Fréttablaðið - 04.03.2004, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 04.03.2004, Blaðsíða 18
Það hefur margt drifið á dagaJóannesar Eidesgaard síðan hann tók við embætti lögmanns Færeyja í byrjun síðasta mánað- ar. Ráðuneytum hefur verið fækkað úr níu í sjö, skattalækk- unarhugmyndir stjórnarinnar hafa sætt harðri gagnrýni af hálfu forystumanna launþega og Eidesgaard hefur þurft að víkja einum ráðherra úr embætti eft- ir að ásakanir um vafasamt við- skiptasiðferði hans vegna fyrri starfa. Þróun mála sem tengdust Jo- han Dahl, sem skipaður var sjávarútvegsráðherra eftir erf- iða stjórnarmyndun, var á ann- an veg en Eidesgaard átti von á. Sögur af viðskiptaferli Dahls og vafasömum skiptum hans við gamla samherja grófu undan trausti á honum þar til svo kom að lögmaðurinn vék honum úr embætti. „Ég taldi nauðsynlegt að takast á við þennan vanda,“ segir Eidesgaard, sem rak ráð- herrann þremur vikum eftir að hann tók við embætti. Væntanleg skattalækkun sætir gagnrýni Meðal þess sem gagnrýnendur skattalækkana hafa haldið fram er að þær komi þeim helst til góða sem séu með hæstu tekjurnar og hafa forystumenn verkalýðsfélaga sagt ótrúlegt að jafnaðarmenn taki þátt í slíkum skattalækkunum. Það liggur því beint við að spyrja Jó- annes Eidesgaard, lögmann Fær- eyja og formann Jafnaðarmanna- flokksins, út í þetta. „Það er rétt að taka fram í upphafi að stjórnin er mynduð af þremur flokkum. Tveir eru hægriflokkar, Fólkaflokkurinn og Sambandsflokkurinn, og svo er Jafnaðarflokkurinn. Af því má sjá hvaðan óskirnar um skatta- lækkanir eru komnar. Vandamál- ið sem við stöndum frammi fyrir er að venjulegur launamaður í Færeyjum er að borga hæstu skattaprósentuna og okkur finnst óeðlilegt að venjulegir launa- menn, sjómenn, séu að greiða svo háa skatta. Það er því ósk flokk- anna þriggja að lækka skatta á venjuleg laun,“ segir Eidesgaard en tekur fram að staða efnahags- mála ráði líka miklu. Eidesgaard segir gagnrýni verkalýðsforkólfa, sem eru sumir félagar í Jafnaðarmanna- flokknum, auðvitað hafa áhrif á þankagang stjórnvalda. „Við búum við stighækkandi skatt- kerfi, þar sem hærri skattar eru greiddir af hærri launum. Verkalýðsfélögin telja allt í lagi að félagsmenn þeirra fái skatta- lækkanir en geta ekki sætt sig við að fólk með hærri laun fái líka skattalækkanir. Vandinn við skattkerfið er að ef þú vilt breyta því á lægstu tekjurnar hefur það líka áhrif á laun ofar í skalanum. Aðalatriðið er að við viljum lækka skattprósentuna á launum venjulegra launþega.“ Vandræði í efnahagsmálum „Við eigum við vanda að stríða í útgerðinni og fiskeldi. Fiskverð er mjög lágt núna og við eigum við efnahagsvanda að stríða. Þessu hafa Íslendingar kynnst að nokkru leyti. Þetta mótar svo aðstæður okkar til skattalækkana en einnig til ann- arra verkefna, svo sem upp- byggingar velferðarkerfisins. 18 4. mars 2004 FIMMTUDAGUR ■ Evrópa LEIKIÐ FYRIR ÞINGIÐ Mikið var um dýrðir þegar ráðgjafarþing kín- versku alþýðunnar hóf störf í Peking í gær. Merki um vatn á yfirborði Mars: Óyggjandi sannanir WASHINGTON Vísindamenn hjá Bandarísku geimferðastofnuninni, NASA, segja að geimreiðin Opportunity hafi fundið óyggjandi sannanir fyrir því að vatn hafi eitt sinn verið að finna á reikistjörn- unni Mars. Ef þetta reynist rétt er mjög líklegt að líf hafi einhvern tíma getað þrifist á plánetunni. Geimreiðin fann vatnssorfið grjót á yfirborði Mars. „Þessir steinar hafa mótast í fljótandi vatni og gætu jafnvel verið útfell- ingar úr vatni,“ segir vísindamað- urinn Steve Squyres. Ekki liggur fyrir hvenær eða um hversu langt skeið vatn rann um yfirborð Mars en Squyres fullyrðir að einhvern tíma hafi verið skilyrði fyrir lífi á reikistjörnunni. Til að varpa frekara ljósi á aðstæður er nauð- synlegt að flytja sýni úr jarðvegi Mars til jarðar. Geimreiðin Opportunity hefur verið að kanna jarðveginn á Meri- diani-sléttunni síðan hún lenti á Mars 25. janúar síðastliðinn. Meginmarkmið leiðangursins var að finna sannanir fyrir því að vatn hefði einhvern tíma verið að finna á reikistjörnunni. ■ Færeyingar einir taki ákvörðun um sjálfstæði Lögmaður Færeyja segir helsta verkefni stjórnarinnar að setja stjórnskipunarlög sem tryggi að Færeyingar einir ráði því hvaða mál þeir fara með og hvort og þá hvenær þeir verða sjálfstæð þjóð. Sú ákvörðun ræðst að miklu leyti af því hversu miklu Færeyingar hafa efni á að stjórna sjálfir. Lagabreyting samþykkt: Öryggislásar á byssurnar WASHINGTON, AP Bandaríska öld- ungadeildin hefur samþykkt laga- breytingu sem kveður á um að ör- yggislæsingar verði að fylgja öll- um skammbyssum sem seldar eru í Bandaríkjunum. Ákvæðinu verð- ur bætt í nýja byssulöggjöf sem meðal annars veitir framleiðend- um og sölumönnum skotvopna vernd gegn lögsókn þegar byssur sem seldar hafa verið með lögleg- um hætti eru notaðar við glæpi. Hvatamenn breytingarinnar varðandi öryggislæsingar segja markmiðið það að fækka dauðs- föllum vegna slysaskota á banda- rískum heimilum. ■ 200 kíló hurfu S.l. vetur grenntust konurnar á Body&Mind námskeiðinu hjá Önnu Haralds alls um 200 kg með frábærum æfingum. Enginn hávaði og engin hopp, aðeins góðar æfingar, teygjur og slökun. Kennt er hjá Technosport í Hafnarfirði. Nánar í síma hjá Önnu: 899 79 09 og á ShopUSA.is GENGNIR Í HJÓNABAND Doug Okun og Eric Ethington bjuggu saman í átta ár áður en yfirvöld samþykktu hjónaband þeirra. Hjónabönd samkynhneigðra: Bæjarstjóri sætir ákæru BANDARÍKIN, AP Jason West, bæjar- stjóri í New Paltz, hefur verið ákærður fyrir að brjóta lög með því að gefa saman samkynhneigð pör þrátt fyrir að þau hafi ekki hjúskaparleyfi eins og lög New York-ríkis kveða á um. Verði hann fundinn sekur gæti hann þurft að greiða sekt upp að andvirði 35.000 króna eða sitja stuttan tíma í fang- elsi. „Það virðist vera glæpur að hafa stjórnarskrá New York-ríkis í heiðri,“ sagði West, sem telur það brot á stjórnarskránni að heimila ekki hjónabönd samkynhneigðra. Yfirvöld í Multnoham-sýslu í Oregon ríki hafa ákveðið að gefa út hjúskaparleyfi til samkyn- hneigðra og gefa þá saman. ■ HÚS HRUNDI YFIR SOFANDI FJÖL- SKYLDU Sex manns úr sömu fjöl- skyldu létu lífið og tveir slösuð- ust þegar hús hrundi til grunna í jarðskjálfta í suðurhluta Tyrk- lands. Fólkið var sofandi þegar skjálftinn reið yfir. Skjálftinn, sem mældist 3,8 á Richter- kvarða, átti upptök sín við bæinn Celikhan í Adiyaman-héraði. HERÓÍN Á LEIÐ TIL EVRÓPU Tyrk- neska lögreglan lagði hald á 133 kílógrömm af heróíni í fimm að- skildum aðgerðum í síðustu viku. Talið er að efnið hafi átt að fara á markað í Evrópu. 21 maður hefur verið handtekinn í tengslum við málin. LANGAR ÞRETTÁN VIKUR 58 árum eftir að Alistair Cooke hóf umsjón með útvarpsþætti á BBC sem ganga átti í þrettán vikur lét hann af þáttarstjórninni og fór á eftir- laun, 95 ára að aldri. Cooke, sem var 37 ára þegar hann byrjaði með þáttinn, hætti að læknisráði. VATNSSORFINN STEINN Vísindamenn NASA fullyrða að þessi steinn hafi eitt sinn legið í vatni. Fréttaviðtal BRYNJÓLFUR ÞÓR GUÐMUNDSSON ■ ræðir við Jóannes Eidesgaard, lög- mann Færeyja, um sjálfstæðismál, efna- hagsvanda og umdeildar skattalækkanir. Í ÞJÓÐBÚNINGUM Í FÆREYJUM Það hversu langt skuli ganga í sjálfstjórnarmálum er sem fyrr eitt stærsta málið sem liggur fyrir Færeying- um. Stjórnlaganefnd vinnur að gerð laga sem eiga að tryggja að Færeyingar ráði því sjálfir hversu langt þeir ganga í átt að sjálfstjórn og sjálfstæði.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.