Fréttablaðið - 07.05.2004, Blaðsíða 45
7FÖSTUDAGUR 7. maí 2004
Plastikk:
Skrautlegar vörur
Plastefni eru til í mörgum mis-
munandi gerðum og notuð við
framleiðslu á ótrúlegustu hlutum.
Plastfatnaður sést reglulega á
sýningarpöllunum erlendis og
plast hefur alltaf verið vinsælt í
ýmis konar iðnhönnun.
Þegar sumarið kemur og
sveitaferðirnar bresta á koma
plastdiskarnir og hnífapörin sér
vel og ekki er verra að hafa plast-
bollana, glösin og sítrónupress-
una líka meðferðis.
Verslunin Plastikk, sem er í
bakhúsi við Laugaveginn, selur
mikið úrval af litríkum plastvör-
um í öllum stærðum og gerðum,
allt frá barnabollasetti upp í dýr-
indis stofuljósakrónur.
Hollendingurinn Ino er eig-
andi búðarinnar og segir viðskipt-
in ganga vel. Hann kaupir flestar
vörurnar í gegnum Holland en
þær koma frá Indlandi og
Mexíkó.
Það er eiginlega allt skrautlegt
og litríkt í Plastikk og skærir og
skemmtilegir litir fara alltaf vel
við íslensku sumarsólina. ■
Breytt til heima:
Skilvirk og skemmtileg
svefnherbergi
Svefnherbergi nútímans þurfa að
vera í takti við þarfir okkar; aðlag-
anleg, skilvirk og skemmtileg, en
um leið þessi dásamlega prívat
dyngja sem við leitum skjóls í. Vita-
skuld eru svefnherbergi ætluð til
svefns og hvíldar, en engu að síður
vita allir að við lesum í þeim,
höngsum, vinnum stundum,
elskumst og lifum dekurlífi þar inni,
í skjóli fyrir öllum hasarnum sem
oft fylgir öðrum herbergjum húss-
ins. Ef þú ætlar að endurskipu-
leggja svefnherbergið ætti and-
rúmsloftið að endurspegla smekk
þinn og henta venjum þínum. Og
hvað sem líður stíl, litum og mubl-
um ætti hvert einasta svefnher-
bergi að vera útbúið góðum
leslömpum, náttborðum, mottum
eða teppum, og gluggatjöldum
sem veita myrkur og vernda einka-
líf. Rúmgóðir skápar og kommóða
eru þarfaþing, og auðvitað væri ar-
inn eða þá aðgangur að svölum
yndislegur, svo ef þú hefur auraráð
eða rými til slíks er hamingja innan
svefnherbergisins fullkomnuð. ■
Klósettrúlluhirsla
1.480 kr.
Ljósakróna
4.200 kr.
Bleikt blóm 350 kr.
Rósalengja
1.380 kr.
Snagi 750 kr.
Bakki 3.300 kr.
Sítrónupressa 460 kr.
Grænn diskur 1.500 kr.
Köflóttur diskur 2.000 kr.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
H
ug
tö
k
M
aí
0
4
Blár lítill diskur 180 kr.,
diskamotta 750 kr.,
bolli úr fimm bolla setti 760 kr.