Fréttablaðið - 25.09.2003, Qupperneq 12
12 25. september 2003 FIMMTUDAGUR
■ Leiðrétting
■ Sjávarútvegur
■ Ríkisstjórn
FJÖGURRA DAGA VERKFALL
Grískir leigubílstjórar eru æfir yfir hertum
reglum sem stjórnvöld ætla að setja þeim.
Þeir eru sérstaklega ósáttir við að þurfa að
taka upp nýja gjaldmæla til að prenta
kvittanir fyrir viðskiptunum.
Tilkynnt um trúlofun í dönsku konungsfjölskyldunni:
Friðrik krónprins á
leið í hnapphelduna
DANMÖRK Danska konungsfjöl-
skyldan hefur gefið út formlega
yfirlýsingu þess efnis að Friðrik
krónprins ætli að trúlofast og
ganga að eiga unnustu sína Mary
Elizabeth Donaldson. Móðir hans,
Margrét Þórhildur Danadrottn-
ing, tilkynnir um trúlofunina á
ríkisstjórnarfundi 8. október.
Að sögn Anders Fogh Rasmus-
sen forsætisráðherra hefur ríkis-
stjórnin þegar lagt blessun sína
yfir ráðahaginn. Boðað hefur ver-
ið til blaðamannafundar að lokn-
um ríkisstjórnarfundinum 8. októ-
ber þar sem fjölmiðlar fá tæki-
færi til að hitta krónprinsessuna
tilvonandi.
Stefnt er að því að Friðrik leiði
Mary upp að altarinu í vor. Brúð-
kaupið fer að líkindum fram í
Holmens-kirkju í Kaupmanna-
höfn en nákvæm dagsetning ligg-
ur ekki fyrir að svo stöddu.
Friðrik og Mary hittust fyrst á
Ólympíuleikunum í Sydney í
Ástralíu í september árið 2000.
Tveimur árum síðar flutti Mary
til Kaupmannahafnar og byrjaði
að vinna hjá Microsoft í Vedbæk.
Mary, sem er lögfræðingur að
mennt, á rætur sínar að rekja til
Tasmaníu. Ef fer sem horfir
verður hún fyrsti Ástralinn sem
giftist inn í evrópska konungs-
fjölskyldu. ■
Afbrot ekki alltaf
tengd vímuefnum
VÍMUEFNANEYSLA „Að fremja banka-
rán er ekki það sama og að vera í
vímuefnaneyslu. Flestir vímuefna-
neytendur brjóta ekki lög með
þessum hætti,“ segir Þórarinn
Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi.
Ránum hefur fjölgað mikið og tal-
að um að þau séu ekki síst framin
til að fjármagna vímuefnaneyslu.
Þórir Steingrímsson, rann-
sóknarlögreglumaður í Kópavogi,
sagði í samtali við Fréttablaðið að
fólki þætti sjálfsagt að ræna
banka og bera fyrir sig fíkniefna-
neyslu og bágindi. Hann segir
samfélagið samþykkja þær afsak-
anir. „Persónulega og sem lög-
reglumaður sem vinnur við að
rannsaka svona
mál sættist ég ekki
á slíka skýringu.
Fólkið á ekki svona
bágt. Úrræðin sem
eru til eru ekki not-
uð. Það er ekki ein-
ungis hjálp að fá
hjá hinu opinbera heldur oft ein-
nig hjá fjölskyldunni. Ég er ekki
að vefengja að fólk sé haldið fíkn
en það leitar sér ekki lækninga
eða hjálpar á þennan hátt.“
Þórarinn segir varasamt að
halda að vímuefnaneysla sé alltaf
orsök afbrota. Hann segir að að-
stæður vímuefnafíkla geti þó oft
verið erfiðar og þeir verið svo að-
þrengdir að þeir grípi til örþrifa-
ráða. Hann segir ekki ólíklegt að
margir sem framið hafa rán að
undanförnu séu einstaklingar sem
eru úrræðalitlir og aðþrengdir og
jafnvel sé verið að rukka þá um
fjármuni sem þeir eiga ekki.
Þórarinn segir að ekki megi
alltaf tala um vímuefnaneytend-
ur, afbrotamenn og geðsjúklinga
í sömu andrá. Hins vegar sé það
hræðilegt þegar þetta allt fer
saman í einum einstaklingi. Hann
segir varasamt að tengja vímu-
efnaneyslu öllu sem miður fer í
þjóðfélaginu.
„Stafar okkur hætta af því að
geðheilbrigðismálum er ekki
nægjanlega vel fyrir komið? Er
okkur hætta búin vegna þess að
þjóðfélagið býr til agalítið fólk
eða vegna þessa að vímuefna-
neysla er að aukast í þjóðfélag-
inu?“ segir Þórarinn. Hann segir
þörf fyrir opna umræðu varðandi
þessar spurningar vegna frétta
af ofbeldisverkum eins og til
dæmis frá Svíþjóð að undan-
förnu. „Okkar þjóðfélagsmál eru
ekki frábrugðin því sem er í Sví-
þjóð. Þar hafa verið breytingar á
geðheilbrigðisþjónustunni eins
og hér. Þar er einnig vaxandi
vímuefnaneysla eins og hér.“
hrs@frettabladid.is
HÁSKÓLI ÍSLANDS
Einungis 34% kennara á háskólastigi voru
í fullu starfi eða meira haustið 2002.
Rúmlega 1.700 háskóla-
kennarar á Íslandi:
Konur 16%
prófessora
SKÓLAMÁL Af 188 prófessorum í
skólum á háskólastigi á Íslandi
eru 30 konur eða 16% samkvæmt
samantekt Hagstofu Íslands sem
miðast við marsmánuð árið 2002.
Frá árinu 2000 fjölgaði kvenpró-
fessorum úr 15 í 18.
Alls voru 1.739 starfsmenn við
kennslu í íslenskum háskólum
veturinn 2002 í 998 stöðugildum.
Um 47% kennara voru konur en
53% karlar. Athygli vekur að ein-
ungis 34% kennara á háskólastigi
voru í fullu starfi eða meira. Um
27% kvenna voru í fullu starfi eða
meira.
Auk þess að gegna fleiri pró-
fessorastöðum eru karlmenn
einnig talsvert fleiri í stöðum
rektora og dósenta. Konur eru
hins vegar fleiri meðal lektora og
í sérfræðistörfum hvers konar.
Flestir háskólakennarar eru á
aldrinum 40-49 ára.
Þegar taldir voru allir starfs-
menn við íslenska háskóla kom í
ljós að þeir voru 2.531 í 1.679
stöðugildum. Karlar voru 47% en
konur 53%. Konur eru fjölmenn-
ari í stöðum sem tengjast skrif-
stofustörfum, ráðgjöf, bókasafni
og rekstri húsnæðis. Þar er hlutur
kvenna 75% á móti 25% hlut
karla. ■
■
„Stafar okkur
hætta af því að
geðheilbrigðis-
málum er ekki
nægjanlega vel
fyrir komið?“
Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, segir varasamt að tengja afbrot
alltaf vímuefnaneyslu. Þó séu til einstaklingar sem telja sig ekki hafa
önnur úrræði en að brjóta af sér.
ÞÓRARINN TYRFINGSSON
Þórarinn segir varasamt að tala um afbrot, vímuefnaneyslu og geðsýki í sama orðinu.
Ífrétt um aflamet smábátsinsGuðmundar Einarssonar ÍS
frá Bolungarvík var sagt að
frystitogarinn Júlíus Geir-
mundsson ÍS hefði aflað 3499
tonna á seinasta fiskveiðiári.
Þarna var prentvilla á ferð því
togarinn veiddi 4399 tonn.
Bílsprengja í Írak:
Einn
látinn og
23 slasaðir
BAGDAD, AP Íraskur borgar lést og
að minnsta kosti 23 slösuðust í
sprengingu í Bagdad, höfuðborg
Íraks, í gær. Sprengjan sprakk
þegar eftirlitsbifreið banda-
rískra hermanna ók hjá. Engan
sakaði í eftirlitsbifreiðinni en
tveir strætisvagnar sem óku hjá
gereyðilögðust.
Árásir á ökutæki bandarískra
hermanna hafa aukist til muna að
undanförnu og finnast nær dag-
lega sprengjur í vegköntum í og
við höfuðborgina Bagdad. ■
DAUÐAREFSINGAR BANNAÐAR
MEÐ LÖGUM Ríkisstjórnin fjall-
aði í gær um frumvarp dóms-
málaráðherra sem lagt verður
fyrir Alþingi um breytingu á lög-
um um mannréttindasáttmála
Evrópu. Með samþykki frum-
varpsins verða dauðarefsingar
bannaðar með lögum en slíkt
bann er nú þegar tryggt í stjórn-
arskrá lýðveldisins.
HÆTTULEG SMYGLVARA
Grænu kyrkislöngurnar gengust undir
læknisrannsókn hjá dýralækni í Taronga-
dýragarðinum í Sydney.
Smyglaði eiturslöngum:
Vafði snák-
unum um
fæturna
SYDNEY, AP Tæplega þrítugur Svíi
reyndi að smygla eitruðum snák-
um frá Tælandi til Ástralíu með
því að vefja þeim um fætur sér.
Per Johann Adolfsson var
handtekinn á flugvellinum í
Sydney þegar tollayfirvöld fundu
grunsamlega pakka bundna við
fótleggi hans. Í pökkunum fund-
ust fjórar eitraðar kóbraslöngur
og fjórar grænar kyrkislöngur.
Kóbraslöngurnar höfðu ekki lifað
af ferðalagið frá Tælandi til
Ástralíu.
Yfirvöld í Ástralíu hafa ákært
Adolfsson fyrir ólöglegan inn-
flutning á dýrum. Hann á yfir
höfði sér allt að tíu ára fangelsis-
dóm og sekt sem nemur yfir 5,6
milljónum íslenskra króna. ■
FRIÐRIK OG MARY
Ef fer sem horfir mun danski krónprinsinn ganga að eiga hina áströlsku
Mary Donaldson í vor.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
HÖFRUNGUR AFLAHÆSTUR Tog-
ari Haraldar Böðvarssonar, Höfr-
ungur III AK, var aflahæstur ís-
lenskra togara á síðasta fiskveiði-
ári, að því er fram kemur á vef
HB. Höfrungur aflaði rúmra
9.000 tonna, rúmlega 700 tonnum
meira en Snorri Sturluson RE
sem var næstur á lista yfir afla-
hæstu togara.
ELDSNEYTI Greiningardeild Kaup-
þings Búnaðarbanka telur að verð á
bensínlítra geti lækkað um allt að
þrjár krónur um næstu mánaða-
mót. Heimsmarkaðsverð á bensíni
hefur lækkað um 21% síðastliðinn
mánuð en á sama tíma hefur krón-
an styrkst gagnvart Bandaríkjadal.
Heimsmarkaðsverð á bensíni hefur
því lækkað um heil 26% í íslenskum
krónum.
Lækkun bensínverðs um næstu
mánaðamót hefur áhrif á mælingar
verðbólgu októbermánaðar.
Samtök olíuframleiðsluríkja,
OPEC, ákváðu hins vegar í gær að
draga saman framleiðslu sína um
3,5% frá og með 1. nóvember,
vegna vísbendinga um auknar olíu-
birgðir og lækkandi verð á næst-
unni. Ákvörðunin olli töluverði um-
róti á olíumörkuðum, þar sem flest-
ir höfðu búist við óbreyttri fram-
leiðslu. Í kjölfar ákvörðunarinnar
hækkaði heimsmarkaðsverð á olíu
um 3,5%. ■
HÖFUÐSTÖÐVAR OPEC
Óvíst er hver áhrif ákvörðunar OPEC í gær
verða en samtökin ákváðu að draga úr
framleiðslu sinni um 3,5% 1. nóvember.
Greiningardeild spáir verðlækkun bensíns:
Þriggja króna lækkun
um mánaðamót