Fréttablaðið - 20.05.2004, Qupperneq 2
2 20. maí 2004 FIMMTUDAGUR
„Nei, alls ekki. Mér finnst þetta mjög
skemmtilegt lið og alltaf gaman að
spila á móti þeim.“
Margrét Lára Viðarsdóttir hefur skorað tíu mörk
gegn Breiðabliki í þremur leikjum það sem af er
árinu, þar af fjögur í fyrsta leik liðanna á
Íslandsmótinu.
SPURNING DAGSINS
Margrét Lára, er þér eitthvað
illa við Blika?
HÆSTIRÉTTUR Hæstiréttur sýknaði
Pétur Þór Gunnarsson, fyrrverandi
eigandi Gallerí Borgar, og Jónas
Freydal Þorsteinsson í stóra mál-
verkafölsunarmálinu í gær, en Hér-
aðsdómur Reykjavíkur dæmdi þá í
fyrra í nokkurra mánaða skilorðs-
bundið fangelsi.
Þeir voru sakaðir um skjalafals
og fjársvik með því að hafa blekkt
viðskiptavini til að kaupa málverk
sem þeir hefðu
tekið þátt í að
falsa. Rannsókn á
málinu er dýras-
ta lögreglurann-
sókn Íslandssög-
unnar, tók sjö ár
og nemur kostn-
aður við hana um
50 milljónum
króna. Lögreglan
hafði við rann-
sókn málsins leit-
að til kunnáttu-
manna um rann-
sóknir og álits-
gerða vegna þeir-
ra málverka sem
snertu málið.
Hæstiréttur
taldi að ákæruvaldinu hefði ekki
tekist að sýna nægilega fram á að
verkin tengdust ákærðu og þar sem
Listasafn Íslands væri einn kæren-
da í málinu hefðu hinar sérfræði-
legu álitsgerðir sem lögregla hafði
aflað hjá starfsmönnum safnsins
fyrir útgáfu ákæru ekki talist tækar
fyrir dómi til sönnunar í málinu.
„Var ekki talið að þau sönnunar-
gögn, sem eftir stæðu, nægðu til
þess að ákæruvaldið gæti talist hafa
axlað þá sönnunarbyrði, sem á því
hvíldi,“ segir í dómi Hæstaréttar.
Tveir dómarar töldu Pétur Þór
og Jónas seka og skiluðu sér-
atkvæði og vildu þyngja héraðs-
dóminn. Bogi Nilsson ríkissaksókn-
ari sagði alltaf erfitt að sanna svona
mál. „Við sættum okkur að sjálf-
sögðu við niðurstöðuna,“ sagði
hann.
Verjendur sögðu dóminn áfellis-
dóm yfir rannsókninni. „Þetta er
eðlilegur dómur miðað við það
hvernig að málinu og rannsókn þess
var staðið af hálfu lögreglunnar.
Það má öllum vera ljóst að í sönnun-
um verður að hafa sérfræðinga sem
eru óháðir,“ sagði Ragnar Aðal-
steinsson, sem var verjandi Péturs
Þórs fyrir Hæstarétti. Hann bætti
því við að telji kærendur sig geta
sýnt fram á að þeir hafi orðið fyrir
fjárhagslegu tjóni vegn málsins geti
þeir líklega látið á það reyna að
höfða einkamál.
Ragnar segir að Pétur Þór geti
hugsanlega farið fram á skaða-
bætur.
„Það er vegna þess að hann var
látinn sitja í sex mánuði í fangelsi
með ólögmætum hætti, þegar aðrir
við sambærilegar aðstæður voru
látnir sitja í þrjá mánuði,“ segir
Ragnar.
bryndis@frettabladid.is
Dæmdur til að endurgreiða ránsfenginn:
Tveggja ára fangelsi
fyrir Skeljungsránið
DÓMSMÁL Rúmlega fertugur mað-
ur, Stefán Aðalsteinn Sigmunds-
son, var dæmdur í tveggja ára
fangelsi í Héraðsdómi Reykjavík-
ur í gær fyrir Skeljungsránið í
Lækjargötu í febrúar árið 1995.
Hann var einnig dæmdur til að
greiða tæpar sex milljónir í
skaðabætur, eða því sem sam-
svarar ránsfengnum.
Stefán hafði áður játað sinn
hlut hjá lögreglu en dró þann
framburð til baka og segist hafa
verið beittur þrýstingi. Hann er
sakfelldur fyrir að hafa framið
ránið í félagi með tveimur öðrum
mönnum, en annar þeirra framdi
sjálfsvíg áður en hann mætti í
skýrslutöku hjá lögreglu.
Fyrrum eiginkona Stefáns bar
vitni fyrir dómi þar sem hún sagði
Stefán hafa sagt sér frá aðild sinni
að ráninu auk þess sem hún hafi
tekið við hans hlut af ránsfengn-
um. Stefán segist aðeins hafa sagt
fyrrum konu sinni frá því sem
hann hafði eftir öðrum um ránið.
Þótti dómnum framburður fyrr-
um konu hans trúverðugur og í
samræmi við þær skýrslur sem
hún hafði áður gefið. Þá segir að
skýringar Stefáns, um að hann
hafi áður játað hjá lögreglu vegna
hótana um gæsluvarðhald, séu
haldlausar. Við refsiákvörðun var
höfð hliðsjón af því hversu langt
væri liðið frá ráninu. ■
Raufarhafnarhreppur
sýknaður:
Krafðist 2,7
milljóna
DÓMSMÁL Raufarhafnarhreppur
var sýknaður í Hæstarétti af kröf-
um fyrrverandi sveitarstjóra en
honum höfðu verið dæmdar 2,7
milljónir króna í Héraðsdómi
Norðurlands eystra.
Deilt hafði verið um hvernig
bæri að skilja ráðningarsamning
fyrrum sveitarstjórans, sem fór
fram á að fá greiddan uppsagnar-
frest eftir að ráðningarsamningi
hans lauk. Niðurstaða Hæstarétt-
ar var að sýkna bæri hreppinn af
kröfunum, þar sem uppsagnar-
ákvæði samningsins hafi ekki
verið beitt heldur hafi hann runn-
ið út. Sveitastjórinn var dæmdur
til að greiða hreppnum 300 þús-
und krónur í málskostnað. ■
DUFTINU KASTAÐ
Duftinu var beint að forsætisráðherranum
en lenti á fjármálaráðherra hans.
Uppnám í þinginu:
Dufti kastað
á Tony Blair
LONDON, AP Rýma þurfti þingsalinn
eftir að dufti var kastað að Tony
Blair forsætisráðherra. Duftið
reyndist meinlaust en það breytti
því ekki að málið var litið mjög al-
varlegum augum.
Tveir menn voru handteknir
vegna málsins, en samtök sem
berjast fyrir auknum rétti feðra
lýstu ábyrgð á hendur sér. Menn-
irnir voru í herbergi fyrir gesti
þingmanna og lávarða, þar sem
öryggisgæsla er minni en í áhorf-
endasal almennings. Í ljós kom að
lávarður einn hafði skrifað upp á
leyfi þeirra og ákvað þingforseti
að lávarðarnir mættu ekki lengur
bjóða gestum sínum í gesta-
herbergi þingmanna. ■
■ EVRÓPA
Samkeppnisstofnun:
Uppsögn
braut í bága
við lög
ATVINNUMÁL Samkeppnisstofnun
hefur staðfest að nýleg uppsögn
Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar á
leigusamningi Íslensks markaðar
í Leifsstöð braut í bága við lög og
ákvarðanir samkeppnisyfirvalda.
Niðurstaðan þýðir að forsvars-
menn Leifsstöðvar verða að fres-
ta forvali vegna útboðs á við-
skiptatækifærum í flugstöðinni
sem fram átti að fara innan tíðar.
Fagnar stjórn og starfsmenn ÍM
þessari ákvörðun enda sé nú
bundinn endi á deilur þær sem
staðið hafa yfir um skeið vegna
þessa. ■
STEFÁN AÐALSTEINN SIGMUNDSSON
Dómnum þótti ekki trúverðugt að Stefán
hefði játað ránið hjá lögreglu vegna
hótana um gæsluvarðhald.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
SCHRÖDER KÆRIR KENNARA Ger-
hard Schröder Þýskalandskanslari
hefur kært rúmlega fimmtugan at-
vinnulausan kennara. Maðurinn sló
Schröder utan undir þegar
Schröder var á kosningaferðalagi á
dögunum. Talsmaður Schröders
sagði ekki hægt að láta manninn
komast upp með líkamsárás.
GEFIÐ YKKUR FRAM Þing Bosníu-
Serba hefur hvatt alla þá sem grun-
aðir eru um stríðglæpi til að gefa
sig fram við yfirvöld til að draga úr
hættu á að saklausir borgarar skað-
ist. Þingmenn samþykktu þetta þeg-
ar þeir ræddu skýrslu um mis-
heppnaða tilraun til að handsama
stríðsglæpamenn sem kostaði sak-
lausan borgara lífið.
Sjómenn og útgerðar-
menn ræða kjaramál:
Fundur
árángurslaus
SJÓMENN „Hvorki gekk né rak,“
sagði Guðjón Ármann Einarsson,
framkvæmdastjóri félags skip-
stjórnamanna, um kjarafund háseta
og skipstjórnarmanna við útgerðar-
menn hjá Ríkissáttasemjara í gær.
Fundurinn stóð í klukkustund.
Í kjölfar fundarins fóru for-
svarsmenn Sjómannasambands Ís-
lands yfir stöðuna með formönnum
sjómannafélaganna. „Menn eru ó-
ánægðir með það að þetta skuli ekki
geta gengið hjá okkur eins og öðr-
um. Það þarf tvo til að ljúka samn-
ingum og við erum tilbúnir til þess,“
segir Hólmgeir Jónsson, fram-
kvæmdastjóri SÍ.
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri LÍÚ, segir sjómenn í
örðu launakerfi en aðrir og málin
séu flókin. „Við viljum að sjálfsögðu
semja við sjómenn.“
Nýr fundur er boðaður í byrjun
ágúst. ■
Laugarvatnsræninginn:
Úrskurðað-
ur í síbrota-
gæslu
GÆSLUVARÐHALD Rúmlega tvítugur
maður, sem var stöðvaður í Mos-
fellsbæ á miðvikudag eftir ofsa-
akstur um Suðurlands- og Vestur-
landsveg, var úrskurðaður í gæslu-
varðhaldí sex vikur, til 30. júní.
Maðurinn var nýsloppinn úr
haldi lögreglunnar á Selfossi eftir
vopnað rán í verslun við Laugar-
vatn. Á Selfossi stal hann bílnum
sem hann ók. Farið var fram á sí-
brotagæslu yfir manninum, þar
sem nokkur mál sem hann er talinn
tengjast eru enn í rannsókn. ■
DÓMSMÁL „Þetta er mikill léttir og
staðfestir sakleysi mitt sem ég hef
alla tíð haldið fram. Margra ára
martröð er loks lokið. Eftir ræður
verjenda var ég sannfærður um að
við yrðum sýknaðir, enda bestu lög-
menn sem völ er á,“ sagði Pétur Þór
Gunnarsson eftir að Hæstiréttur
kvað upp dóminn í stóra málverka-
fölsunarmálinu.
Pétur segir málið hafa haft
hræðileg áhrif á líf sitt og fjöl-
skyldu sinnar, en nú taki við bjart-
ari tímar. „Þetta hefur verið erfitt
og umturnað mínu lífi. Nú ýti ég
þessu frá mér og horfi fram á veg-
inn og reyni að tjasla lífinu saman,“
segir Pétur.
Jón H. Snorrason, sem stýrði lög-
reglurannsókninni, segir dóminn
koma á óvart. „Við völdum vísinda-
menn samkvæmt venjum og við-
horfi um hæfi og vanhæfi. Dómur-
inn skýtur því skökku við og er
ótrúverðugur. Listasafnið, sem er
langstærsti listaverkaeigandi
landsins, kærði tvær myndir og vís-
indamennirnir komu ekki nálægt
þeim,“ segir Jón.
Ólafur Ingi Jónsson, forvörður
og einn kærenda, segir dóminn
mikil vonbrigði. „Ég efast um að
málinu sé lokið af minni hálfu.
Það er enginn vafi í mínum huga
að öll verkin eru fölsuð. Allar aðr-
ar niðurstöður eru ankannalegar,“
segir Ólafur Ingi. ■
PÉTUR ÞÓR
Segir málið hafa haft hræðileg áhrif á líf sitt.
Pétur Þór Gunnarsson:
Sakleysi mitt staðfest
VERJENDURNIR ÁNÆGÐIR
Ragnar Aðalsteinsson og Sigríður Rut Júlíusdóttir, verjendur Péturs Þórs, segja niður-
stöðuna í stóra málverkafölsunarmálinu í samræmi við málflutning sinn.
„Var ekki
talið að þau
sönnunar-
gögn, sem
eftir stæðu,
nægðu til
þess að
ákæruvaldið
gæti talist
hafa axlað þá
sönnunar-
byrði, sem á
því hvíldi.
Áfellisdómur yfir
rannsókn málsins
Hæstiréttur sýknaði Pétur Þór Gunnarsson og Jónas Freydal Þorsteins-
son í stóra málverkafölsunarmálinu. Tveir dómarar skiluðu sératkvæði.
Sérfræðiálit lögreglu þóttu ekki tæk fyrir dómi til sönnunar.