Fréttablaðið - 19.02.2004, Page 47
43FIMMTUDAGUR 19. febrúar 2004
hvað?hvar?hvenær?
16 17 18 19 20 21 22
FEBRÚAR
Fimmtudagur
FÓTBOLTI Varnarmaðurinn efnilegi
Sverrir Garðarsson segist ætla að
spila með FH-ingum í Lands-
bankadeildinni á komandi tímabili
jafnvel þótt hann sé samnings-
bundinn norska úrvalsdeildarlið-
inu Molde næstu tvö árin. Sverrir
sagði í samtali við Fréttablaðið í
gær að það væri mun meiri líkur
en minni að hann spilaði með FH
enda stæði hugur hans til þess.
„Ég hef engan áhuga á því að sitja
á varamannabekknum í Noregi og
tel að ferli mínum sé betur borgið
með því að spila með FH,“ sagði
þessi tvítugi strákur sem stóð
vaktina í vörn FH í fyrra með
sóma.
Sverrir sagðist hafa mestan
áhuga á því að losna alfarið undan
samningi við Molde en það kæmi í
ljós á næstu dögum hvort af því
yrði. „Ég vil ekki fara aftur til
Noregs og ef Molde ætlar að lána
mig til FH þá eru þeir eingöngu að
fresta því að losa mig undan
samningi. Ég trúi því ekki að þeir
hafi áhuga á því að hafa leikmann
sem vill ekki spila hjá félaginu,“
sagði Sverrir. ■
FÓTBOLTI Keisarinn Franz Becken-
bauer, forseti Bayern Munchen,
óttast að Werder Bremen sé búið
að tryggja sér þýska meistaratitil-
inn.
Bremen er á toppnum, níu stig-
um á undan meisturum
Bayern. Enn eru þó eftir
fjórtán leikir og allt getur
gerst. Beckenbauer er
samt sem áður vonlítill.
„Það er dálítið sárt að
þurfa að eltast við titilinn
og ég óttast að okkur takist
það ekki,“ sagði hann. „Til
hamingju Werder, með
Þýskalandsmeistartitil-
inn.“
Bremen, sem varð síð-
ast meistari 1993, vann
Kaiserslautern um helgina með
einu marki gegn engu á meðan
Bayern tapaði gegn Bochum með
sömu markatölu. „Ef við værum
sex stigum á eftir þeim segði ég að
við ættum möguleika vegna
þess að við eigum eftir
heimaleik gegn Bremen. En
níu stig er of mikið að vinna
upp í fjórtán leikjum. Í
rauninni erum við að berj-
ast um annað sætið. Við get-
um alveg lifað án titilsins.
Mikilvægast er að komast í
meistaradeildina,“ sagði
keisarinn, sem er ekki van-
ur að liggja á skoðunum sín-
um. ■
GOLF Laura Davies, Annika Sör-
enstam og Michelle Wie eru allt
nöfn sem hafa verið áberandi í fjöl-
miðlum upp á síðkastið. Davies varð
á dögunum fyrst kvenna til að spila
í Evrópsku móta-
röðinni í golfi, Sör-
enstam varð í fyrra
fyrsta konan í 58 ár
til að keppa í PGA-
mótaröðinni og
Michelle Wie keppti
fyrir skömmu á
Sony-karlamótinu.
Þótt engin þeirra
hafi komist í gegn-
um niðurskurðinn
hafa þær tvímæla-
laust komið með
ferska vinda inn í
golfheiminn. Sitt
sýnist samt hverj-
um um þátttöku
þeirra á mótunum
og margir hafa
spurt sig hvert golfíþróttin stefni.
„Mér finnst þetta ágætt í hófi. Ef
þetta væri ofgert held ég að þetta
færi að skaða frekar en hitt,“ segir
Úlfar Jónsson og útskýrir nánar:
„Þetta er ekki alveg sambærilegt.
Þegar konur keppa á karlamótum
eru þær að spila á sömu teigum og
karlarnir og það er staðreynd að
þær slá yfirleitt styttra. En mér
finnst þetta mjög gott mál eins og
þátttakan hjá Annika Sörenstam í
fyrra og Michelle Wie á Havaí. Það
var bara alveg frábært.“
Úlfar telur að þátttaka kvenna á
karlamótum sé fyrst og fremst
hugsuð til að auka aðsókn á mót. Til
dæmis hafi mótshaldarar boðið Wie
á alla vega sjö karlamót upp á
síðkastið. „Þeir sjá það alveg í hendi
sér að þetta eykur umfjöllun alveg
gríðarlega. Það hefur aldrei verið
jafnmikil umfjöllun um eitt venju-
legt mót eins og í fyrra þegar Sör-
enstam tók þátt og það er bara
gott,“ segir Úlfar. Hann vill ekki
meina að konurnar séu að taka laus
sæti á mótum frá körlum eins og
sumir erlendir kylfingar hafa
kvartað yfir. „Mótshaldarar eiga
nokkur sæti sem þeir mega bjóða
hverjum sem er og þeir eiga að gera
það á sínum forsendum.“
Aðspurður hvort konur hafi eitt-
hvað fram yfir karla þegar kemur
að golfi segist Úlfar eiga erfitt með
að svara því. Hann vill helst ekki
bera kynin tvö saman. „Þær bestu
eru yfirleitt beinskeyttari en á móti
þá slá þær styttra. Það er auðveld-
ara að slá boltann beinna eftir því
sem þú slærð styttra, það er bara
staðreynd.“
Hér á Íslandi hefur eitthvað ver-
ið um að konur keppi á móti körlum
og þá aðallega á útsláttarmóti sem
haldið er árlega á Nesinu. Þar er
spilað upp á skor á einni holu í senn
og dettur sá keppandi út sem hefur
hæsta skorið eftir hverja holu.
Ragnhildur Sigurðardóttir, Íslands-
meistari í golfi, bar sigur úr býtum
á mótinu síðasta sumar og vakti það
mikla athygli.
Hún segir að gaman hafi verið að
keppa við karlana. „Þeir voru að slá
nokkuð lengra en ég en
það dugði ekki til hjá
þeim greyjunum. Frétta-
mennirnir voru að stríða
mér allan hringinn að ég
ætti ekki möguleika, ætli
ég hafi ekki bara farið
áfram á þrjóskunni,“ seg-
ir Ragnhildur sem stefnir
á að verja titilinn í sumar.
Hún segist vera mjög
ánægð með aukna þátt-
töku kvenna á karlamót-
um. „Þetta er náttúrlega
meiri samkeppni fyrir
þær sem eru orðnar
svona góðar eins og Wie. Í gegnum
tíðina hefur hallað á konur í sam-
bandi við umfjöllun um golf og mér
finnst þetta skref í rétta átt til að
breyta því.“
Ragnhildur gefur lítið út á þá
gagnrýni sem karlar hafa sett fram
um að konur eigi ekki heima á sama
móti. „Þeir eru alveg örugglega
spældir yfir þessari umfjöllun sem
þær fá, af því að auglýsingatekjurn-
ar spila mjög stóra rullu í golfi.
Annika fékk til dæmis alveg gífur-
lega umfjöllun þegar hún tók þátt
síðasta sumar. Þetta er kannski ein-
hver hræðsla í þeim. Ef þær vinna
þá eru þeir í slæmum málum, en
síðan er stór hluti karla sem er bara
ánægður með þetta,“ segir hún.
Aðspurð hvort konur hafi eitt-
hvað fram yfir karla á golfvellinum
segir Ragnhildur að þær
séu alveg samkeppnis-
færar hvað varðar hug-
læga þáttinn. Karlarnir
séu aftur á móti sterkari
en það sé það eina sem
ætti að aðskilja kynin.
„Karlarnir ná ekki alltaf
besta skorinu og það hef-
ur sýnt sig. Þeir hafa
meiri möguleika ef hug-
lægi þátturinn er jafngóð-
ur og hjá þeim sem slá
styttra.“
Hún telur að bestu
konurnar geti alveg spjar-
að sig á meðal karlanna. „Það er
fullt af körlum sem eru atvinnu-
menn sem eru ekki að vinna mót en
eru samt að spjara sig. Maður
kannski sér þær ekki ganga þarna
inn og vinna aftur og aftur. Þetta er
rosalega mikil barátta og ofboðs-
lega góðir kylfingar að berjast. Ég
hef samt óbilandi trú á henni Wie.
Hún á eftir að gera rosalegar rósir,“
segir Íslandsmeistarinn að lokum.
freyr@frettabladid.is
Góð afkoma Íslands-
meistara KR á síðasta ári:
11,8 milljóna
króna
hagnaður
FÓTBOLTI Forráðamenn KR Sports,
rekstrarfélag meistaraflokks og
2. flokks karla í knattspyrnu hjá
KR, ganga glaðir um gólf þessa
dagana eftir að hafa skilað af sér
rekstrarskýrslu fyrir síðasta ár.
Hagnaðurinn af rekstrinum
var 11,8 milljónir króna sem er
rúmum 11 milljónum meira en á
síðasta ári. Þetta er afbragðsgóð
afkoma og sagði Jónas Kristins-
son, formaður KR Sports, að meg-
inástæðan fyrir góðri afkomu
væri endurskipulagning reksturs-
ins sem hefði tekist afar vel,
samningar við lánardrottna hefðu
sitt að segja en auk þess hefðu
menn í félaginu unnið virkilega
gott starf.
„Það þarf að passa vel upp á
svona rekstur og menn verða að
vera á tánum. Við erum ánægðir
með þessa afkomu og stefnum að
því að halda áfram á sömu braut
en það má hvergi slaka á þessu –
þá er voðinn vís,“ sagði Jónas.
KR-ingar hafa orðið Íslands-
meistarar undanfarin tvö ár og
fengið til sín marga afar sterka
leikmenn. Það að þeim hafi tekist
að reka KR Sport með þessum
mikla hagnaði verður að teljast
mikið afrek. ■
■ ■ LEIKIR
19.15 Hamar tekur á móti Tinda-
stól í Hveragerði í Intersportdeildinni í
körfubolta.
19.15 Haukar sækja Njarðvík
heim í Intersportdeildinni í körfubolta.
19.15 ÍR og KFÍ eigast við í Selja-
skóla í Intersportdeildinni í körfubolta.
■ ■ SJÓNVARP
16.45 Handboltakvöld í Sjónvarp-
inu.
18.00 Olíssport á Sýn. Fjallað er
um helstu íþróttaviðburði heima og er-
lendis
18.30 Heimsbikarinn á skíðum á
Sýn. Nýjustu fréttir af framgöngu skíða-
manna á heimsbikarmótum.
19.00 Inside the US PGA Tour
2004. Þáttur um PGA-mótaröðina í golfi
á Sýn.
19.30 Sterkasti maður heims á Sýn.
Kraftajötnar reyna með sér í ýmsum
þrautum
20.00 Sterkasti maður heims á
Sýn.
21.00 Evrópska PGA-mótaröðin í
golfi á Sýn. ANZ- meistaramótið.
22.00 Olíssport á Sýn.
BECKENBAUER
Hefur litla trú á að
Bayern takist að
vinna titilinn í ár.
Beckenbauer missir vonina:
Óskar Bremen til hamingju
SVERRIR GARÐARSSON
Sverrir Garðarsson ætlar sér að spila með
FH-ingum á komandi tímabili.
Sverrir Garðarsson búinn að fá leið á Noregi:
Vill spila með
FH í sumar
Höggstuttar konur
í karlaheimi
Færst hefur í vöxt að konur etji kappi við karla á golfmótum úti í heimi. Fréttablaðið spurði Úlfar
Jónsson og Ragnhildi Sigurðardóttur, margfalda Íslandsmeistara, út í þeirra skoðun á þessari þróun.
ÚLFAR
Finnst þátttaka kvenna á
golfmótum karla ágæt í
hófi.
MICHELLE WIE
Hin fjórtán ára Wie er talin ein bjartasta
vonin í kvennagolfinu.
RAGNHILDUR
Meiri samkeppni fyrir konur
eins og Michelle Wie að fá
að keppa við karla.
„Frétta-
mennirnir
voru að
stríða mér
allan hring-
inn að ég
ætti ekki
möguleika,
þannig að
ég fór bara
áfram á
þrjóskunni.