Fréttablaðið - 03.10.2003, Síða 40
■ ■ SKEMMTANIR
20.00 Íslandsmeistarakeppni í
trommuleik fer fram á Grand Rokk.
20.00 Hljómsveitin Stuðgæjarnir
leikur tango, tjútt, vals, línudans, polka
og tvist á dansleik í A-sal Gerðubergs.
Gestur kvöldsins verður Jón Kr. Ólafs-
son söngvari frá Bíldudal og kynnir
hann nýjan geisladisk sinn sem ber heit-
ið Haustlauf.
23.30 Singapore Sling spilar á
Grand Rokk.
Trúbadorinn Óskar Einarsson
skemmtir á Ara í Ögri.
Þruman vs. Electro Clash með dj
Grétari, dj Taktik, dj Sveinbirni, dj
Bjargeyju, Chico rockastar, Exos og
Tómasi T.H.X. á Vídalín.
Brimkló heimsækir NASA á Austur-
velli í annað sinn. Húsfyllir var á fyrri
tónleikum þeirra félaga þar.
Hljómsveitin Smokie, sem í eina tíð
gerði það gott, verður með tónleika á
Broadway.
Hljómsveitin Í svörtum fötum spilar
á Players í Kópavogi.
Strákarnir í Kung Fú ætla að halda
uppi stemningunni á Gauki á Stöng
langt fram eftir morgni. Frítt inn alla
nóttina.
Garðar Garðars spilar á skemmti-
staðnum de Boomkikker í Hafnarstræti.
Hljómsveitin Fígúra spilar fyrir gesti á
Champions Café.
Trúbadorinn bolvíski Einar Örn Kon-
ráðsson spilar á Sjallanum, Ísafirði.
Margeir sér um fjörið á Metz.
Karaókíkvöld á Odd-Vitanum á Ak-
ureyri.
Hljómsveitin Zent, nýtt súperband
frá Akureyri, spilar á Café Amsterdam
langt fram á morgun.
Í kvöld verða „Johnny Cash Tribute“
tónleikar í Leikhúskjallaranum til styrkt-
ar langveikum börnum. Megas, Súkkat,
Mínus Trabant, Santiago, Kimono,
Fræbblarnir, Varði og Rúnar Júlíusson.
Sannkölluð Kjallarastemning þar sem
allir leggja sitt af mörkum.
KK og Maggi Eiríks verða með tón-
leika í Bíóinu, Akranesi.
Gleðisveitar- og búálfagaurinn Hlyn-
ur Ben. í Stúkunni í Egilsbúð, Nes-
kaupsstað.
40 3. október 2003 FÖSTUDAGUR
Í kvöld verða haldnir tónleikar áÞjóðleikhúskjallaranum til
heiðurs tónlistarmanninum
Johnny Cash. Margir af helstu
neðanjarðarlistarmönnum borg-
arinnar ætla að spreyta sig á lög-
um kappans en Viðar Örn Sævars-
son hefur haft veg og vanda af
skipulagningu uppákomunnar:
„Tónleikarnir eru haldnir til
styrktar Umhyggju, félags lang-
veikra barna. Það er í anda
Johnny Cash því hann gaf mjög
oft vinnu sína til þeirra sem
minna mega sín. Félagið fær
skammarlega lítinn stuðning frá
ríkinu en fjölskyldur með veik
börn þurfa að standa straum af
miklum kostnaði sem endar oft
með því að fólk missir aleiguna,“
segir Viðar, sem vonast eftir fjöl-
menni í Þjóðleikhúskjallarann.
Meistari Megas er meðal
þeirra sem ætla að spreyta sig á
Johnny Cash í kvöld: „Það hlýnar
vonandi einhverjum um hjarta-
ræturnar við að heyra okkur taka
lögin,“ segir meistari Megas, sem
vill ekki gefa upp hvaða lög hann
ætlar að flytja: „Það er leyndar-
mál en við Hafþór í Súkkat ætlum
að syngja saman og flytja lögin á
okkar eigin máta,“ segir Megas,
sem hefur haft vaxandi áhuga fyr-
ir Johnny Cash í seinni tíð.
Meðal þeirra sem koma fram í
kvöld, auk Megasar og Súkkats,
eru Mínus, Trabant, Santiago,
Kimono og Rúnar Júlíusson.
Þjóðleikhúskjallarinn opnar
klukkan 22.00 í kvöld og það kost-
ar 1.000 krónur inn en miðasalan
rennur óskipt til langveikra
barna. ■
■ TÓNLEIKAR
Til heiðurs
Johnny Cash
hvað?hvar?hvenær?
30 1 2 3 4 5 6
OKTÓBER
Föstudagur
MEGAS
Meistari Megas er meðal þeirra listamanna sem ætla að spreyta sig á lögum Johnny Cash
á tónleikum til styrktar langveikum börnum á Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld.
Edduverðlaunin nálgast óðflugaen þau verða haldin á Nordica
Hotel föstudaginn 10. október. Til-
nefningar í öllum flokkum verða
tilkynntar á blaðamannafundi
sem verður haldinn í Regnbogan-
um í dag klukkan 17. Um leið og
tilnefningarnar verða tilkynntar
verður kvikmyndahátíð Eddunnar
hleypt af stokkunum en á hátíð-
inni, sem stendur til 19. október,
verða frumsýndar 13 bíómyndir.
Þetta er í fyrsta skipti sem kvik-
myndahátíð er haldin í tengslum
við Edduna og er það gert til að
auka veg verðlaunahátíðarinnar.
Kvikmyndir hátíðarinnar eiga það
allar sameiginlegt að hafa vakið
mikla athygli á erlendum kvik-
myndahátíðum en meðal stór-
mynda á hátíðinni er nýjasta
mynd Lars von Trier, Dogville eða
Hundabær, þar sem stórstjarnan
Nicole Kidman fer með aðalhlut-
verkið. Danska grínmyndin Steal-
ing Rembrandt eða Rembrandt-
ránið er fyrsta kvikmyndin sem
sýnd verður á hátíðinni. Myndin
segir frá þjófóttum feðgum sem
eru ráðnir til að stela málverki.
Fyrir slysni stela þeir eina upp-
runalega Rembrandt-málverkinu
sem til er í Danmörku. Stealing
Rembrandt verður sýnd í Regn-
boganum klukkan 22 í kvöld. ■
STEALING REMBRANDT
Danska grínmyndin Stealing Rembrandt er
fyrsta myndin sem verður sýnd á
kvikmyndahátíð Eddunnar í
Regnboganum kl. 22 í kvöld. Hér
er Nikolaj Bro í hlutverki sínu.
■ KVIKMYNDIR
Kvikmyndahátíð
og Eddutilnefningar
JÓHANN G. JÓHANNSSON
Það sem við fyrstu sýn vekuráhuga minn eru „Johnny Cash
Tribute“ tónleikar í Leikhúskjall-
aranum,“ segir Jóhann G. Jó-
hannsson, tónlistarmaður og
myndlistarmaður. „Þetta eru tón-
leikar til styrktar langveikum
börnum með Megasi, Súkkati,
Mínus, Trabant, Santiago,
Kimono, Fræbbblunum, Varða og
Rúnari Júlíussyni. Gott að styrkja
gott málefni og heiðra um leið
minningu Johnny heitins Cash og
hlusta a fjölbreytta tónlist. Næst
þykir mér kvikmyndahátíð Edd-
unnar forvitnileg. Puntilla og
Matta eftir Bertolt Brecht sá ég á
sinum tíma og hafði gaman af.“
Val Jóhanns
Þetta lístmér á!
✓
Föstudagur 03.10.03
Hljómsveitin Fígúra
Laugardagur 04.10.03
Fræbbblarnir
Um helgina í beinni:
LIVERPOOL - ARSENAL
MIDDLESBROUGH - CHELSEA
MAN.UNITED - BIRMINGHAM