Fréttablaðið - 25.09.2003, Síða 6
6 25. september 2003 FIMMTUDAGUR
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 77,01 -0,26%
Sterlingspund 127,5 -0,30%
Dönsk króna 11,89 -0,39%
Evra 88,34 -0,39%
Gengisvístala krónu 125,76 0,09%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 427
Velta 6.378 milljónir
ICEX-15 1.799 -0,33%
Mestu viðskiptin
Sjóvá-Alm. tryggingar hf. 379.976.939
Íslandsbanki hf. 161.338.583
Kaupþing Búnaðarbanki hf. 153.587.682
Eimskipafélag Íslands hf. 140.992.891
Pharmaco hf. 97.005.498
Mesta hækkun
AFL fjárfestingarfélag hf. 3,39%
Líf hf. 2,08%
Marel hf. 1,92%
Flugleiðir hf. 1,89%
Kögun hf. 1,24%
Mesta lækkun
Hampiðjan hf. -5,45%
Samherji hf. -5,32%
Landsbanki Íslands hf. -2,83%
Síldarvinnslan hf. -2,38%
Eimskipafélag Íslands hf. -1,39%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ* 9.464,2 -1,2%
Nsdaq* 1.863,8 -2,0%
FTSE 4.236,4 0,3%
DAX 3.316,6 -2,8%
NK50 1.336,8 -0,0%
S&P* 1.013,4 -1,5%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Veistusvarið?
1Hversu miklar bætur eiga tyrkneskstjórnvöld að greiða Sophiu Hansen?
2Í hvaða jökli varð vart við skjálftahr-inu á mánudagskvöld?
3Hvað heitir stjórnarformaðurknattspyrnufélagsins Arsenal?
Svörin eru á bls. 38
VIÐSKIPTI Einar Gautur Stein-
grímsson, tilsjónarmaður Kaupfé-
lags Árnesinga (KÁ), segist ekki
vera farinn að skoða nákvæmlega
ýmsar fjárfestingar KÁ í öðrum
félögum. Það verði eitt af síðustu
verkum hans áður en beðið verði
um nauðasamning að fara ofan í
slík fortíðarmál:
„En ég get sagt að mér þykja
ákvarðanir um fjárfestingar hafa
verið misvitrar. Að mínu viti var
veitt fé í mörg fyrirtæki af fyrir-
hyggjuleysi,“ segir hann.
Einar segir það vera vilja veð-
hafa í Hótel Selfossi að rekstur
hótelsins stöðvist ekki.
Það var dótturfélag KÁ, Brú
ehf., sem rak Hótel Selfoss. Skuld-
ir félagsins nema um einum millj-
arði króna. Það er í gjaldþrota-
skiptum. Að sögn Einars lýstu for-
svarsmenn Brúar og þeir kröfu-
hafar sem eiga veð í hótelbygg-
ingunni að kaupfélagið mætti
vera leigulaust í hótelinu að
minnsta kosti til 1. desember:
„Það eina sem menn eru
ákveðnir í er að koma í veg fyrir
þann skaða sem verður ef rekstur
hótelsins stöðvast. Síðan ræðst
það af því hver kaupir hvert fram-
haldið verður,“ segir tilsjónar-
maðurinn. ■
Mötuneytisfólk
lagði forstjóra
Þrír ríkisforstjórar sömdu við Síam um rekstur mötuneytis. Riftu 10
dögum seinna og efndu til útboðs. Ríkið dæmt til að greiða bætur.
Krafan var 7,4 milljónir en bæturnar 360 þúsund krónur
RÍKISFYRIRTÆKI Héraðsdómur
Reykjavíkur hefur dæmt Rekstr-
arfélagið Borgartúni 21 til að
greiða bætur til fólks sem tekið
hafði að sér að reka mötuneyti
fyrir félagið samkvæmt samn-
ingi.
Síam stefndi
Rekstrarfélaginu
Borgartúni 21 til
skaðabóta vegna
þess að örfáum
dögum eftir að
R e k s t a r f é l a g i ð
gerði samning við Síam um rekst-
ur mötuneytis var honum rift.
Skýringin var sú að bjóða hefði átt
út rekstur mötuneytisins í stað
þess að semja beint. Síam hætti
rekstri mötuneytisins um mán-
aðamótin maí-júní 2001 eftir að-
eins tveggja mánaða rekstur.
Upphaf málsins er það að í
mars 2001 komu forsvarsmenn
Rekstrarfélagsins að máli við eig-
endur Síams og óskuðu eftir að
þeir tækju að sér rekstur mötu-
neytisins en báðir eigendur Síams
höfðu áður starfað í mötuneytinu.
Fjöldi ríkisfyrirtækja á aðild að
mötuneytinu. Þar má nefna Íbúða-
lánasjóð, Ríkissáttasemjara,
Lánasjóð íslenskra námsmanna,
Barnaverndarstofu, Löggildingar-
stofu, Yfirskattanefnd og Fast-
eignamat ríkisins. Á umræddum
tíma komu fram fyrir hönd
Rekstrarfélagsins forstjórarnir
Guðmundur Bjarnason frá Íbúða-
lánasjóði, Gylfi Gautur Pétursson,
þáverandi forstjóri Löggildingar-
stofu, og Haukur Ingibergsson,
forstjóri Fasteignamats ríkisins. Í
byrjun apríl 2001 var málið tekið
fyrir á aðalfundi rekstrarfélags-
ins og samþykkt að ganga til
samninga við Síam ehf. um rekst-
ur mötuneytisins. Meðal annars
var samið um að fólkið fengi 180
þúsund krónur á mánuði í við-
verukostnað. Fram kom í máls-
skjölum að Steingrímur Ari Ara-
son, fyrrum starfsmaður Einka-
væðingarnefndar, lét bóka mót-
mæli og taldi að reksturinn ætti
að fara í útboð. Stjórn félagsins
ákvað í framhaldinu að kanna
málið nánar. Rætt var við Ríkis-
kaup og fulltrúa fjármálaráðu-
neytisins og niðurstaðan varð sú
að mötuneytið ætti að fara í útboð.
Síamsfólki var kynnt þessi
breytta afstaða með bréfi 30. apr-
íl þar sem Rekstrarfélagið sagði
upp nýgerðum verksamningi með
þriggja mánaða uppsagnarfresti.
Síam stefndi Rekstrarfélaginu
til greiðslu bóta vegna samnings-
rofanna og krafðist 7,4 milljóna
króna í bætur þar sem aðstand-
endur félagsins hefðu talið að um
viðskiptasamband hefði verið að
ræða til lengri tíma. Þá er þess
getið að málið hafi haft mikla
röskun í för með sér og þess er
getið að Síamsfólk hafi borið virð-
ingu fyrir forstjórunum þremur
og treyst þeim. Krafan var reikn-
uð út frá 15 mánaða tekjutapi.
Héraðsdómur féllst ekki á þær
bætur en gerði Rekstrarfélaginu
að greiða 360 þúsund krónur
vegna tveggja mánaða viðveru.
rt@frettabladid.is
ARIEL SHARON
Hæstiréttur í Belgíu hefur vísað frá stríðs-
glæpamáli sem höfðað var á hendur ísra-
elska forsætisráðherranum.
Hæstiréttur í Belgíu:
Málum
vísað frá
BELGÍA Hæstiréttur í Belgíu hefur
vísað frá stríðsglæpamálum sem
höfðuð voru á hendur George W.
Bush Bandaríkjaforseta, Colin
Powell utanríkisráðherra og
Ariel Sharon, forsætisráðherra
Ísrael.
Mennirnir voru ákærðir á
grundvelli belgískra laga sem
heimiluðu málsóknir á hendur er-
lendum ríkisborgurum vegna
stríðsglæpa. Í kjölfar breytinga
sem gerðar voru á lögunum í júlí
komst hæstiréttur að þeirri nið-
urstöðu að ekki væri lengur
heimilt að sækja Bush, Powell og
Sharon til saka.
Ákærurnar á hendur Bush og
Powell tengdust Persaflóastríð-
inu en Sharon var sóttur til saka
fyrir árásir á Palestínumenn í
Líbanon árið 1982. ■
Veðrið
Alla daga
Alltaf!
Nánari uppl‡singar á og www.raf.is
og www.siminn.is/vefnamskeid flar
sem skráning fer fram.
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I
Y
D
D
A
/
s
ia
.i
s
/
N
M
1
0
3
1
8
Í haust efnir Síminn me› styrk frá Starfsmenntará›i til vefnámskei›s
í tilraunaskyni fyrir almenning um fjarskiptatækni. Markmi›i› er a›
efla flekkingu og skilning almennings á flessu svi›i. Námskei›i› ver›ur
í flremur hlutum og endurteki› flrisvar sinnum, 1. okt. - 1. nóv,
15. okt. - 15. nóv. og 1. nóv - 1. des.:
1. Frá Bell til framtí›ar – sími og gagnaflutningar
2. Í skammstafanaskógi farsímanna
3. Undraheimur sjónvarpsins
Námskei›in n‡tast notendum síma, sjónvarps, Internets og brei›bands,
jafnt starfsmönnum fyrirtækja sem einstaklingum. Námskei›unum er
ætla› a› opna augu flátttakenda fyrir fjölbreyttari og notkun á fleim
tækjum sem til eru á flestum heimilum, skólum og fyrirtækjum.
Ver›: 1.500 kr. á hvern notanda.
Vefnámum fjarskiptatæknina
HÓTEL SELFOSS
Rekstri Hótels Selfoss verður haldið áfram eftir sameiginlega ákvörðun veðhafa í hótelinu
og Kaupfélags Árnesinga, sem fær að vera frítt í húsinu til 1. desember a.m.k.
BORGARTÚN 21
Ríkisforstjórar léku stærstu hlutverkin í
mötuneytismálinu sem lyktaði með því að
fyrirtæki þeirra voru dæmd til að greiða
bætur.
■
Steingrímur Ari
Arason, fyrrum
starfsmaður
Einkavæðingar-
nefndar, lét
bóka mótmæli.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Tilsjónarmaður Kaupfélags Árnesinga:
Fé veitt í fyrirtæki
af fyrirhyggjuleysi