Fréttablaðið - 20.05.2004, Blaðsíða 43

Fréttablaðið - 20.05.2004, Blaðsíða 43
Leikarinn Pierce Brosnan munleika James Bond í næstu mynd um kappann. Mikið hefur verið rætt um að Brosnan hafi leikið í sinni síðustu Bond-mynd og óttaðist leikarinn að framleið- endur myndanna vildu næst fá yngri mann í hlutverkið. Hann náði sáttum við framleiðendurna og nú hefur verið gengið frá samningum. Troy er rosalega stór mynd endavarla við öðru að búast þar sem myndin er byggð á Illionskviðu Hómers sem er einn hornsteina bókmenntasögunnar og lykilverk í vestrænni menningu. Hér er því boðið upp á mikið sjónarspil og stórfengleg atriði en samt virkar þetta allt saman eitthvað óekta. Það er vissulega tilkomumikið að horfa yfir hafflötinn þakinn þúsundum grískra herskipa og ekki síður að sjá tvær fylkingar tugþúsunda her- manna lenda saman í áköfum bar- daga. Stærðin er bara því miður ekki allt og hún breytir litlu þegar tilfinninguna vantar og það er ein- mitt tilfinningaleysi, yfir höfuð, sem háir myndinni. Eftir hroðalega bardagaatriði í myndum eins og Braveheart og Saving Private Ryan er varla hægt að bjóða upp á stórar stríðssenur sem eru sneiddar allri þjáningu en hér falla menn unnvörpum án telj- andi blóðsúthellinga, limlestinga og þjáninga. Trójustríðið hefur sjálfsagt verið mildað til þess að takmarka ekki aðgengi yngri áhorfenda að myndinni en afleið- ingin er sú að þeir sem sitja í saln- um ná lítilli tengingu við hetjurnar á vígvellinum. Þá ná harmrænar persónurnar ná ekki að snerta taugar áhorfenda að Hektor Trjóuprinsi frátöldum, en hann er langsterkasta persóna myndarinnar í meðförum Erics Bana sem er eini leikarinn sem er raunverulega að gera eitthvað af viti í öllum þessum stjörnufansi. Orlando Bloom er vitaskuld voða krútt og stendur undir per- sónu Parísar sem fer það best að vera sætur og heilla konur. Hann sýnir þó engin tilþrif fyrr en hann mætir konungi Spörtu í einvígi en þá breytist flagarinn á augabragði á skemmtilegan hátt í væluskjóðu. Stærsti Akkilesarhæll myndarinn- ar er svo því miður Brad Pitt í hlut- verki sjálfs Akkilesar. Pitt er vel vaxinn og sýnir mikið bert hold en það hlýtur andskotakornið að hafa verið hægt að finna meira karl- menni til þess að túlka þessa fræg- ustu hetju menningarsögunnar. Akkiles er hálfgerður málaliði sem berst einungis til þess að nafn hans muni lifa í gegnum aldirnar. Hann náði því markmiði en ef eitt- hvað væri eftir af jarðneskum leif- um hans myndi hann snúa sér við í gröfinni ef hann vissi að allt hefði þetta verið til þess eins að Brad Pitt fengi að fara í sandalana hans og setja upp hjálminn. Þannig að þó Hektor falli fyrir hendi Akkilesar við Tróju þá vinnur Eric Bana óum- deildan leiksigur á Pitt á tjaldinu. Allt þetta nöldur mitt breytir því þó ekki að Troy er fínasta skemmtun, þó hún sé í lengri kant- inum og það er vissulega ánægju- legt að Hollywood skuli gefa forn- sögum svo mikinn gaum þessi misserin. Það fer þó alltaf um mann smá hrollur þegar sígild verk eru löguð að kröfum draumaverk- smiðjunnar. Þetta slapp fyrir horn í The Passion of the Christ þar sem Kristur endaði á krossinum en í Troy taka menn sér fullmikið skáldaleyfi þannig að þeir sem munu einungis kynnast Akkiles og félögum í bíó fá svikna útgáfu af Illionskviðu. Það er nánast ófyrirgefanlegt að sögufrægar persónur sem lifðu stríðið af og fóru með lykilihlutverk í sígildum harmleikjum að her- leiðangrinum loknum skuli drepnar hér til þess eins að þjóna markmið- um hins dæmigerða Hollywood- handrits þar sem við verðum að hafa í það minnsta einn skúrk sem hlýtur makleg málagjöld. Myndina setur heilmikið niður við þetta en það er þó huggun harmi gegn að Akkiles fær ör í hælinn. Þórarinn Þórarinsson FIMMTUDAGUR 20. maí 2004 35 Sýnd kl. 6 og 8 Sýnd kl. 10 SÝND kl. 3.45 M/ÍSL. TALI SÝND kl. 3.30, 5.30, 8, og 10.30 B.i. 12 SÝND kl. 6, 8 og 10 HHH Skonrokk HHHH HP kvikmyndir.com SÝND kl. 4, 6, 8 og 10 B.i. 14 POWERSÝNING kl.10 PÉTUR PAN kl. 4 M/ÍSL. TALI SÝND kl. 5.30, 8 og 10.20 B.i. 16 SÝND kl. 5.30, 8 og 10.20 B.i. 16 PASSION OF CHRIST kl. 8 Síð. Sýn. B.i 16 SÝND kl. 5.50, 8 og 10.10 B.i. 16 SÝND kl. 5.10 og 10.30 B.i. 16 RUNAWAY JURY kl. 8 og 10.30 Síð. Sýn. HHH Ó.H.T. rás 2 HHH DV HHH Tvíhöfði Vinsælasta myndin á Íslandi Brad Pitt, Orlando Bloom og Eric Bana i magnaðri stórmynd undir leikstjórn Wolfgang Petersen. STÓRVIÐBURÐUR ársins er kominn! Fyrsta stórmynd ársins þar sem hetjan Van Helsing á í höggi við Drakúla greifa, Frankenstein og Varúlf. Frábær ævintýramynd hlaðin tæknibrellum eins og þær gerast bestar í anda Indiana Jones. Dóttur valdamesta manns í heimi er rænt og aðeins einn maður getur bjargað henni. Frábær spennumynd frá leikstjóranum og handrit- shöfundinum David Mamet. ■ FÓLK Í FRÉTTUM Verjum tjáningarfrelsið a s k o r u n . i s [ KVIKMYNDIR ] UMFJÖLLUN Brad er Akkilesar- hællinn TROY Leikstjóri: Wolfgang Petersen Aðalhlutverk: Brad Pitt, Eric Bana, Orlando Bloom

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.