Fréttablaðið - 04.03.2004, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 04.03.2004, Blaðsíða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R Bakþankar STEINUNNAR STEFÁNSDÓTTUR Sérsveitar- maður eða táknmálstúlkur SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 199.0 00.- með stáli að fr aman t li f R A F T Æ K J A V E R S L U N HEKLUHÚSINU • LAUGAVEGI 172 • 105 REYKJAVÍK • S ÍMI 590 5090 Frumsýning 29. feb. - Íslenska óperan Stundum getur verið erfitt að skiljahvernig er forgangsraðað í ráð- stöfun þess fjár sem við þegnar þessa lands leggjum í sameiginlega sjóði. Við búum auðvitað í lýðræðis- ríki og höfum kosið okkur fulltrúa til að fara með þetta fé. Ég geri mér sem sagt fulla grein fyrir því að við hvert og eitt höfum ekki úrslitavald um hverja krónu enda væri það skrýtið samfélag þar sem allir hefðu neitunarvald um ráðstöfun almanna- fjár. Hitt þykir mér hins vegar nokk- uð víst að ýmsar ráðstafanir stjórn- málamanna á almannafé brjóta í bága við það sem meirihluta kjósenda þyk- ir sanngjarnt og eðlilegt. Á undanförnum vikum og mán- uðum höfum við fylgst með niður- skurði á Landspítalanum þannig að fyrirsjáanlegt er að úr þjónustu dragi. Okkur hefur verið sagt að of dýrt sé að kenna táknmálstúlkun í Háskóla Íslands, að minnsta kosti að sinni, þrátt fyrir að staðreynd sé að slíka túlka sárvanti. Og fleiri dæmi mætti tína til. Á sama tíma eru allt í einu til peningar til að tvö og hálf- falda í sérsveit lögreglunnar. Jafnvel þótt gert væri ráð fyrir að það fé sem fer í uppbyggingu sér- sveitarinnar væri nýtt innan lögregl- unnar er ég viss um að hægt væri að ráðstafa því með skynsamlegri hætti en uppbyggingu sveitar sem er þjálf- uð í meðferð vopna. Vissulega koma upp þær aðstæður að gott er að hafa sérsveit til taks en ekki kannski 50 menn gráa fyrir járnum, er það? Það er líka gott og blessað að þjálfa fólk til friðargæslustarfa en við höfum samt svo ótal margar aðrar leiðir til að koma að gagni úti í hinum stóra heimi. Þær 250 milljónir sem rekstur sérsveitar dómsmálaráðherra á að kosta þegar hún er fullmönnuð mætti örugglega nota með einhverjum þeim hætti að okkur launafólki þessa lands sem af samviskusemi greiðum okkar gjöld í sameiginlega sjóði, jafnvel án þess að telja það eftir okkur, fyndist að verið væri að verja peningum okk- ar í verkefni í þágu almennings – en ekki bruðlað með þá í gæluverkefni fullorðinna stráka sem sakna tindát- anna sinna. Eða, eins og Ögmundur segir, væri ekki réttast að sauma bara búning á ráðherrann? ÓKEYPIS LÖGFRÆÐIAÐSTOÐ á hverju fimmtudagskvöldi kl. 19.30 til 22.00 í síma 5511012. ORATOR, félag laganema við Háskóla Íslands.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.