Fréttablaðið - 04.03.2004, Blaðsíða 16
16 4. mars 2004 FIMMTUDAGUR
■ Bandaríkin
TÁRAGASI SKILAÐ
Lögregla notaði táragas og kylfur til að
dreifa mótmælendum í Dakka, höfuðborg
Bangladesh. Þúsundir kröfðust þess að
þeir sem réðust á og særðu höfundinn
Humayun Azad lífshættulega yrðu
handteknir.
Dómarar mótmæla bágum fjárhag héraðsdómstóla:
Réttarvernd almenn-
ings stefnt í hættu
HÉRAÐSDÓMUR „Nú þegar enn er
þrengt að fjárhag héraðsdómstól-
anna og réttarvernd almennings með
því stefnt í hættu, geta dómarar ekki
lengur látið kyrrt liggja,“ segir
meðal annars í ályktun félagsfundar
Dómarafélags Íslands nýverið um
fjárhagsstöðu héraðsdómstólanna.
Segir ennfremur að dómarar
telji afar brýnt að fjárveitingar-
valdið leiðrétti nú þegar fjárveit-
ingar til héraðsdómstóla. Þá leggja
dómarar áherslu á að með lögum
verði tryggt að fyrirkomulag fjár-
veitinga taki mið af stöðu dómstóla
sem eins þriggja þátta ríkisvalds-
ins. Loks mælast dómarar til þess
að hraðað verði breytingum á rétt-
arfarslögum sem leiða til aukinnar
hagræðingar við dómstörf.
Bent er á að á undanförnum
árum hafi verkefni dómstólanna
aukist, einkum vegna ört vaxandi
málafjölda, flóknari mála og nýrra
lögskipaðra verkefna. Á sama tíma
hafi dómendum í héraði fækkað úr
50 í 38, þar sem stöður dómarafull-
trúa voru lagðar niður árið 1998, án
þess að gripið væri til fullnægjandi
ráðstafana til mótvægis.
„Fjárveitingarvaldinu ætti að
vera ljós sú skylda, að sjá dómstól-
unum fyrir fullnægjandi fjármagni
til að standa undir eðlilegri starf-
semi í samræmi við nútíma kröfur.
Hafa dómarar lagt sig fram við að
halda málsmeðferðarhraða í horf-
inu, þrátt fyrir að það hafi haft í för
með sér vinnu langt umfram það
sem eðlilegt getur talist.“ ■
Brýnt að ráðuneyti veiti
ríkari aðstoð í launamálum
Launakostnaður nokkurra heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni jókst um 30,2% á árunum 2000–2002 þrátt
fyrir mat fjármálaráðuneytisins á kostnaðaráhrifum kjarasamninga við starfsmenn stofnananna til 18–21%
launahækkunar. Ríkisendurskoðun segir að viðkomandi ráðuneyti verði að halda betur vöku sinni.
KJARAMÁL Ríkisendurskoðun telur
brýnt að fjármálaráðuneyti og heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneyti
sinni hlutverkum sínum um aðstoð í
launamálum heilbrigðisstofnana
betur en þau hafa gert hingað til.
Svo segir í nýrri skýrslu Ríkisend-
urskoðunar um
„ L a u n a þ r ó u n
s t a r f s m a n n a
nokkurra heil-
brigðisstofnana
2000–2002.“
Ríkisendur-
skoðun bendir á
að nýtt launa-
kerfi ríkisins og
l a u n a k e r f i
sjúkrahúslækna
gefi stjórnend-
um nú meiri
möguleika en
áður á að taka
ákvarðanir um
laun starfs-
manna. Þetta
krefjist styrkr-
ar stjórnunar
og aðgangs að upplýsingum sem
ekki liggja alltaf fyrir á smærri
stofnunum. Því sé miðlægur stuðn-
ingur fagráðuneyta afar mikilvæg-
ur. Þau þurfi að aðstoða stofnanir
við að túlka óljós atriði í kjarasamn-
ingum og tryggja þeim aðgang að
upplýsingum um launamál sem nýt-
ast bæði við samningsgerð og eftir-
lit með launaþróun.
Launakostnaður nokkurra heil-
brigðisstofnana á landsbyggðinni
jókst um 30,2% á árunum 2000–2002
og eru launatengd gjöld þá ekki tal-
in með. Þetta er um það bil tvöfalt
meiri hækkun en launavísitala sama
tímabils segir til um. Skýringarnar
eru einkum þrjár; í fyrsta lagi mikl-
ar umsamdar launahækkanir til
sumra starfshópa, í öðru lagi launa-
skrið og í þriðja lagi aukið vinnuafl.
Launahækkanir og launa-
skrið
Í skýrslu Ríkisendurskoðunar er
leitað skýringa á umtalsverðri
hækkun launakostnaðar nokkurra
heilbrigðisstofnana á landsbyggð-
inni á tímabilinu 2000–2002. Alls
jókst þessi kostnaður um 30,2%
þrátt fyrir að fjármálaráðuneytið
hefði metið kostnaðaráhrif kjara-
samninga við starfsmenn stofnan-
anna til 18–21% launahækkunar, allt
eftir samsetningu starfsmanna-
hópa.
Í fyrsta lagi hafa einstakir
starfshópar fengið miklar umsamd-
ar launahækkanir á tímabilinu
2000–2002, til dæmis hafa laun
lækna hækkað um 25,5% sam-
kvæmt mati á kostnaðaráhrifum
kjarasamninga og laun sjúkraliða
um 31,5%. Í öðru lagi hefur orðið
talsvert launaskrið innan sumra
starfshópa, það er launahækkanir
umfram kjarasamninga. Þetta
launaskrið er mismikið eftir hópum
en mest hjá starfsfólki í rekstri og
umsýslu og hjúkrunarfræðingum. Í
þriðja lagi hefur vinnumagn á um-
ræddum heilbrigðisstofnunum auk-
ist nokkuð á tímabilinu 2000–2002.
eða að meðaltali um 4,9%. Þyngst
vegur fjölgun ársverka lækna,
hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða.
Mikill launamunur
Í skýrslu Ríkisendurskoðunar
kemur fram mikill munur er á
heildargreiðslum til lækna á heil-
brigðisstofnunum á landsbyggðinni
og hversu háar þær geta orðið þar
sem þær eru hæstar. Árið 2002
námu hæstu heildargreiðslur til ein-
staks læknis tæpum 20 milljónum
króna en tæpum 14 milljónum
króna þar sem þær voru lægstar.
Þess má geta að meðalárslaun
hjúkrunarfræðinga á landsbyggð-
inni voru á bilinu 4,1–5,7 milljónir
króna. Í skýrslunni kemur einnig
fram að laun og aðrar greiðslur til
lækna á landsbyggðinni eru veru-
lega hærri en tíðkast á Landspítala -
háskólasjúkrahúsi. Árið 2002 námu
meðallaun lækna sem þar vinna í
fullu starfi um 9,5 milljónum króna.
jss@frettabladid.is
Kaþólsk líknarfélög:
Varnir við
getnaði
SAN FRANCISCO, AP Hæstiréttur Kali-
forníu hefur fellt þann dóm að kaþ-
ólsk góðgerðasamtök verði að bjóða
starfsmönnum upp á getnaðarvarnir
sem hluta af sjúkratryggingum þeir-
ra. Þar breytir engu, að mati dóm-
stólsins, að kaþólska kirkjan segir
getnaðarvarnir brjóta í bága við
trúna sem hún boðar. Dómurinn
byggir á lögum sem kveða á um að
bjóði atvinnurekendur starfsmönnum
upp á sjúkratryggingar sem greiða
lyfjakostnað verði einnig að greiða
fyrir getnaðarvarnir þar sem krafist
er uppáskriftar læknis. Trúfélög eru
undanþegin lögunum en góðgerða-
félögin eru sjálfstæðar stofnanir. ■
NAUÐGAÐI TVEGGJA MÁNAÐA
BARNI Lögreglan í Sacramento
handtók rúmlega fertugan karl-
mann eftir að myndir fundust af
honum þar sem hann sést mis-
nota tveggja mánaða barn kyn-
ferðislega. Myndunum á hann að
hafa dreift á Netinu. Hann á yfir
höfði sér allt að 50 ára fangelsi.
APASJALAND HVERFUR Ekki
verður ráðist í að endurbyggja
Apasjaland, kúrekabæ sem var
byggður til að taka upp kvik-
myndir í og verið hefur vinsæll
ferðamannastaður. Eldsvoði
skemmdi stóran hluta bæjarins í
síðasta mánuði. Fyrsta myndin
sem tekin var upp í bænum var
Charro með Elvis Presley. Síðasta
kvikmyndin var síðan mynduð
fyrir áratug.
Sameinaður grunnskóli á Seltjarnarnesi:
Unnið að vali á skólastjóra
SKÓLAMÁL „Nú eru ráðningarþjón-
ustan Manntafl og skólanefnd
bæjarins að fara yfir umsóknirn-
ar. Síðan verður mælt með ein-
hverjum tilteknum einstaklingi
gagnvart bæjarstjórn,“ sagði Jón-
mundur Guðmarsson, bæjarstjóri
á Seltjarnarnesi, spurður um
stöðu ráðningar skólastjóra sam-
einaðs Valhúsa - og Mýrarhúsa-
skóla.
Sjö umsækjendur voru um
stöðuna, en framlengdur umsókn-
arfrestur rann út miðvikudaginn
25. febrúar. Þeir eru: Fríða Regína
Höskuldsdóttir skólastjóri, Helga
Arnfríður sálfræðingur, Jörundur
Ákason kennari, Magnús Ingi-
mundarson, deildarstjóri Iðnskól-
anum í Reykjavík, Ragnhildur
Guðjónsdóttir, BA, Sigfús Grét-
arsson skólastjóri og Sigríður
Hrefna Jónsdóttir, B.Ed.
„Það eru sterkir umsækjendur
í hópnum, meðal annars báðir nú-
verandi skólastjórar, svo og
fleiri,“ sagði Jónmundur. Hann
sagði að óánægjuraddir vegna að-
ferðarfræði við sameiningu skól-
anna hefðu dvínað mjög. Hann
vissi ekki til neinna uppsagna
kennara vegna sameiningarinnar,
en vissulega væri alltaf ákveðin
starfsmannavelta á hverju ári. ■
Lögregluaðgerð:
Teknir með
barnaklám
ÁSTRALÍA, AP Lögreglan í Queens-
land í Ástralíu hefur handtekið
fimm karlmenn á aldrinum 41
til 66 ára fyrir að hafa bar-
naklám undir höndum. Meðal
myndbanda sem fundust hjá
einum þeirra, nær sextugum
afa, var eitt sem sýndi nauðgun
á tveggja til þriggja mánaða
barni.
„Þetta er svo viðbjóðslegt.
Ég held að fæstir skilji þá stöðu
sem þessi börn eru í,“ sagði
John Huxley, yfirmaður sér-
sveitar lögreglunnar sem leitar
uppi barnaníðinga í Ástralíu.
Sakborningar eiga allt að
tuttugu ára fangelsi yfir höfði
sér. ■
HÉRAÐSDÓMSTÓLAR
Dómarar lýsa áhyggjum vegna ófullnægj-
andi rekstrarfármagns. Myndin er af
Héraðsdómi Reykjaness.
TVEIR RÁÐHERRAR
Ríkisendurskoðun
telur brýnt að fjár-
málaráðuneyti og
heilbrigðisráðuneyti
sinni hlutverki sínu
um upplýsingar og
aðstoð í launamálum
betur hér eftir
en hingað til.
RÍKISENDURSKOÐUN
Launakostnaður nokkurra heilbrigðisstofnana hækkaði um það bil tvöfalt meira
2000–2002 heldur en launavísitala sama tímabils segir til um.
LAUNAÞRÓUN 2000–2002
Blönduós 31,94%
Egilsstaðir og Seyðisfjörður 30.00%
Húsavík 25,42%
Neskaupstaður 24,91%
Selfoss 28,32%
Suðurnes 33,39%
Vestmannaeyjar 38,78%
JÓNMUNDUR GUÐMARSSON
Segir óánægjuraddir vegna sameiningar
grunnskóla á Seltjarnarnesi fara dvínandi.