Fréttablaðið - 04.03.2004, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 04.03.2004, Blaðsíða 26
Laugaveg i 83 s : 562 3244 Þessi kjóll er draumakjóllinnminn,“ segir Rannveig Kára- dóttir söngkona. „Þegar ég var lít- il ætlaði ég að verða fatahönnuður og var alltaf að teikna kjóla. Þessi kjóll kemst ískyggilega nálægt því sem ég var að teikna. Hann er bæði gamaldags í sniði og nútíma- legur. Hann er tekinn saman að aftan, ermalaus og bara ótrúlega flottur.“ Rannveig rakst á kjólinn í versluninni Mótor á mjög góðu verði. „Ég hefði í raun átt að vera uppi á öðrum tíma því ég myndi vilja ganga um í svona kjólum all- an daginn. Ég hef meðal annars notað kjólinn á fiðluballi í MR, sem er mjög sérstakt tækifæri. Þar upplifði ég einmitt þessa stemningu sem ég vildi lifa og hrærast í,“ segir Rannveig og hlær. „Síðan notaði ég hann í söng- atriði, þar sem ég söng Fever í út- gáfu Evu Cassidy, með undirleik fiðlu. Vinkonur mínar, Björg, Hjördís og Karen, voru dansarar. Þær voru í hvítum bolum með axlabönd og pípuhatt. Þetta var alveg ótrúlegt atriði. Ég söng þetta lag einhvern tímann á árs- hátíð KSS, kristilegra skólasam- taka, og ég lofaði sjálfri mér því að vera einhvern tímann með svona atriði. Svo lét ég verða af því á söngkeppni MR. Svo tók- um við þetta aftur á árshátíð KSS og það var mjög skemmti- legt. Þannig að þessi kjóll er mér mjög hjartfólginn. Það er bara einn galli, hann er orðinn of stór á mig og fellur ekki lengur að líkamanum eins og honum er ætlað. Ég ætla því að fara með hann til skraddarans, því ég vil nota kjólinn áfram,“ segir Rannveig, sem stundar nú söng- og þverflautunám auk þess að vera í Gospelkór Reykjavíkur. Það er nóg að gera hjá henni við að koma fram, en í kvöld mun hún syngja á nemendatónleikum FÍH. Um helgina syngur hún á brúðkaupssýningu og á sunnudagskvöld í popp- messu í Árbæjarkirkju. Þar mun hljómsveitin hennar, sem heitir Árátta, troða upp í fyrsta skipti. audur@frettabladid.is tíska o.fl. Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um al l t sem viðkemur t ísku Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: tíska@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is. ■ Í búðum ■ Í búðum HEITT OG KALT Rauður hlírakjóll þarf ekki að vera köld flík – ef maður er í prjónaföt- um við. Vivienne Westwood sýndi enn og sannaði að hún er meðal hönnuða í fremstu röð þegar hún kynnti hausttískuna sína í París. HELGARNÁMSKEIÐ Í ÚÐAFÖRÐUN (airbrush) hjá Förðunarskóla No Name, Hjallabrekku 1 í Kópavogi. Allir sem útskrifast fá viðurkenningarskjal. Upplýsingar í síma: 588-6525, e-mail: noname@islandia.is Kennt verður: - Efni og áhöld. - Andlitsförðun. - Tattoo. - Hugmyndaförðun. - Brúnkumeðferð. Mjódd - Sími 557 5900 NÝKOMIÐ Jensen jakkablússur, stuttar og síðar buxur og pils í hörblöndu með lycra. Stærðir 36-48 FRÁBÆR VERÐ - VERIÐ VELKOMNAR Eddufelli 2, s. 557 1730 Bæjarlind 6, s. 554 7030 Opið mán.-fös. frá kl. 10-18 og lau. kl. 10-16T Í S K U V E R S L U N N Ý K O M I Ð Bolir frá kr. 1.990 • Peysur frá kr. 2.900 Gott úrval af vorvöru Hárgreiðslustofan Klapparstíg S: 551 3010 RANNVEIG KÁRADÓTTIR Fann kjólinn sem hana hafði alltaf dreymt um. Uppáhaldsflíkin: Vildi ganga svona um allan daginn Virginia Woolf varinnblástur Christopher Bailey í hönnun hans fyrir Burberry - þessa gamalgróna breska merkis. „Hönnun- in er mjög ensk. Hún er bara enn kvenlegri núna.“ Millistríðsárin voru Bailey efst í huga við hönnun- ina. Pilsin eru hnésíð og bux- urnar víðar. Sýningin var glæsileg eins og Burberry er von og vísa – og vel sniðin föt sem löngum hafa verið aðalsmerki Burberry. Tískuvikunni í Mílanólauk með sýningu á vetrartísku Missono. Litadýrðin var mik- il, stór mynstur á flíkum og röndótt- ar peysur meðal þess sem fyrir augu bar. Fötin voru stelpuleg og fjörleg. Hnéháir sokkar, hnésíð pils, skyrtur og peysur voru áberandi. Kápurnar voru klæði- legar og fallegar. Þó að Pink Floyd ómaði undir í hátölurunum var ekkert gamaldags við fötin. Hún er ekki lesbísk – en hún erekki viss,“ sagði Stefano Gabbana, annar helmingur hönn- unardúósins Dolce og Gabbana, um konuna sem klæð- ist vetrartísku Dolce og Gabbana. Inn- blásturinn sóttur til Yves Saint- Laurent og kyn- þokkafullra ljós- mynda Helmuts Lang, sem lést á síðasta ári. Ekki ljúfur heldur grimm- ur kynþokki – svört jakkaföt og háir hælar, þröng pils og hvítar skyrtur. Auk þess að njóta tískunnar beindust augu manna sérstaklega að einni fyrir- sætunni, Danielle Riley Keough – og það vegna þess að hún er barnabarn Elvis Presley. Öllu blíðlegri varyfirbragð sýning- ar franska tísku- hönnuðarins Isabel Marant. Rómantík og sakleysi sveif yfir vötnum í hvítum fatnaði og fallegum kjólum. Efnum var blandað saman – meðal þess sem sjá má var hvítur satín síðkjóll, ullartrefl- ar, víðir kjólar og hnésíðir. Litirnir voru ljósir. Tískanúti í heimi TÍSKUDAGAR Í KRINGLUNNI Tískudagar í Kringlunni hófust í gær. 100 gínum í vor- og sumartísk- unni hefur verið stillt upp á göng- um Kringl- unnar þannig að viðskipta- vinir geta gengið um og skoðað hvað er heitt fyrir sumarið. Í Kringlunni eru fleiri tískuvöru- verslanir undir einu og sama þaki en á nokkrum öðrum stað á Íslandi þannig að af nógu er að taka. ERTU AÐ FERMA? Fermingarund- irbúningi fylgja ótal verslunar- ferðir – það vita þeir sem til þekkja. Í kvöld er haldið ferm- ingarkynningarkvöld í Smáralind og ekki úr vegi að skella sér með fermingarbarnið. Þær verslanir sem selja vörur eða bjóða upp á þjónustu tengda fermingunum á einhvern hátt verða með opið til klukkan níu í kvöld en venjulega loka verslanir í Smáralind klukk- an 19.00. Ýmis skemmtiatriði verða á boðstólum, til dæmis kemur Jón Sigurðsson sem hafn- aði í 2. sæti í Popp Idolinu og tek- ur lagið. Einnig munu Sveppi og Auddi, þáttastjórnendur 70mín- útna á PoppTíví, skemmta gest- um og gangandi.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.