Fréttablaðið - 19.02.2004, Síða 25

Fréttablaðið - 19.02.2004, Síða 25
25FIMMTUDAGUR 19. febrúar 2004 Í Fréttablaðinu og Morgunblað-inu 11. febrúar sl. birtist opið bréf átakshóps Höfuðborgarsam- takanna og Samtaka um betri byggð til Þórólfs Árnasonar, borg- arstjóra í Reykjavík. Þar er fimm spurningum, sumum margþætt- um, beint til borgarstjóra. Í Frétta- blaðinu 17. febrúar birtist grein eftir hann undir fyrirsögninni „Opið svar borgarstjóra til Höfuð- borgarsamtakanna“. Í greininni tekur borgarstjóri til umfjöllunar einn af þremur þáttum fyrstu spurningar átaks- hópsins, þann þátt sem lýtur að nefndarstörfum og innra samráði borgarkerfisins og samskiptum þess við Vegagerð ríkisins. Af orð- um borgarstjórans má ráða að sennilega kosti þessi þáttur ekki neitt, allt sé unnið í föstum vinnu- tíma ráðinna og kjörinna þjóna reykvískra kjósenda. Hann lætur hins vegar hjá líða að svara hinum tveim þáttum fyrstu spurningar, þ.e. um hönnunarkostnað Hring- brautar og um kosnað við gerð út- boðsgagna vegna yfirvofandi framkvæmda. Þessir tveir verk- þættir eru þó að öllum líkindum unnir á verkfræðistofum úti í bæ. Hann lætur einnig hjá líða að svara hinum fjórum spurningum átakshópsins. Í áðurnefndu opnu bréfi hópsins frá 11. febrúar er þess óskað: - að þú gerir Reykvíkingum strax ítarlega grein fyrir nefndar- störfum, samráðsfundum, hönnun- arkostnaði, kostnaði við gerð út- boðsgagna og öðru því sem á und- an er gengið á vegum nefnda og ráða Reykjavíkurborgar varðandi fyrirhugaða byggingu hinnar nýju Hringbrautar, - að þú gerir nákvæma grein fyrir verkaskiptingu og skiptingu ábyrgðar og kostnaðar milli Vega- gerðar ríkisins og Reykjavíkur- borgar, - að þú leggir fram mat Reykja- víkurborgar á verðmæti þess lands, sem fer forgörðum vegna hávaðamengunar af völdum hinn- ar fyrirhuguðu brautar, - að þú gerir Reykvíkingum ít- arlega grein fyrir því hvernig nú- verandi ráðamenn í borginni sjá fyrir sér þróun núverandi mið- borgarsvæðis, þróun byggðar í Vatnsmýri, uppbyggingu Landspít- ala - háskólasjúkrahúss, þróun Há- skóla Íslands, uppbyggingu vís- indagarða og samspil og samþætt- ingu allra þessara mikilvægu þátta þegar komin er sex akreina stofn- braut yfir þvert svæðið, - að þú gerir Reykvíkingum nú grein fyrir því hvað líður undir- búningi borgaryfirvalda á heildar- skipulagi Vatnsmýrar og aðliggj- andi svæða. Átakshópur Höfuðborgarsam- takanna ítrekar áskoranir sínar á borgaryfirvöld að þau fresti fram- kvæmdinni um sinn svo kjósend- um í Reykjavík gefist kostur á að kynnast öllum hliðum málsins og forsendum og verklagi kjörinna og ráðinna fulltrúa sinna. Átakshóp- urinn ítrekar jafnframt þá full- vissu sína að það verði seint of seint að fresta þessari fram- kvæmd. Hópurinn krefst þess að ráða- menn hætti að láta þögnina tala í þessu máli. Þeim er hér með boðið til þátttöku í opnum borgarafundi um færslu Hringbrautar, sem verður haldinn í Tjarnarsal ráð- húss Reykjavíkur sunnudaginn 29. febrúar nk. ■ Tannrétt- ingarkostn- aður Halla Magnúsdóttir skrifar: Hannes Sigurgeirsson skrifaðibréf til blaðsins fyrir nokkrum dögum varðandi óheyri- legan tannréttingarkostnað hjá syni hans sem fæddist með of lít- inn efri góm. Mig langaði til að halda skrifunum áfram og koma með fleiri sjónarmið. Það eru margir foreldrar í þessum sömu sporum og Hannes, eins og t.d. foreldrar barna fæddra með skarð í vör og/eða góm. Breið bros Breið bros er félag foreldra barna fæddra með skarð í vör og/eða góm. Félagið hefur alveg frá stofnun 1995 beitt sér fyrir því að fá fulla endurgreiðslu tannréttinga til handa börnum með skarð í vör og/eða góm en lítið sem ekkert hefur áunnist í þeim málum, því miður. Ég held að allir geti verið sammála um að það sé ótækt að foreldrar borgi hluta tannréttingarkostnaðar barna með fæðingargalla. Heild- arupphæð tannréttinga með tannplöntum hjá erfiðustu tilvik- um barna með skarð í vör getur alveg verið um 1-1,3 milljónir króna, sem reyndar dreifist á 10 ára tímabil. Það er svolítið mis- jafnt hversu mikið er endur- greitt af hverjum reikningi fyrir sig en 40-50 prósent lætur nærri. Tryggingastofnun ríkisins segist ekki geta boðið fulla endur- greiðslu því þá hækki tannrétt- ingalæknarnir reikningana upp úr öllu valdi. Hið frábæra íslenska heilbrigðiskerfi Gjaldskráin sem Trygginga- stofnun ríkisins fer síðan eftir við endurgreiðsluna er nokk- urra ára gömul og ekki uppfærð á verðlagi dagsins í dag. Endur- greiðsluhlutfallið var áður 75 prósent en var hækkað í 90 prósent fyrir rúmu ári. Þetta átti að friða allt og alla og sér- staklega samvisku Trygginga- stofnunar ríkisins. Þegar svo Tryggingastofnun ríkisins er að nota þessa gömlu gjaldskrá verður endurgreiðsluhlutfallið aldrei meira en þessi 40-50 prósent. Þannig eru foreldrar eins og milli steins og sleggju í þessu máli enda hafa ekki verið í gildi samningar, hvorki tann- réttingalækna né tannlækna, við Tryggingastofnun ríkisins í fleiri ár. Allir lofa öllu fögru en ekkert gerist. Hver er vondi karlinn? Íslendingar eru ásamt Tyrkjum eina Evrópuþjóðin sem ekki endurgreiðir til fulls tann- réttingar barna með skarð í vör og/eða góm. Þetta er hið frá- bæra íslenska heilbrigðiskerfi á 21. öldinni. Kerfi sem lætur for- eldra barna með fæðingargalla greiða hluta kostnaðar við lífs- nauðsynlegar tannréttingar barna sinna úr eigin vasa. ■ ■ Bréf til blaðsins Umræðan ÁTAKSHÓPUR HÖFUÐBORGAR- SAMTAKANNA OG SAMTAKA UM BETRI BYGGÐ ■ gerir athugasemdir vegna skrifa borgar- stjóra Athugasemdir við orð borgarstjóra

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.