Fréttablaðið - 25.09.2003, Page 24
Dýrasti golfvöllurinn á Spáni erValderrama. Völlurinn er við
Sotogrande á Suður-Spáni og það
tekur rúmlega klukkutíma að aka
þangað frá Torremolinos.
Erfitt er að lýsa þessum velli,
en það segir ýmislegt um hann að
Ryder Cup fór þar fram árið 1997.
Eins og golfáhugamenn vita er
Ryder Cup, sem haldið er annað
hvert ár, keppni á milli bestu
kylfinga Bandaríkj-
anna og Evrópu. Það
vita hins vegar
færri að keppnin,
sem fyrst var haldin
árið 1927, hefur
alltaf nema einu
sinni farið fram
annaðhvort í Banda-
ríkjunum eða á
Bretlandi. Þetta
eina skipti var árið
1997.
Margir telja völl-
inn þann besta á
meginlandi Evrópu.
Blaðamaður Frétta-
blaðsins, sem átti
kost á að leika á
vellinum í sumar,
getur vottað að völl-
urinn er ótrúlegur.
Undirritaður hefur
leikið golf á flottum völlum í
Bandaríkjunum, Portúgal og á
Spáni. Væntingarnar voru því
miklar þegar
tíað var upp á
fyrsta teig á
Valderrama.
Það sem á
eftir kom var
eins og í
draumi. Ekki
endilega spilamennskan (er með
17 í forgjöf) – heldur upplifunin.
Hver einasta hola hefur sinn ein-
staka karakter – engin létt par
þrjú eða fjögur hola eða stutt par
fimm hola. Ekkert er gefið. Ef ég
ætti að nefna fallegustu golfholu
sem ég hef leikið yrði hola fjögur
á Valderrama fyrir valinu. Robert
Trent Jones, sem hannaði völlinn,
sagði líka: „Þetta er besta par 5
holan mín og að mínu viti líklega
besta par 5 holan í allri veröld-
inni.“
Vissulega er Valderrama fok-
dýr völlur, vallargjaldið er um 25
þúsund krónur. Það er hins vegar
í mínum huga auðvelt að réttlæta
verðið. Reynslan er eins og ein-
hvers staðar segir „priceless.“ Ef
það er hægt að leika golf í himna-
ríki, þá er það líklega eins og að
leika á Valderrama, þó ég efist um
að golfbíllinn þar sé með GPS-
staðsetningartæki.
trausti@frettabladid.is
Helgarslaufur
fyrir hópa, klúbba og félög af öllum stærðum.
Hafðu samband við
Bergþóru eða Kristjönu
í síma 570 30 75
hopadeild@flugfelag.is
ferðir o.fl.
Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um al l t sem viðkemur ferðalögum
Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: ferðir@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is. Þjónustuauglýsingar: Gula línan, sími 580 8090 – netfang: auglysingar@gulalinan.is.
Valderrama er ótrúleg upplifun:
Eins og í himnaríki
■ Út í heim
LANDSLEIKURINN Í BEINU FLUGI
FRÁ AKUREYRI Terra Nova-Sol á
Akureyri býður tveggja borga
hopp og landsleik Þýskalands og
Íslands í beinu flugi frá Akureyri
með Air Greenland 9. til 13. októ-
ber. Verð: 68.900 kr. á mann í tví-
býli. Aukagjald fyrir einbýli
12.000 kr. Innifalið er flug, gist-
ing á Copenhagen Square***+
hótel í miðbæ Kaupmannahafnar
tvær nætur og gisting tvær næt-
ur á hótel Arcadia*** í miðbæ
Hamborgar, akstur til og frá
flugvelli í Kaupmannahöfn, akst-
ur til og frá Kaupmannahöfn til
Hamborgar, miði á landsleikinn,
íslensk fararstjórn og flugvallar-
skattar. Nánari ferðatilhögun á
heimasíðu Terra Nova-Sólar.
FORFALLASÆTI TIL PORTÚGALS
Úrval-Útsýn bjóða nokkur sæti
til Portúgals í 7 daga vegna for-
falla 30. september. Verðdæmi er
34.327 á mann í tvíbýli í 7 nætur í
stúdíó á Brisa Sol. Innifalið er
flug, flugvallarskattar, gisting,
akstur og íslensk fararstjórn.
50 golfvellir
á Torremolinos:
Costa
del Golf
Torremolinos hefur veriðvinsæll áfangastaður ís-
lenskra sóldýrkenda undan-
farna áratugi. Það vita hins
vegar ekki all-
ir að á Costa
del Sol er að
finna fjöldann
allan af golf-
völlum. Lík-
legast eru tæp-
lega 50 golf-
vellir á svæð-
inu og því ekki
að ósekju að oft er talað um
Costa del Golf, frekar en Costa
del Sol. Þrátt fyrir allan þenn-
an fjölda golfvalla býður engin
íslensk ferðaskrifstofa upp á
sérstakar golfferðir á svæðið.
Það breytir því hins vegar ekki
að staðurinn er ákjósanlegur
áfangastaður fyrir kylfinga,
því þar er að finna golfvelli
fyrir háforgjafakylfinga jafnt
sem hina betri. Þá fljúga
Heimsferðir beint til Malaga
og því auðvelt að komast á
staðinn.
Vallargjöldin eru mjög mis-
jöfn, allt frá tæplega 2.500
krónum fyrir 18 holur upp í 25
þúsund krónur. Algengt verð
er um 3.500 til 5.000 krónur.
Sumir vellirnir eru með mis-
munandi verð eftir árstímum
og er tímabilið frá september
fram í desember venjulega
dýrasti tíminn. ■
Flamengo Rosa er glæsilegurnýr golfvöllur í fjöllunum fyr-
ir ofan Marbella, skammt frá Tor-
remolinos.
Völlurinn, sem hannaður er af
Antonio García Garrido, umlykur
og tilheyrir nýju hóteli, sem er án
efa eitt hið glæsilegasta á Suður-
Spáni. Hótel Villa Padierna er
byggt í Toscana-stíl og bleik bygg-
ingin vekur athygli allra sem eiga
leið framhjá.
Flamengo Rosa er mjög falleg-
ur par 72 golfvöllur. Vallargjaldið
er um 8.000 krónur. Arroyo del
Taraje-áin rennur í gegnum svæð-
ið og eru hættur vegna vatns því
fjölmargar á mörgum holum vall-
arins. Völlurinn er einkar vel hirt-
ur og flatirnar eru þannig að
manni er skapi næst að fara úr
skónum áður en maður púttar.
Erfiðasta hola vallarins er sú
tíunda, 350 metra par 4 hola. Á
teignum stendur kylfingurinn
frammi fyrir þeirri ákvörðun að
leggja annað hvort upp með járn-
kylfu um 150 til 170 metra frá
pinna eða taka trékylfu og reyna
að komast yfir vatn sem klýfur
brautina í tvennt. Til þess þarf
hins vegar mikla nákvæmni því
brautin er mjó. Ein skemmtileg-
asta og án efa fallegasta hola vall-
arins er hins vegar sú átjánda.
Hún er 380 metra löng par 4 hola,
þar sem flötin stendur fyrir fram-
an glæsilegt hótelið umlukin
marmarasúlum.
Strax á næsta ári verður nýr 18
holu golfvöllur opnaður á svæðinu
og árið 2005 er ráðgert að opna
þriðja völlinn. Þá verða þrír 18
holu golfvellir á svæðinu og einn 9
holu æfingavöllur. ■
BLEIKT HÓTEL
Hótel Villa Padierna er byggt í Toscana-stíl og bleik byggingin vekur athygli.
Flamengo Rosa í Marbella:
Geysifallegur vatnavöllur
ÁTJÁNDA FLÖTIN
Ein skemmtilegasta og án efa fallegasta
hola vallarins er hins vegar sú átjánda.
Hún er 380 metra löng par 4 hola, þar
sem flötin stendur fyrir framan glæsilegt
hótelið umlukin marmarasúlum.
SÚ FALLEGASTA
Fjórða holan er ein allra fallegasta golfhola sem blaðamaður
Fréttablaðsins hefur leikið. Robert Trent Jones, sem hannaði
völlinn, sagði líka: „Þetta er besta par 5 holan mín og að mínu
viti líklega besta par 5 holan í allri veröldinni.“
SAUTJÁNDA HOLAN
Í hverjum golfbíl er GPS-staðsetningartæki,
þar sem upplýsingar um hverja einustu
holu birtast á skjá fyrir framan kylfinginn,
m.a. fjarlægð frá pinna, staðsetningar
glompa, trjáa og vatna.
6% FJÖLGUN Á MILLI ÁRA
Gistinætur á hótelum og gisti-
heimilum fyrstu fjóra mánuði
ársins voru 245.000 en þær
voru 231.000 fyrir sama tíma-
bil í fyrra, samkvæmt tölum
Hagstofu Íslands. Þetta er um
það bil 6% fjölgun á milli ára.
Á þessum fyrsta ársþriðjungi
voru gistinætur á höfuðborgar-
svæðinu 175.000 en töldust
166.000 árið áður.
VIÐ LEIFSSTÖÐ
Upplýsingar
í síma 421 2800