Fréttablaðið - 02.06.2004, Blaðsíða 25
Hér verður ekki fjallað um þær
breytingar á útvarps- og samkeppn-
islögum sem voru til umfjöllunar á
Alþingi á dögunum, heldur heljartök
íhaldsins á fjölmiðlamarkaði um
áratugaskeið. Morgunblaðið með
um 60% lesenda hefur alla tíð verið
málgagn Sjálfstæðisflokksins eins
og ritstjórnargreinar þess bera
greinilega með sér. Ritstjórar blaðs-
ins hafa alla tíð verið kunnir íhalds-
menn, valdir af eigendum blaðsins,
Árvakri. Íhaldsfnykur hefur einnig
fylgt síðdegisblöðunum, fyrst Vísi
og síðan Dagblaðinu, enda hafa aðal-
ritstjórar þeirra í gegnum tíðina
verið þjóðkunnir íhaldsmenn. Dag-
blaðið stóð sjaldnast undir nafni
sem frjálst og óháð dagblað, rit-
stjórnargreinar og efnisval blaðsins
var yfirleitt brennimerkt íhaldinu
einkanlega fyrir kosningar. Íhalds-
blöðin, Morgunblaðið og DV (80%
lesenda) voru einu dagblöð landsins
um áratugaskeið eftir að flokksblöð
hinna stjórmálaflokkanna liðu undir
lok. Við þetta ástand hefur þjóðin
orðið að búa, þar sem fjárhagslegur
grundvöllur fyrir útgáfu dagblaða í
samkeppni við Morgunblaðið hefur
ekki verið til staðar. Birting greina
andstæðar Sjálfstæðisflokknum
hafa orðið að lúta samþykki póli-
tískra ritstjóra blaðanna. Lýðræði í
formi ritfrelsis hefur af framan-
greindum ástæðum verið þröngur
stakkur skorinn. Ritstjórar blaðanna
bera daglega ábyrgð á efni þeirra,
þeir ráða hvort þeir hafna greinum,
hvenær þær birtast, hvort aðsendar
greinar falla inn í þær umræður
sem eru til umfjöllunar á hverjum
tíma. Vegna þessa mikla fjölda
greina sem berst til blaðanna er eðli-
legt að nokkur bið sé á birtingu
þeirra, en verst er hvað greinarhöf-
undum virðist mismunað í þeim efn-
um. Má þar m.a. tilnefna þekkta
vildarvini forsætisráðherra, þá Jón
Steinar Gunnlaugsson og Hannes
Hólmstein Gissurarson, sem njóta
sérstakrar fyrirgreiðslu. Þá sitja
heldur ekki allir við sama borð varð-
andi reglur um lengd greina, þar er
líka hagrætt eftir mönnum og mál-
efnum. Það eru margar blindhæðir
sem ekki eru merktar.
Loksins hefur þessari einokun
íhaldsins verið aflétt og „dulbúnu
ritfrelsi“ verið ýtt til hliðar. Frétta-
blaðið og nýtt Dagblað hafa blessun-
arlega náð forustuhlutverki á dag-
blaðamarkaðnum. Þjóðin hefur
aldrei búið við meira frelsi varðandi
óháð fréttablöð; þjóðin er þakklát
þeim sem gerðu lýðræðið virkt.
Frumvarp forsætisráðherra um
útvarps- og samkeppnislög hefur
engan hljómgrunn meðal þjóðarinn-
ar, hans tími er liðinn.
Framkoma forsætis- og utanrík-
isráðherra og undirsáta þeirra á Al-
þingi og í ríkisstjórn er öllum kunn
og hefur reyndar gengið fram af
þjóðinni; í skoðanakönnunum kemur
ítrekað fram að yfir 80% þjóðarinn-
ar eru andvíg frumvarpinu. Fyrstu
spor utanríkisráðherra að forsætis-
ráðherraembættinu í haust gefa
ekki góð fyrirheit um framhaldið. ■
Fólk vaknaði upp við vondan
draum, þegar heimsbyggðinni
fóru að berast ljósmyndir er sýndu
að Bretar og Ameríkanar hafa ver-
ið að niðurlægja og misþyrma
stríðsföngum í Írak. Margir héldu
nefnilega að slík illmennska þekkt-
ist bara hjá hinum „villimönnun-
um“, en ekki á meðal hinna „sið-
menntuðu“. Jú, við höfum séð í
fréttum hvernig hryðjuverka-
menn sprengja fólk í tætlur með
sjálfsmorðsárásum í Ísrael og ann-
arsstaðar, hvernig Ariel Sharon,
forsætisráðhera Ísraels, niðurlæg-
ir og myrðir Palestínumenn. Og
hvernig murkað var lífið úr millj-
ón manns á hinn grimmilegasta
hátt í Rúanda og Búrúndí fyrir
nokkrum árum síðan, og ýmsum
öðrum stöðum í heiminum. Við
urðum vitni að því hvernig hvíti
minnihlutinn í Suður-Afríku kúg-
aði og niðurlægði meirihluta lands-
manna í fjölmörg ár, og við höfum
einnig orðið vitni að mjög svo
ánægjulegum hlutum í þeim
heimshluta er hinir kúguðu náðu
að brjótast undan kúguninni og ná
réttlátum yfirráðum í landinu und-
ir stjórn Nelsons Mandela. Von-
andi geta slíkir hlutir einnig gerst
í samskiptum Ísraels og Palestínu-
manna, en til þess að svo geti orðið
í þeim heimshluta þarf samskonar
leiðtoga og Nelson Mandela var
Suður-Afríkumönnum. Og mjög
mörgum er enn í minni hvernig
nasistar niðurlægðu og myrtu
fimm milljónir gyðinga í útrým-
ingarbúðum í seinni heimstyrjöld-
inni. Og á sama tíma slátraði Stalín
milljónum manna í Sovétríkjun-
um. Og hver gleymir hörmungun-
um sem gengu yfir saklaust fólk er
kjarnorkusprengjum Bandaríkja-
manna var varpað á japönsku
borgirnar Hirósíma og Nagasaki.
Á þennan hátt er endalaust hægt
að telja upp illvirki hinna miskunn-
arlausu hér og þar um heims-
byggðina. Margir hafa haldið að
mannkynið hafi lært sína lexíu í
öllum fyrri stríðum og hörmung-
um. Svo virðist samt ekki vera og
sagan endurtekur sig hvað eftir
annað. Það virðist vera næstum
reglan að þeir sem hafa yfirhönd-
ina og völdin í stríðsátökum niður-
lægi og berji á þeim sem enga vörn
geta sér veitt.
Einræðisherrar
eiga það flestir
sameiginlegt að
stjórna með hörku
og grimmd til að
viðhalda völdum
sínum. Fyrr á árum
studdu Bandaríkin
Saddam Hussein í
Írak, og horft var
framhjá mannrétt-
indabrotum hans.
En síðan lét hann
illa að stjórn og því
allt í einu orðinn
verstur allra ein-
ræðisherra. En hinsvegar er
Gaddafí í Lýbíu skyndilega orðinn
„góður“ einræðisherra nú þegar
hann lætur að stjórn Bandaríkja-
manna og Breta. Þegar ljóst var að
gereyðingarvopn fundust ekki í
Írak, reyndu innrásarlöndin að
réttlæta innrásina með því að
nauðsynlegt hafi verið að koma
harðstjóranum Hussein frá völd-
um. (en hvað um alla hina einræð-
isherrana og harðstjórana?). Rök
innrásarliðsins sem fór í herferð-
ina í nafni lýðræðis og mannrétt-
inda hafa nú alveg kafnað í því
flóði upplýsinga sem berst af
smánarlegri framkomu þeirra
sjálfra gagnvart íröskum stríðs-
föngum. Líklega má telja að það
sem komið hefur fram um niður-
lægjandi meðhöndlun stríðsfang-
anna í Írak sé bara toppurinn á ís-
jakanum um illa meðferð stríð-
fanga hvort sem þeir eru í Írak eða
annarstaðar í heiminum. Síðasta
árskýrsla Amnesty International
dregur upp dökka mynd af allskon-
ar mannréttindabrotum út um all-
an heim, og það er mjög sorglegt
þegar vestrænar þjóðir sem tala
mjög hátt um lýðræðisleg gildi og
mannréttindi, eru síst betri en
grimmir einræðisherrar eins og
dæmin frá Írak benda til. ■
Rök innrásarliðsins
sem fór í herferðina í nafni
lýðræðis og mannréttinda
hafa nú alveg kafnað í því
flóði upplýsinga sem berst
af smánarlegri framkomu
þeirra sjálfra gagnvart írösk-
um stríðsföngum.
Glæpir gegn mannkyninu
17MIÐVIKUDAGUR 2. júní 2004
BJÖRGVIN BJÖRGVINSSON
myndlistarkennari, Finnlandi
UMRÆÐAN
MANNRÉTTINDI
,,
!
"#
$
%
& ) #
*++)
),
#
++)
)-
#
++)
). # /# ++)
0
1"
/
0
2
#
"# &
/#!#
#
"##
# 3
4$
/
" 5
1$/
4$
#
. # +6+7
!
"
#
$
%
#
Útvarps - og sam-
keppnislög
KRISTJÁN PÉTURSSON
SKRIFAR UM FJÖLMIÐLA
Fréttablaðið og nýtt
DV hafa blessunarlega náð
forustuhlutverki á blaða-
markaðnum. Þjóðin hefur
aldrei búið við meira frelsi
varðandi óháð fréttablöð;
þjóðin er þakklát þeim sem
gerðu lýðræðið virkt.
,,