Fréttablaðið - 04.03.2004, Blaðsíða 33
FIMMTUDAGUR 4. mars 2004 33
Möguleikhúsið við Hlemm,sem sérhæfir sig í leiksýn-
ingum fyrir börn og unglinga,
frumsýnir nýtt íslenskt leikrit í
dag um grallarana undarlegu en
góðkunnu, þá Hatt og Fatt, og
ævintýri þeirra með Siggu
sjoppuræningja í leikstjórn
Bjarna Ingvarssonar.
Hattur og Fattur eiga sér langa
sögu meðal íslenskra barna. Þeir
komu fram í sjónvarpsleikriti
1975 og þeir hljómuðu víða á
heimilum eftir 1979 þegar hljóm-
plata með þeim félögum kom út.
Ný kynslóð kynntist þeim í Loft-
kastalanum 1999 en nú bregða
þeir á leik í nýju leikriti eftir Ólaf
Hauk Símonarson.
„Hattur og Fattur í dag eru
meira í ættina við það sem þeir
voru,“ segir Pétur Eggertz leikari,
sem fer með hlutverk Hatts, en
aðrir leikarar í verkinu eru Valur
Freyr Einarsson í hlutverki Fatts
og Alda Arnardóttir í hlutverki
Siggu sjoppuræningja. „Það er von
okkar að við getum fest þá meira í
útliti, sérstaklega að ef eitthvað
meira kemur seinna séu þeir
ákveðnari í útliti og umhverfi.“
Í þessu ævintýri Hatts og
Fatts vakna þeir félagar að
morgni dags þar sem þeir hafa
lent sínum fljúgandi furðuvagni.
Aðvífandi kemur grunsamleg
persóna sem reynist vera Sigga
sjoppuræningi sem er á sífelld-
um flótta undan lögreglunni því
hún er alltaf að brjótast inn í
sjoppur til að stela gosi og
nammi.
„Hattur og Fattur eru fyrst og
fremst skemmtilegar persónur.
Þeir koma einhvers staðar annars
staðar frá og sjá þess vegna alltaf
umhverfið með augum þess sem
tekur ekki allt sem gefið, sem get-
ur boðið upp á skondnar uppá-
komur. Í þessari sögu finnst þeim
skrítið að borða tilbúið nammi og
gos með sykri í stað þess að borða
mat og drekka vatn og leiða Siggu
frá villu síns vegar. Það er skýr
boðskapur í sögunni en þetta er
fyrst og fremst gamanleikrit fyrir
börn. Það er þó ekki verra að þau
velti aðeins vöngunum yfir því
hvort það sé í lagi að borða allan
þennan sykur.“ ■
Hattur og Fattur
bregða á leik
HATTUR, FATTUR OG
SIGGA SJOPPURÆNINGI
Nýtt barnaleikrit um þá
félaga Hatt og Fatt eftir Ólaf
Hauk Símonarson verður
frumsýnt í Möguleikhúsinu í
dag klukkan 17.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/VILH
ELM