Fréttablaðið - 25.09.2003, Qupperneq 15
15FIMMTUDAGUR 25. september 2003
MARTTI AHTISAARI
Stýrir nefnd sem rannsakar sprengjutilræðið
á höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í
Bagdad 19. ágúst. Samtök starfsmanna
Sameinuðu þjóðanna efast um að rannsókn
undir stjórn Ahtisaaris geti talist óháð þar
sem Kofi Annan hafi skipað han til verksins.
Tilræðið gegn Samein-
uðu þjóðunum í Bagdad:
Ahtisaari
stýrir óháðri
rannsókn
SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR, AP Kofi Ann-
an, framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, hefur beðið Martti Aht-
isaari, fyrrum Finnlandsforseta,
að veita forstöðu óháðri nefnd
sem ætlað er að rannsaka öryggi í
höfuðstöðvum Sameinuðu þjóð-
anna í Bagdad fyrir sjálfs-
morðsárásina 19. ágúst síðastlið-
inn. Alls létust 22 og yfir 160
særðust. Fred Eckhard, talsmað-
ur Sameinuðu þjóðanna, tilkynnti
þetta örfáum klukkustundum eft-
ir að önnur sprengjuárásin á rétt-
um mánuði var gerð á höfuðstöðv-
ar samtakanna í Bagdad. Íraskur
öryggisvörður lést ásamt hryðju-
verkamanninum og 19 slösuðust.
Rúmlega 5.000 manns eru á
vegum Sameinuðu þjóðanna um
allan heim. Samtök þeirra höfðu
krafist ítarlegrar og óháðrar
rannsóknar á sprengjutilræðinu í
Bagdad 19. ágúst. Starfsmanna-
samtökin fagna tilnefningu Aht-
isaaris en draga í efa að rannsókn
undir hans stjórn geti talist óháð
þar sem Kofi Annan, fram-
kvæmdastjóri samtakanna, hafi
valið hann til starfans. ■
SJÁVARÚTVEGSMÁL „Við viljum sjá
frumvarp á þingi fljótlega,“ segir
Örn Pálsson, framkvæmdastjóri
Landssambands smábátaeigenda,
um þá ívilnun sem stjórnarflokk-
arnir hafa boðað að komi í hlut út-
gerða línubáta á dagróðrum.
„Það er einhugur meðal allra
svæðisfélaganna um að hvika
hvergi frá kröfunni um að línu-
ívilnun komi til framkvæmda í
haust,“ segir Örn.
Hagsmunafélög útgerðar-
manna og sjómanna stærri skipa
hafa hvert af öðru mótmælt línu-
ívilnuninni þar sem slíkt fyrir-
komulag muni skerða kvóta ann-
arra. Örn var spurður hvort hann
hefði ekki skilning á þeim sjónar-
miðum.
„Ég hef ekki samúð með sjón-
armiðum stórútgerðarinnar eins
og þeir setja málið fram. Sífellt
er klifað á því sama, að þetta sé
frá öðrum tekið. Þannig höfum
við aldrei rekið málið og greini-
legt er að sjávarútvegsráðherra
ætlar að fylgja þeim sjónarmið-
um okkar að litið verði á þetta
sem viðbót sem skerði ekki afla-
heimildir annarra. Það staðfesti
hann með úthlutun kvótans 1.
september. Ráðherrann vissi af
loforði um línuívilnun í haust. Sé
tekið mið af þorskafla dagróðra-
báta á línu fiskveiðiárið
2001/2002 erum við ekki að tala
um meira en fjögur þúsund tonn,
sem væri innan við tvö prósent
fram úr útgefnum veiðiheimild-
um. Varla er ástæða fyrir stórút-
gerðarmenn að vera með þennan
ofstopa út af því. Þeir ættu held-
ur að stýra samþykktu máli inn á
okkar braut, þetta er ekki tekið
frá neinum,“ segir Örn. ■
Árborg:
Einkadans
bannaður
SVEITARSTJÓRNARMÁL Sveitarfélagið
Árborg hefur nú bæst í röð þeirra
sveitarfélaga vítt og breitt um
landið sem leggja bann við því að
boðið sé upp á einkadans á nektar-
dansstöðum sem starfa innan
bæjarmarkanna.
Í glænýrri lögreglusamþykkt
fyrir sveitarfélagið Árborg segir
í 32. grein: „Þar sem heimilt er að
sýna nektardans á skemmtistað
(nektardansstað), skal tryggt að
sýningin fari fram í rúmgóðu
húsnæði og er sýnendum óheim-
ilt að fara um meðal áhorfenda.
Hvers konar einkasýningar eru
óheimilar.“ ■
ÖRN PÁLSSON
Segir að sjávarútvegsráðherra ætli greini-
lega að fylgja sjónarmiðum smábáta-
manna.
Landssamtök smábátamanna krefjast línuívilnunar strax:
Ástæðulaus ofstopi
stórútgerðarmanna
Úrval-Útsýn:
Nafn notað
í leyfisleysi
SAMKEPPNISRÁÐ Ferðaskrifstofan
Úrval-Útsýn braut gegn lögum
þegar hún auglýsti hópferðir
bænda til útlanda undir heitinu
bændaferðir. Ferðir sínar auglýsti
ferðaskrifstofan hvort tveggja
sem bændaferðir og undir heitinu
Úrvalsbændaferðir. Samkeppnis-
ráði þykir sýnt að sú orðanotkun
hafi verið til þess fallin að valda
misskilningi og vega að hagsmun-
um Agnars Guðnasonar og ferða-
skrifstofunnar Bændaferða sem
staðið hafa fyrir bændaferðum
frá árinu 1966.
Stjórnendur Úrvals-Útsýnar
sögðu orðið bændaferðir algengt
og því væri þeim óhætt að nota
það. Þar sem orðsins er ekki getið
í orðabókum hafnaði Samkeppnis-
ráð þeirri skýringu. ■