Fréttablaðið - 25.09.2003, Side 14
14 25. september 2003 FIMMTUDAGUR
UPPLJÓMUM
Palestínsk stúlka les af upplýstri tilvitnun
úr Kóraninum í Hebron á Vesturbakkan-
um. „Í nafni Allah, hins miskunnsama, hins
góðviljaða,“ stendur á töflunni.
Útgerðarmaður ósáttur við línuívilnun:
Undirbýr að fara frá Bolungarvík
SJÁVARÚTVEGUR Jón Guðbjartsson,
útgerðarmaður í Bolungarvík,
sem barist hefur eindregið gegn
því að línuívilnun verði tekin upp,
er nú reiðubúinn að standa við þá
hótun sína að flytja frá Bolungar-
vík. Í héraðsfréttablaðinu Bæjar-
ins besta á Vestfjörðum sem kom
út í gær auglýsir Jón hús sitt og
bílaverkstæði til sölu og er þess
albúinn að fara af staðnum af póli-
tískum ástæðum. Jón hefur um
áratugaskeið búið í Bolungarvík
þaðan sem hann gerir út bátinn
Gunnbjörn ÍS ásamt syni sínum.
Hann ritaði bæjarstjórninni í Bol-
ungarvík bréf fyrir nokkru þar
sem hann lýsti því að léti bæjar-
stjórnin ekki af „gagnrýnislaus-
um stuðningi“ við málflutning
smábátaútgerða myndi hann
flytja. „Ég er með mun meira af
eignum og skuldbindingum á bak-
inu en svo að ég geti hlaupið héð-
an í burtu einn, tveir og þrír. En
vinnan er hafin við að koma sér
héðan í burtu,“ hefur bb.is eftir
Jóni útgerðarmanni.
Fréttavefurinn lýsir því jafn-
framt að Jón hafi fengið svar við
bréfi sínu til bæjarstjórnarinnar.
„Bæjarstjórinn hafði rænu á að
senda mér bréf, sem er einn mesti
brandari sem ég hef séð frá opin-
berum starfsmanni. Þetta kemur
mjög á óvart. Meira en mánuði
eftir að ég skrifaði þeim og þeir
eru búnir að gefa út ályktanir og
hvatningar, þá á að fara að tala við
mig“, hefur bb.is eftir Jóni.
Sveitarstjórn Súðavíkurhrepps
hefur boðið Jóni pólitískt hæli og
haft er eftir Jóni að búferlaflutn-
ingur til Súðavíkur sé ekki verri
kostur en hver annar. ■
Erlendar
konur í
ánauð
Talsvert er um það erlendis að karlmenn sem
aðstoða erlendar konur við að flytja til
Norðurlandanna geri slíkt á fölskum forsend-
um. Íslensk lög eru hliðholl þeim karlmönnum
sem þetta stunda hér á landi.
MISNOTKUN „Ég þekki dæmi þess
að slík mál hafa komið upp á borð
hér á landi,“ sagði Þórunn Þórar-
insdóttir, starfskona hjá Stígamót-
um, en jafnréttisfulltrúinn Rachel
Eapen Paul frá Noregi segir al-
gengt á Norðurlöndunum að viss
hópur karlmanna flytji inn hverja
konuna á fætur annarri í þeim
eina tilgangi að notfæra sér bágt
ástand þeirra og misnota þær.
„Svokölluð póst-
brúðkaup, þegar
erlend kona kemur
hingað til að giftast
íslenskum manni,
eru stunduð hér
eins og annars
staðar. Þessar konur eru ber-
skjaldaðar hér á landi ef ekki
gengur allt að óskum. Flestar
þeirra tala ekki málið, margar
tala ekki einu sinni ensku, þær
skilja ekki dagblöð og fjölmiðla og
þegar svo er er auðvelt að verða
afskipt. Ef þær svo standa ekki
undir væntingum eiginmannsins
er þeim gjarnan hent út á gaddinn
aftur og þá eru hæg heimatökin
fyrir karlmanninn að endurtaka
leikinn.“
„Íslensk lög eru afar heppileg
vilji karlmenn hneppa erlendar
konur í ánauð,“ sagði Broddi Sig-
urðarson, upplýsingafulltrúi Al-
þjóðahússins. „Ef þær konur sem
hingað koma verða fyrir einhvers
konar ofbeldi, líkamlegu eða and-
legu, og óska eftir skilnaði innan
tveggja ára frá því að þær komu
hingað, detta forsendur dvalar-
leyfis út og þær verða að yfirgefa
landið. Flestar hafa þær að litlu
eða engu að hverfa í sínu heima-
landi og þess vegna þýðir þetta í
raun að þær eru fangar hér á Ís-
landi.“
Katla Þorsteinsdóttir, ráðgjafi
Alþjóðahússins, sem á sæti í
Daphne nefndinni sem hefur það
að markmiði að berjast gegn of-
beldi á konum og börnum, segir
eitt meginmarkmið nefndarinnar
að tryggja að erlendar konur hér-
lendis sem óska eftir skilnaði
haldi réttindum sínum. „Útlend-
ingastofa og aðrir sem að þessum
málum koma hafa sýnt skilning á
vandamálinu. Hins vegar er ekk-
ert sem tryggir þær konur sem
lenda í slíkum aðstæðum og það
er baráttumál að fá það í gegn.“
Drífa Snædal hjá Kvenna-
athvarfinu sagði að þar á bæ væri
ekki vitað um einstakling hér á
landi sem stundað hefði að flytja
inn hverja konuna af annarri.
„Það er engin ástæða til að halda
annað en að svona vandamál séu
til staðar hér á landi. Það sem við
höfum reynt að gera í samráði við
aðra aðila sem að þessum málum
koma er að haga málum þannig að
þær konur sem fyrir þessu verða
viti af þeim úrræðum sem þeim
standa til boða.“
albert@frettabladid.is
■
Hæg heimatök-
in fyrir karl-
menn að end-
urtaka leikinn.
CASTEL GANDOLFO
Svissneskir verðir gæta öryggis páfa á
sumardvalarstað hans í Castel Gandolfo,
skammt suðaustur af Róm.
Jóhannes Páll páfi:
Aflýsti
ávarpi vegna
veikinda
VATÍKANIÐ, AP Jóhannes Páll páfi II
aflýsti vikulegu ávarpi sínu í
Vatíkaninu í gær vegna veikinda.
Angelo Sodano kardínáli talaði
til pílagríma í hans stað.
Páfinn þjáist af smávægilegum
kvilla í meltingarfærum, að því er
fram kemur í yfirlýsingu frá
Vatíkaninu. Páfinn, sem staddur
er í Castel Gandolfo, flutti örstutt
ávarp á sjónvarpsskjá. „Mér þyk-
ir leitt að geta ekki verið hjá ykk-
ur. Þið eruð í hjarta mínu og ég
blessa ykkur öll,“ sagði hann
veikri röddu.
Páfinn, sem er 83 ára að aldri,
þjáist af Parkinsonsveiki og ýms-
um öðrum kvillum. ■
Selfoss:
Banna
siglingar á
Ölfusá
SVEITARSTJÓRNARMÁL Siglingar á
Ölfusá við Selfoss eru ekki lengur
leyfilegar nema með sérstöku
leyfi lögreglustjóra. Lögreglu-
samþykkt þess efnis var nýlega
samþykkt og nær bannið frá
landamörkum Hraungerðis-
hrepps og Árborgar í austri að
Kaldaðarneslandi í vestri. Einar
Njálsson bæjarstjóri segir að
þarna sé fyrst og fremst verið að
hugsa um öryggi fólks. „Lögregl-
an getur gripið í taumana ef ein-
hverjir eru að „leika sér“ án þess
að útbúnaður sé í lagi og fyllsta
öryggis gætt.“
Þetta siglingabann á ánni á sér
eldri sögu og nær eins og áður
fyrr aðeins til þess hluta árinnar
sem er meðfram gömlu hreppa-
mörkum Selfoss, en nær ekki til
gamla Sandvíkurhrepps og Eyrar-
bakkahrepps sem einnig tilheyra
nú Árborg. ■
JÓN GUÐBJARTSSON
Hefur auglýst allt sitt á Bol-
ungarvík til sölu. Hér er
hann fyrir utan bílaverk-
stæði sitt.
KATLA ÞORSTEINSDÓTTIR
Segir aðila hér á landi hafa sýnt skilning á
vandamálinu.
KONUR
Dæmi eru um erlendar konur sem lifa eins og fangar hér á landi.
DRÍFA SNÆDAL
Engin ástæða til að halda annað en að svona vandamál séu til staðar hér á landi.
M
YN
D
/R
O
LA
N
D
S
M
EL
T
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M