Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.10.2003, Qupperneq 31

Fréttablaðið - 03.10.2003, Qupperneq 31
31FÖSTUDAGUR 3. október 2003 TÍSKA Í MÍLANÓ Þessi undarlega flík var hluti af sýningu Gattinoni í Mílanó í gær. Þetta á víst að vera hluti af vor- og sumartískunni fyrir næsta ár. Samtök í Nýja-Sjálandi hafa gertallt vitlaust eftir að þau hófu að birta veggspjöld sem sýnir erfða- breytta konu með fjögur brjóst mjólkaða með mjaltavélum. Það eru samtökin Mothers Against Genetic Engineering in Food and the En- vironment (Madge) sem standa fyrir auglýsingunum. Þau berjast á móti þeirri stefnu matvælafyrirtækja að erfðabreyta dýrum til þess að auka framleiðslu sína. Myndinni hefur verið sett upp á sjö auglýsingaskilti í Wellington og Auckland og segir stofnandi sam- takanna, Alannah Currie, að auglýs- ingin sé hönnuð til þess að valda usla. Þannig vonast hún til þess að skiltin verði til þess að auka umtal um erfðabreyttar mat- vælavörur í landinu. „Ef þeir ætla að fara að erfða- breyta mjólkinni, af hverju ekki þá að erfðabreyta konum svo að þær geti séð börn- um sínum betur fyrir fæðu?“ spurði hún í viðtali við vef- svæðið Stuff. Fyrirsætan er 21 árs frænka Currie og liðsmaður samtakana. Hún er sögð vera mjög ánægð með út- komuna en engu að síður hefur hún ákveðið að láta lítið á sér bera í al- menningi þessa daganna. „Hún er í felum í augnablikinu vegna þess að hún óttast að fólk gæti haldið að hún hefði í raun og veru fjögur brjóst,“ sagði Currie í hæðni að lokum. ■ Annað kvöld heldur breskarokksveitin Hundred Reasons tónleika á Gauki á Stöng ásamt Mínus. Sveitin gaf út frumraun sína í fyrra, breiðskífuna Ideas Above Our Station, við góðar undir- tektir í Bretlandi. Sveitin hafði fram að því verið iðin við að koma sér á framfæri og skaust platan því beint í sjötta sæti á breska vin- sældalistanum í fyrstu vikunni. Með útgáfa og velgengni fyrstu breiðskífu Hundred Reasons var það orðið ljóst að bandarísk þung- arokksáhrif voru byrjuð að segja til sín í breskri tónlistarsköpun aftur. Og breskt ungviðið kann greinilega að meta það. „Ætli áhrifavaldar okkar séu ekki frá sveitum sem við hlustuð- um á þegar við vorum að vaxa úr grasi,“ útskýrir Larry gítarleikari. „Í þeim hópi er fullt af bandarísk- um sveitum eins og Guns ‘n’ Roses, Metallica og fleiri. En við hlustuð- um líka mikið á breskar sveitir eins og Black Sabbath, Iron Maiden og aðrar eldri sveitir. Ég held að mest- öll tónlistin sem ég hef hlustað á síðustu árin hafi þó verið bandarísk vegna þess að mér finnst fleiri sveitir þar gera tónlist að mínu skapi. Ég varð aldrei gripinn af þessari brit-pop senu sem var í gangi hér þegar ég var yngri.“ Ég þóttist heyra áhrif frá At the Drive-in þegar ég hlustaði á plöt- una, er eitthvað til í því? “Það var góð hljómsveit en ég er nokkuð viss um að þegar við sömd- um lögin á plötuna höfðum við aldrei heyrt í þeim. Þeir voru því ekki beint áhrifavaldar á okkur en þeir hafa örugglega hlustað á svip- aða tónlist og við gerum. Það eru margar sveitir í dag sem hafa jafn hráan hljóm. Ég held að At the Drive-in sé líklegast eina sveitin sem komst upp á yfirborðið.“ Lögin ykkar eru oft mjög melódísk. Margar þungar sveitir þora því varla en þið setjið það ekk- ert fyrir ykkur. “Við viljum einbeita okkur að lagasmíðum og hljómagöngum frekar en að sökkva okkur of mikið í hljóminn. Margar sveitir eru bara að reyna að vera eins þungar og mögulegt er. Við tökum ekki þátt í því. Fyrir okkur er það miklu meiri áskorun að semja góðar laglínur því það er miklu erfiðara en að búa bara til hávaða. Við hlustuðum líka mjög mikið á heimsfrægar þunga- rokkhljómsveitir þegar við vorum yngri, meira jafnvel en á harð- kjarnasenuna.“ Plata tvö rétt handan við hornið Larry segir Hundred Reasons vera nýbúna að leggja lokahönd á væntanlega aðra breiðskífu sveit- arinnar sem áætlað er að gefa út snemma á næsta ári. Fyrsta smá- skífan af nýju plötunni heitir The Greatest Test og kemur út í byrjun næsta mánaðar. Larry segir sveit- ina ætla að prufukeyra nokkur lög af plötunni á tónleikunum annað kvöld. „Maður fær alla sína ævi til þess að semja lög á fyrstu plötuna. Núna eyddum við fjórum mánuðum í það að semja lög í sveit á suðvestur- horni Bretlands. Þar er mjög fal- legt, pálmatré úti um allt og hægt að fara á brimbretti. Þangað fórum við til þess að loka okkur af frá um- heiminum og til að semja lögin á nýju plötuna. Við fundum því ekki fyrir neinni pressu. Þannig náðum við að gera plötu sem er algjörlega óþvinguð af því sem er að gerast í tónlist í dag, platan hljómar bara eins og við.“ Larry segist ekki hafa heyrt Halldór Laxness, nýjustu breið- skífu Mínus, en fer með gott orð af sveitinni á tónleikum. Hundred Reasons ætlar að launa samspila- mennskuna hér með því að halda tónleika með Mínus í London í lok mánaðarins. Önnur íslensk sveit sem Larry hrífst af er Sigur Rós. „Það er svolítið fyndið að þeir skuli vera algjörlega hinum megin á skalanum miðað við Mínus. Það virðist vera að senan á Íslandi sé mjög einstaklingsbundin og til- raunagjörn, sem er frábært. Fólk virðist ekkert hafa áhyggjur af því að komast ekki upp á yfirborðið, þið gerið bara það sem þið viljið. Ég er mjög spenntur að sjá hvað það er sem veldur þessu eiginlega.“ Forsala miða á tónleikanna á Gauknum annað kvöld er hafin í versluninni Dogma á Laugavegi. biggi@frettabladid.is Ozzy Osbourne erað semja tónlist fyrir söngleik sem sýndur verður á Broadway. Hann mun vera byggður á ævi rúss- neska munksins Raspútíns. Ozzy ætlar að vinna plötuna í nýju hljóð- veri sem verið er að byggja heima hjá honum. Robbie Williams samþykktiað koma fram í 18 ára af- mælis fótboltakappans Wayne Rooney hjá Everton. Þeir eru víst miklir aðdáendur hvors annars og urðu vinir eftir að Robbie lét lofsyrðum rigna yfir Rooney í útvarpsviðtali. Stuttu síðar mætti Rooney á tónleika Robbie á Knebworth í einka- þyrlu. Tónlist HUNDRED REASONS ■ Á Gauki á Stöng annað kvöld verða tónleikar með hinum bresku Hundred Reasons og hinum íslensku Mínuspiltum. Birgir Örn Steinarsson tók Larry gítarleik- ara sveitarinnar tali. Mótvægi við britpoppið HUNDRED REASONS Larry gítarleikari segir líf liðsmanna hafa auðveldast töluvert eftir að sveitin fékk plötusamning. „Við gát- um allir hætt í dagvinnum okkar. Áður fyrr unnum við allir fulla vinnu og eyddum svo öllum frítíma okkar í hljómsveitina. Við sváfum aldrei.“ Fréttiraf fólki 4 BRJÓST ■ Á Nýja-Sjálandi er allt vitlaust þessa dagana út af auglýsingu sem sýnir erfðabreytta konu með fjögur brjóst. Skrýtnafréttin Kona með fjögur brjóst 2 FYRIR 1 ALLAR PEYSUR Buxur 6990 nú 2990 Úlpur 6990 nú 3990 20% af öllum bolum HAUSTSPRENGJA 2.-5. OKT

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.