Fréttablaðið - 20.05.2004, Page 12

Fréttablaðið - 20.05.2004, Page 12
12 20. maí 2004 FIMMTUDAGUR HEFÐU VILJAÐ SONIU GANDHI Stuðningsmenn Kongressflokksins eru allt annað en sáttir við að Sonia Gandhi verður ekki næsti forsætisráðherra Indlands. Nokkrir brenndu mynd af fráfarandi forsætisráðherra, sem sagði hana ekki geta orðið forsætisráðherra vegna uppruna síns. Könnun í þremur framhaldsskólum: Andstaða við sam- ræmd stúdentspróf MENNTAMÁL Meirihluti framhalds- skólanemenda, eða 84%, reyndust mjög eða frekar andvígir sam- ræmdum stúdentsprófum, í könn- un sem gerð var í þremur mennta- skólum landsins. Það var hópur nemenda í Kvennaskólanum í Reykjavík sem vann könnunina. Kannað var við- horf nemenda á 1–3. ári í Mennta- skólanum á Egilsstöðum, Fjöl- brautaskólanum við Ármúla og Kvennaskólanum í Reykjavík. Þeir sem eru frekar eða mjög andvígir samræmdum stúdents- prófum telja að meiri fyrirvari hafi verið nauðsynlegur. Einnig telja þeir að þörf hafi verið á betri kynningu og fleiri upplýsingum til að meta stöðuna. Samkvæmt könnuninni er minnihluti nemenda, eða 32%, frekar eða mjög andvígir stytt- ingu námstíma til stúdentsprófs. Nemendur í bekkjakerfi eru frek- ar á móti styttingu námstíma til stúdentsprófs en nemendur í áfangakerfi, eða samtals 40%.■ ■ DÓMSMÁL SÖKIN FYRND Maður á fertugs- aldri var sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur af því að hafa hrint stöðumælaverði. Ákæra var ekki gefin út fyrr en einu ári og fjór- um mánuðum eftir árásina og þá voru um þrjú ár frá því að hún átti sér stað. Sök í málinu fyrnist á tveimur árum. FRAMHALDSSKÓLAR Í könnun sem gerð var í þremur framhaldsskólum reyndist mikill meirihluti nemenda andvígur samræmdum stúdentsprófum. LÖGGA Í HANDBOLTA Ríkið sýknað af bótakröfu lögreglumanns sem slasaðist í handboltakeppni lögreglumanna. Tognaði á handboltamóti lögreglumanna: Ríkið sýknað BÓTAKRAFA Íslenska ríkið var í gær sýknað af bótakröfu lögreglu- manns sem slasaðist á norrænu handboltamóti lögreglumanna sem fram fór í árslok 2000. Lenti lögreglumaðurinn í samstuði við erlendan kollega sinn með þeim afleiðingum að hann tognaði. Krafðist hann rúmlega hálfrar milljón króna í skaðabætur og var krafan reist á ákvæðum í kjara- samningi lögreglumanna. Héraðsdómur Reykjavíkur taldi að í skilningi kjarasamnings hefði lögreglumaðurinn verið við störf er hann keppti á handboltamótinu. Hins vegar var ríkið sýknað af kröfum lögreglumannsins þar sem ákvæði kjarasamningsins kváðu ekki á um rétt til slysabóta. ■ Allar líkur eru á því að fjölmiðla-frumvarp ríkisstjórnarinnar verði samþykkt sem lög frá Alþingi í lok vikunnar. Þriðja umræða stóð yfir fram á kvöld í gær en þingfund- ir hafa verið boðaðir bæði á föstu- dag og laugardag. Hafa þingmenn verið beðnir um að búa sig undir kvöldfundi báða dagana. Þingmenn sem Fréttablaðið ræddi við töldu líklegt að frumvarp- ið yrði samþykkt með 33 atkvæðum stjórnarliða gegn 30 atkvæðum stjórnarandstöðunnar, auk fram- sóknarmannsins Kristins H. Gunn- arssonar, en viðmælendur blaðsins töldu að Jónína Bjartmarz myndi sitja hjá. Einn þingmaður Framsóknar- flokksins sagði í samtali vð Fréttablaðið að Halldór Ásgríms- son, formaður flokksins, hefði lagt mjög hart að þingmönnum Framsóknar að styðja frumvarp- iðo og fundað með hverjum og einum sérstaklega í þeim tilgangi að tryggja málinu brautargengi innan þingflokksins. „Alferð var of seinn á sér,“ sagði þessi sami þingmaður og vísaði þar til Alfreðs Þorsteinssonar, oddvita framsóknarmanna í Reykjavík, en meirihluti borgarstjórnar ályktaði gegn frumvarpinu í fyrrakvöld. Óvíst um afstöðu Jónínu Jónína Bjartmarz vildi í samtali við Fréttablaðið ekki láta uppi um hvernig hún hyggðist greiða at- kvæði við afgreiðslu frumvarpsins. „Ég hef stutt allar góðar breytingar á þessu frumvarpi,“ sagði Jónína. Kristinn H. Gunnarsson er hins vegar ákveðinn í því að greiða at- kvæði gegn frumvarpinu. „Ég er ekki viss um að þingmenn Fram- sóknarflokksins styddu málið ef þér létu aðeins samvisku sína ráða,“ sagði Kristinn við Fréttablaðið. Ekki er útlit fyrir annað en að þing- menn Sjálfstæðisflokksins muni styðja frumvarpið allir sem einn og hefur það verið viðkvæði þeirra frá því að frumvarpið kom fyrst fram. Í samtölum Fréttablaðsins við ýmsa þingmenn Sjálfstæðis- flokksins í gær kom fram að samstaða þeirra í mál- inu er órofin. Tvær meginbreyting- ar á frumvarpinu Bjarni Benediktsson, formaður allsherjarnefnd- ar, mælti fyrir breytingar- tillögum meirihluta nefnd- arinnar við upphaf þriðju umræðu um fjölmiðla- frumvarpið á Alþingi í gær. Meirihlutinn lagði til tvær meginbreytingar á frumvarpinu og eru þær samhljóða breytingum sem formenn stjórnarflokk- anna kynntu sl. sunnudag. Í fyrsta lagi fela breytingar- tillögurnar í sér að reglur um hámarkseignarhlut eins aðila í ljósvakamiðli eru BORGAR ÞÓR EINARSSON BLAÐAMAÐUR FRÉTTASKÝRING ÞRIÐJA UMRÆÐA UM FJÖLMIÐLAFRUMVARPIÐ VIÐ ÞRIÐJU UMRÆÐU Þingsalur Alþingis var næstum fullskipaður þegar þriðja umræða um fjölmiðlafrumvarpið hófst fyrir hádegi í gær. Búist er við að frumvarpið verði samþykkt sem lög frá Alþingi í lok vikunnar. Fjölmiðlafrumvarp að lögum í vikulok? Fjölmiðlafrumvarpið verður að öllum líkindum að lögum um næstu helgi. Þar með verður til lykta leitt eitt umdeildasta þingmál í tíð núverandi þingmeirihluta. Töluverðar breytingar hafa verið gerðar á frumvarpinu en þó er engin sátt um málið í þinginu. SÝNDU STJÓRNVÖLDUM RAUÐA SPJALDIÐ Talsverður mannsöfnuður var við mótmæli á Austurvelli í gær á vegum Áhugahóps um lýðræði. Tilefni mótmælanna voru endurteknir lýðræðis- brestir, nú síðast lagasetning um eignarhald á fjölmiðlum og veifuðu þátttakendur rauðum spjöldum í táknrænum tilgangi. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.