Fréttablaðið - 04.03.2004, Blaðsíða 42
42 4. mars 2004 FIMMTUDAGUR
BJÖRN BRÓÐIR kl. 4 og 6 M. ÍSL. TALIkl. 5.40, 8, og 10.20SOMETHING GOTTA GIVE
kl. 8, og 10.20LOVE ACTUALLY
kl. 5 og 8 B. i. 14 THE LAST SAMURAI
kl. 3.45 M/ÍSL TALIFINDING NEMO
SÝND kl. 4, 6, 8 og 10
SÝND Í LÚXUS VIP kl. 6, 8 og 10
kl. 4 & 8 Lúxus kl. 5 & 9LORD OF THE RINGSkl. 8 & 10.20LOST IN TRANSLATION
kl. 4 & 6 Með ísl. textaHUNDAHEPPNI
SÝND kl. 6, 8 og 10.10
kl. 6 og 9SOMETHING’S GOTTA GIVE
kl. 10 B.i. 14HOUSE OF SAND ....
kl. 9.10 B.i. 16 áraMYSTIC RIVER
SÝND kl. 6 og 9 B.i. 16
SÝND kl. 5 og 8 B. i. 16 ára
SÝND kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10 B. i. 16 ára
SÝND kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10
HHH1/2 SV MBL
HHH1/2 SV MBL
Sýnd kl. 6HESTASAGA
FILM-UNDUR KYNNIR
kl. 6 KALDALJÓS
Frábær
gamanmynd
frá höfundi
„Meet The
Parents“
Stórbrotin og margverðlaunuð
stórmynd með óskarsverð-
launahafanum Nicole Kidman, Golden
Globe og BAFTA verðlaunahafanum
Renée Zellweger og Jude Law.
HHH1/2 SV MBL
RENEÉ ZELLWEGER: Besta
leikkona í aukahlutverki.
RENEÉ ZELLWEGER:
Besta leikkona í aukahlutverki.
kl. 7HEIMUR FARFUGLANNA
BÍÓ Kvikmyndahátíðin Hinsegin
bíódagar hefst í dag og stendur til
14. mars. Þetta er í annað sinn
sem slík hátíð er haldin hér á
landi en fyrstu Hinsegin bíódag-
arnir voru haldnir í Reykjavík
vorið 1995 á vegum Samtakanna
'78, félags lesbía og homma á Ís-
landi. Í þetta sinn stendur FSS, Fé-
lag samkynhneigðra og tvíkyn-
hneigðra stúdenta, einnig að há-
tíðinni, sem er undir stjórn Hrafn-
hildar Gunnarsdóttur kvikmynda-
gerðarmanns.
„Það er gamall draumur að
skapa hér virka kvikmyndamenn-
ingu sem endurspeglar samkyn-
hneigða lífsreynslu,“ segir Þor-
valdur Kristinsson, formaður
Samtakanna '78. „En þetta er dýrt
og margir aðilar þurfa að koma að
því. Þegar kom í ljós að Hrafn-
hildur kæmi til samstarfs við okk-
ur létum við slag standa. Það er
ekki síst fyrir hennar tilstilli að
við höfum náð sambandi við höf-
unda og dreifingaraðila.“
Á þeim tíu dögum sem hátíðin
stendur yfir verða sýndar 14
myndir og tvö söfn stuttmynda í
Regnboganum. Opnunarkvik-
myndin verður hollenska gaman-
myndin Já systir, nei systir í leik-
stjórn Pieter Kramer. Með aðal-
hlutverk fer ein vinsælasta leik-
kona Hollendinga, Loes Luca, sem
verður heiðursgestur Hinsegin
bíódaga.
„Við vonumst til að geta fylgt
þessu eftir og haldið árlega kvik-
myndahátíð í framtíðinni en það
mun fara eftir aðsókninni. Mynd-
irnar hafa allar breiða skírskotun
og má til dæmis nefna myndina
Bróðir og utangarðsmaður sem
fjallar um Bayard Rustin sem var
einn nánasti samstarfsmaður
Martins Luthers King og samkyn-
hneigður. Í tilefni hátíðarinnar
mun leikstjórinn, Bennet Singer,
fjalla um myndina á ráðstefnu í
Háskóla Íslands á laugardags-
morgun klukkan 10.30.“
Kvikmyndahátíðir helgaðar
samkynhneigðum eru haldnar í
öllum helstu borgum heimsins og
oft tengdar stóru kvikmynda-
hátíðunum. Ein þeirra mynda sem
gefst kostur á að sjá er myndin
Þúsund friðarský á himni, sem
fékk Teddy-verðlaunin á kvik-
myndahátíðinni í Berlín á síðasta
ári.
„Þessi listsköpun er afskaplega
blómleg og hefur verið undanfar-
in tíu ár. Hún mun ná til almenn-
ings á endanum en það þarf um-
fram allt að vekja forvitni okkar
til að opna gluggann og læra að
nema það sem minnihlutahópar
hafa að gefa meirihlutanum.“
svanborg@frettabladid.is
American Splendor?
„Mér fannst það mjög
skemmtileg kvikmynd og mæli
með henni eindregið. Þetta var
innsýn í heim manns sem hefur
gert sjálfan sig að teiknimynda-
persónu. Það er einmitt mjög
fróðlegt fyrir mig því ég er að
breytast í teiknimyndapersónu
sjálfur. Þess vegna var mjög fróð-
legt að sjá þessa mynd. Tvíhöfða
teiknimyndirnar eru
einmitt að hefja
göngu sína í
kvöld á
P o p p -
Tíví.“
Sigurjón
Kjartansson,
annað höfuð
Tvíhöfða.
Lost in Translation
og Monster?
„Ég er nýbúin að sjá Lost in
Translation og mig dauðlangar til
Tókýó í kjölfarið. Þetta var sniðug
mynd þó hún sé ekki drama. Ég er
líka nýbúin að sjá Monster, sem
mér fannst alveg frábær. Charlize
Theron átti
skilið Óskar-
inn fyrir leik
sinn í þeirri
mynd en þó
þurfti hún að
vera með-
framleiðandi
myndarinn-
ar til að fá
svona gott
hlutverk.“
Gerður Kristný Guðjónsdóttir, ritstjóri
Mannlífs.
Big Fish?
„Mér fannst hún bara helvíti
góð. Mjög falleg og skemmtileg
mynd sem minnti mig á Forrest
Gump. Það er gaman að fara á já-
kvæðar sögur. Það er mikið af
þungum og tormeltum sögum. Ég
fíla yfirleitt þessar skrýtnu
myndir en þegar allt kemur til alls
finnst mér best að fara á afþrey-
ingu, eins og Big Fish.“
Hreimur, söngvari Lands & sona.
LOST IN TRANSLATION
Myndin byggir á sniðugri hugmynd og
varð til þess að Gerði Kristnýju langar að
fara rakleiðis til Tókýó.
ÚR MYNDINNI JÁ SYSTIR, NEI SYSTIR
Aðstandendur vona að Hinsegin bíódagar geti orðið árlegur viðburður í íslenskri kvikmyndamenningu.
HINSEGIN BÍÓDAGAR Í REGNBOGANUM
Dags Tími Mynd
04.03 20.00 Já systir, nei systir
05.03 18.00 Bróðir og utangarðsmaður
05.03 20.00 Piltar með piltum: stuttmyndir
05.03 22.00 Þúsund friðarský á himni
06.03 16.00 Pabbi og pápi
06.03 18.00 Yfir í Eden
06.03 20.00 Alice + Selma og Soffía
06.03 22.00 Þú kemst yfir þetta
07.03 16.00 Þúsund friðarský á himni
07.03 18.00 Aðalhlutverk: Rosa Furr
07.03 20.00 Skyndilega
07.03 22.00 Sæl eru þau sem þyrstir
08.03 18.00 Piltar með piltum: stuttmyndir
08.03 20.00 Einstein hvatalífsins
08.03 22.00 Skyndilega
09.03 18.00 Hrein og bein
09.03 20.00 Stúlkur með stúlkum: stuttmyndir
09.03 22.00 Alice + Selma og Soffía
10.03 20.00 Yfir í Eden
10.03 22.00 Hrein og bein
11.03 18.00 Stúlkur með stúlkum: stuttmyndir
11.03 20.00 Hrein og bein
11.03 22.00 Bróðir og utangarðsmaður
12.03 18.00 Einstein hvatalífsins
12.03 20.00 Aðalhlutverk: Rosa Furr
12.03 22.00 Sæl eru þau sem þyrstir
13.03 16.00 Já systir, nei systir
13.03 18.00 Sæl eru þau sem þyrstir
13.03 20.00 Róttækir hljómar - Verðlaunaafhending
13.03 22.00 Einstein hvatalífsins
14.03 16.00 Pabbi og pápi
14.03 18.00 Róttækir hljómar
14.03 20.00 Alice + Selma og Soffía
14.03 22.00 Þú kemst yfir þetta
Hinsegin bíódagar
■ Hvernig fannst þér...