Fréttablaðið - 03.10.2003, Side 36

Fréttablaðið - 03.10.2003, Side 36
■ ■ LEIKIR  19.15 Selfoss og ÍR keppa á Sel- fossi í suðurriðli RE/MAX-deildar karla í handbolta.  19.15 Víkingur leikur við Aftureld- ingu í Víkinni í suðurriðli RE/MAX-deild- ar karla í handbolta.  20.00 Fram og Stjarnan keppa í Framhúsinu í RE/MAX-deild kvenna í handbolta.  20.00 KA/Þór leikur ÍBV í KA- heimilinu í RE/MAX-deild kvenna í handbolta.  20.00 Valur fær FH í heimsókn í Valsheimilið í RE/MAX-deild kvenna í handbolta.  21.00 FH 2 mætir Bifröst 3 í SS- bikarkeppni karla í handbolta. 36 3. október 2003 FÖSTUDAGUR HM KVENNA Bandarískir áhorfendur fagna sigri liðs síns á Norðmönnum í átta liða úrslitum Heims- meistarakeppni kvenna í fótbolta. Fótbolti FÓTBOLTI Þýska knattspyrnusam- bandið hefur selt alla 50.785 miðana á leik Þjóðverja og Íslendinga á AOL-völlinn í Hamborg um aðra helgi. Um 2.200 Íslendingar verða meðal áhorfenda. AOL- völlurinn var vígður haust- ið 1999 eftir endurbyggingu. Völl- urinn hét upphaflega Volks- parkstadion en hann er í jaðri al- menningsgarðsins Altonaer Volks- park. Hann var vígður í september 1924, endurbyggður í kjölfar seinni heimsstyrjaldarinnar og lagfærður fyrir heimsmeistarakeppnina árið 1974. Volksparkstadion rúmaði upphaflega 40.000 manns en eftir endurbyggingu sem lauk árið 1953 rúmaði hann 75.000 áhorfendur. Nýjustu endurbætur á vellinum kostuðu 97 milljónir evra. Leikurinn annan laugardag verður annar leikur Þjóðverja á AOL-vellinum Þeir unnu Grikki 2-0 í september árið 2000. Þeir léku 23 leiki á Volksparkstadion, unnu fimmtán, gerðu þrjú jafntefli en töpuðu fimm. Þar töpuðu þeir til dæmis fyrir Austur-Þjóðverjum í heimsmeistarakeppninni árið 1974. ■ Getum unnið alla hvað?hvar?hvenær? 30 1 2 3 4 5 6 OKTÓBER Föstudagur Þýskaland - Ísland: Uppselt á AOL-völlinn SEBASTIAN DEISLER Sebastian Deisler skoraði fyrsta mark þýska landsliðsins á AOL Arena. Rudi Völler, landsliðsþjálfari Þýskalands, segir leikinn gegn Íslendingum snúast um að verja stöðu Þjóðverja í riðlinum. Við getum unnið alla, segir landsliðsþjálfarinn. LANDSLIÐSÞJÁLFARINN Rudi Völler tilkynnti í gær leik- mannahópinn sem mætir Íslend- ingum í Hamborg 11. október. FR ÉT TA B LA Ð IÐ / VI LH EL M FÓTBOLTI „Ísland er eins og fjöldi annarra landsliða miklu betra en fyrir áratug,“ sagði Rudi Völler, landsliðsþjálfari Þjóðverja, í viðtali við þýska dagblaðið Süddeutsche Zeitung. Í viðtalinu bendir Völler á að Íslendingar hafi unnið Tékka 3-1 í undankeppni heimsmeistara- keppninnar 2002 og að Þjóðverjar hafi gert 1-1 jafntefli við Litháa á heimavelli í sömu keppni. Völler tilkynnti í gær leik- mannahópinn sem mætir Íslending- um annan laugardag. Þjóðverjar verða án margra sterkra leikmanna á borð við Christoph Metzelder, Sebastian Deisler, Jens Nowotny, Jens Jeremies og Tobias Rau. Nokkrir aðrir hafa verið lengi frá vegna meiðsla. Oliver Kahn og Michael Ball- ack, mikilvægustu leikmenn þýska liðsins, verða þó að öllum líkindum með. „Michael Ballack hefur þroskast mikið frá leiknum gegn Úkraínu. Hann er orðinn leiðtogi sem aðrir leikmenn líta upp til. Hann og Oliver Kahn hafa með framgöngu sinni orðið mikivæg- ustu leikmenn liðsins,“ sagði Völl- er. Þjóðverjum dugar jafntefli til sigurs í 5. riðli en blaðið bendir á að Þjóðverjar hafi aðeins náð marka- lausu jafntefli gegn Íslendingum í fyrri leik þjóðanna í Reykjavík með ærinni fyrirhöfn og heppni. Völler sagði við blaðið að leikurinn gegn Íslendingum snerist um að verja stöðu liðsins í riðlinum. Hann sagði að þrátt fyrir sterka stöðu Þjóð- verja fyrir leikinn mætti búast við mikilli spennu á troðfullum AOL- Arena í Hamborg. „Við getum enn unnið alla. Við sýndum það gegn Hollandi og Ítal- íu. Á góðum degi getum við unnið alla, en með miðlungsframmistöðu getum við tapað fyrir hverjum sem er,“ sagði Rudi Völler, landsliðs- þjálfari Þjóðverja. ■

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.