Fréttablaðið - 20.05.2004, Page 33

Fréttablaðið - 20.05.2004, Page 33
Ein af hverjum fimm konum í Bret- landi myndi fórna því að fá stöðu- eða kauphækkun í vinnu sinni fyrir það að fá fallegri vöxt sem myndi sóma sér vel í bikiní. Þetta var nið- urstaða skoðanakönnunar sem Slim Fast lét gera meðal bresku þjóðar- innar. Könnunin leiddi einnig í ljós hversu tvístígandi margar konur eru í því að klæðast bikiní, og ein- hverjar þeirra sem talað var við líktu því við að hitta foreldra maka síns í fyrsta skiptið. Fjörutíu og fimm prósent aðspurðra sögðust halda að makar sínir horfðu mikið til erlendra kvenna á sólar- ströndum, þar sem það væri þeirra skoðun að erlendar konur væri flottari í vextinum en breskar. Sama könnun leiddi í ljós að um 21% breskra kvenna myndi frekar syngja í karaoke fyrir 100 ókunn- uga en að láta mynda sig berrassað- ar. 27% sögðust frekar treysta sér til þess að halda ræðu í brúðkaupi eða bjóða ókunnugri manneskju á stefnumót. Breskar konur sögðu svo að þeim þættu ítalskar konur fallegastar. Sænskar konur voru svo næstar í röðinni. ■ 25FIMMTUDAGUR 20. maí 2004 ■ KVIKMYNDIR Nýleg könnun leiddi í ljós að ein af hverjum fimm breskum konum vill frekar flottan vöxt en launahækkun. ■ SKRÝTNA FRÉTTIN Gítarnámskeið hefst 7. júní EINKATÍMAR Fyrir byrjendur og lengra komna Sími 581 1281 • www.gitarskoli.com KVIKMYNDIR Framleiðendur hasar- myndarinnar Hellboy vilja gera framhaldsmynd hið snarasta til að fylgja eftir vinsældum fyrri myndarinnar. Myndinni hefur gengið ákaf- lega vel í Bandaríkjunum. Hún halaði inn 23,2 milljónir dollara fyrstu sýningarvikuna í apríl og hefur síðan þá tekið inn alls 60 milljónir dollara, eða rúma fjóra milljarða króna. Guillermo del Toro hefur verið ráðinn aftur í leikstjórastólinn og búist er við að sömu leikarar verði í aðalhlutverkum. „Hellboy gekk ákaflega vel og var sérstakt verk- efni,“ sagði einn af framleiðend- um myndarinnar. „Einstök sýn Guillermo átti stærstan þátt í að gera myndina vinsæla og við erum mjög ánægðir að fá að vinna með honum aftur.“ Guillermo er um þessar mund- ir að undirbúa tökur á myndinni The Pan’s Labyrinth sem gerist á Spáni í Síðari heimsstyrjöldinni. Eftir að henni lýkur tekur við spennumyndin Mountains of Mad- ness. Áður en Guillermo gerði Hellboy var hann þekktastur fyrir myndirnar Mimic, Blade II og Cronon. Í þeirri síðastnefndu var Ron Perlman, sem leikur Hellboy, einmitt í aðalhlutverki. ■ HELLBOY Myndasögupersónan Hellboy virðist kunna vel við sig á hvíta tjaldinu. Framhalds- mynd um Hellboy RACHEL STEVENS Hefur síðastliðin ár verið valin fönguleg- asta kona Bretlands í helstu karlatímarit- unum. Hún er líklegast ekki í hópi þeirra sem óska frekar eftir flottum vexti en kauphækkun. Breskar konur fórna starfsframa fyrir fallegan vöxt

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.