frá því í alþingiskosn-
ingunum í maí fundust í gær í um-
slagi á Reykjavíkurflugvelli.
„Það var hringt í mig frá Flug-
félagi Íslands og mér sagt að þar
væri umslag
merkt mér,“ seg-
ir Guðmundur
Jónsson, kosn-
i n g a s t j ó r i
F r j á l s l y n d a
flokksins.
Að sögn Guð-
nýjar Pálsdóttur
í afgreiðslu
Flugfélags Ís-
lands er algengt
að farþegar biðji
starfsfólk afgreiðslunnar fyrir
ýmsar sendingar sem aðrir eigi að
sækja. Svo virðist sem einhver
hafi lagt inn umslagið til Guð-
mundar í maí. Sendandinn hafi á
hinn bóginn ekki gert Guðmundi
viðvart. Því hafi málið farið
svona.
Eftir kosningarnar var kröfu
Frjálslynda flokksins um endur-
talingu hafnað. Aðeins munaði 13
atkvæðum á oddvita Frjálslyndra
í Reykjavík Norður og öðrum
manni á lista Framsóknarflokks-
ins í kjördæminu, Árna Magnús-
syni, sem nú er félagsmálaráð-
herra.
Guðmundur segir að þar sem
aðeins sé um fjögur atkvæði að
ræða, sem að auki séu frá fólki
með lögheimili í jafn mörgum
kjördæmum, breyti þau engu um
úrslitin. Þau varpi hins vegar ljósi
á hversu gölluð kosningalöggjöfin
sé varðandi utankjörfundarat-
kvæði:
„Fólk þarf sjálft að koma sínu
atkvæði til kjörstjórnar og gerir
það eftir mismunandi áreiðanleg-
um leiðum. Það eru endalausir
möguleikar á að atkvæði misfarist
eða að þeim sé hreinlega kippt úr
umferð af óprúttnu fólki. Þetta er
algerlega óviðunandi,“ segir Guð-
mundur.
Alþingi kemur saman að nýju á
miðvikudag. „Er þetta rétta Al-
þingið eða eru einhver utankjör-
fundaratkvæði uppi á Vatna-
jökli?“ spyr kosningastjórinn.
Þegar Guðmundur hafði sótt
atkvæðin fjögur fór hann sem leið
lá í dómsmálaráðuneytið. „Þó
þessi atkvæði skipti ekki máli
lengur var það borgaraleg skylda
mín að koma þeim í hendur ráð-
herra,“ segir hann.
Björn Bjarnason dómsmála-
ráðherra brást vel við hinni
óvæntu heimsókn:
„Björn ætlaði að kanna hvað
gera á við þessa seðla. Líklegast
færu þeir í eyðingu enda voru þeir
ekki orðnir að eiginlegum atkvæð-
um. Þá sagðist hann vilja láta líta
betur á kosningalögin og athuga
hvernig hægt væri að virkja
sýslumannsembættin sem þjón-
ustuaðila til að koma slíkum at-
kvæðum betur til skila,“ segir
Guðmundur.
gar@frettabladid.is
Týndir kjörseðlar á
Reykjavíkurflugvelli
Fjögur utankjörfundaratkvæði frá alþingiskosningunum fundust á Reykja-
víkurflugvelli í gær. Þau voru í umslagi merktu kosningastjóra Frjálslynda
flokksins, sem segir meðferð atkvæða óviðunandi.
„Er þetta
rétta Alþingið
eða eru ein-
hver utankjör-
fundarat-
kvæði uppi á
Vatnajökli?
GUÐMUNDUR JÓNSSON
Kosningastjóri Frjálslynda flokksins náði í gær í fjögur utankjörfundaratkvæði sem lágu í
umslagi merktu honum í afgreiðslu Flugfélags Íslands á Reykjavíkurflugvelli. Atkvæðin
hafa sennilega verið á Reykjavíkurflugvelli síðan fyrir alþingiskosningarnar í maí.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
HLYNUR, SINDRI, KALLI, HAUKUR OG FREYSTEINN
Strákarnir sögðu átök á milli kynþátta vera algeng og að vopnin yrðu allaf hættulegri.
FORELDRAR FANGELSAÐIR
Bandarísk hjón sem viður-
kenndu að hafa logið til um að
dóttir þeirra væri með hvítblæði
og þáðu fjárframlög og gjafir að
verðmæti hundruða þúsunda
króna hafa verið dæmd til fang-
elsisvistar. Móðir stúlkunnar var
dæmd í sex og hálfs árs fangelsi
en faðir hennar í tæpra fimm
ára fangelsi. Dóttirin varð fyrir
sálrænu áfalli og hefur verið
komið í fóstur.
BANKARÆNINGINN ÓFUNDINN
Bankaræninginn sem framdi
vopnað rán í Íslandsbanka í Lóu-
hólum fyrir viku er enn ófundinn.
Engar nýjar fréttir var að hafa af
rannsókninni þegar rætt var við
lögreglu í gær.
BÍLL VALT INNANBÆJAR
Jeppabifreið valt á Hlíðarvegi á
Akureyri seinnipartinn í gær.
Engin slys urðu á fólki.