Fréttablaðið - 02.06.2004, Síða 26
18 2. júní 2004 MIÐVIKUDAGUR
■ ANDLÁT
Ásgeir Jónsson, Efstasundi 92, Reykjavík,
lést laugardaginn 30. maí.
Arnljótur Björnsson fyrrverandi hæstarétt-
ardómari og prófessor, Kjarrvegi 6,
Reykjavík, lést sunnudaginn 30. maí.
Þorgerður Hjálmarsdóttir (Gerða) frá Döl-
um í Vestmannaeyjum, lést föstu-
daginn 28. maí.
■ JARÐARFARIR
15.00 Dóra Jóhannsdóttir, Aflagranda 1,
Reykjavík, verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni í Reykjavík.
15.00 Þorbjörn Pétursson, Gullsmára 9,
Kópavogi, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju.
Elísabet II var krýnd drottningBretlands á þessum degi fyrir
51 ári. Athöfnin var yfirfull af
aldargömlum hefðum og var þétt-
setin af þjóðhöfðingjum og öðrum
tignargestum en fór hún fram í
Westminster Abbey í London.
Athöfninni var einnig útvarpað
og í fyrsta sinn var dagskrá send út
í beinni útsendingu í sjónvarpi.
Eftir athöfnina hylltu milljónir
manna hina nýju drottningu sem
var aðeins 27 ára og manninn henn-
ar, hertogann af Edinborg sem
keyrðu um í glitrandi hestakerru.
Elísabet er fædd árið 1926 og
var fyrsta barn Georgs prins, ann-
ars sonar Georgs V. konungs. Afi
hennar lést árið 1935 og föður-
bróðir hennar Eðvarð VIII var
krýndur konungur. Seinna sama
ár tók Eðvarð þá ákvörðun að gift-
ast Wallis Warfield Simpson sem
var bandarísk og fráskilin. Í kjöl-
farið var faðir Elísabetar krýndur
konungur í hans stað.
Elísabet giftist fjarskyldum
frænda sínum, Filipusi, árið 1947.
Fyrsta barn þeirra hjóna er Karl
Bretaprins sem fæddist árið 1948.
Elísabet II hefur notið virðingar
og vinsælda í Bretlandi frá upphafi
og hefur ferðast meira en nokkur
annar þjóðhöfðingi Bretlands.
Hún var til dæmis fyrst til að
heimsækja Suður Ameríku og lönd-
in við Persaflóa. Elísabet á fjögur
börn með manni sínum Filippusi,
Karl, Önnu, Andrés og Játvarð.
Árið 1992 ákvað Elísabet, þá
ríkasta kona Englands, að greiða
skatta í fyrsta skipti. Þessi
ákvörðun markaði tímamót. ■
■ AFMÆLI
Pétur Sigurgeirsson biskup er 85 ára.
Hörður Sigurgestsson, fyrrverandi for-
stjóri Eimskips, er 66 ára.
Guðmundur Páll Ólafsson náttúru-
fræðingur er 63 ára.
Eggert Þór Bernharðsson sagnfræð-
ingur er 46 ára.
Þór Eldon Jónsson tónlistarmaður er
42 ára.
Það má eiginlega segja að éghafi haldið upp á afmælið um
hvítasunnuhelgina en þá fór ég
norður í sauðburð með barnabörn-
um og eiginmanni,“ segir Guðrún
Agnarsdóttir læknir.
Guðrún sem er 63 ára í dag
hefur verið starfandi sem for-
stjóri Krabbameinsfélagsins í
rúman áratug. Áður starfaði
Guðrún einnig sem forstöðumað-
ur Neyðarmóttöku Landspítalans.
Guðrún segir alltaf gaman að
koma í Svarfaðardalinn á þessum
árstíma. „Það er gaman að hafa
tækifæri til að sýna barnabörnun-
um vorlömbin.“
Hvað varðar afmælisdaginn
sjálfan telur Guðrún að fjallganga
verði fyrir valinu. „Maðurinn
minn, Helgi Valdimarsson, fer
utan á ráðstefnu einmitt á afmæl-
isdaginn og ég hugsa að ég
skreppi kannski í fjallgöngu um
kvöldið til að byggja upp þrek fyr-
ir fjallgöngur í sumar.“ Guðrún
ætlar að leggja í langa gönguferð
fyrstu helgina í júní en stefnan er
tekin á Hvannadalshnjúk með
samstarfsfólki. Þetta er ekki í
fyrsta sinn sem Guðrún klífur
Hvannadalshnjúk. „Við hjónin
fórum reyndar þangað 2. júní
2001 þegar ég varð sextug og það
var mjög eftirminnilegur afmæl-
isdagur í góðum hópi. Hins vegar
fengum við vont veður á hnjúkn-
um og ekkert skyggni og því lang-
ar mig aftur,“ segir Guðrún.
Aðspurð segist Guðrún hafa ver-
ið mikið afmælisbarn á sínum yngri
árum en segist frekar halda upp á
það með óvenjulegum hætti hin
síðari ár, með fjallgöngum, ferða-
lögum og öðru skemmtilegu. ■
AFMÆLI
GUÐRÚN AGNARSDÓTTIR
■ er 63 ára í dag.
Hún ætlar að æfa þrekið með fjallgöngu
CUBA GOODING JR.
Leikarinn er 35 ára í dag. Hann hefur
fengist við fleira en að leika því á lokaat-
höfn Ólympíuleikanna í Los Angeles árið
1984 sýndi hann breikdans.
2. JUNÍ
■ ÞETTA GERÐIST
1865 Bandaríska borgarastyrjöldin
tekur enda.
1886 Bandaríkjaforsetinn Cleveland
giftir sig í Hvíta húsinu.
1912 Fyrsta stóra stúdíóið í Hollywood
var opnað, Universal.
1954 McCarthy kom fram með ásak-
anir um að kommúnistar væru
innan vébanda CIA.
1965 Fyrstu sveitir ástralska hersins
koma til Víetnam.
1970 Kappakstursökumaðurinn Bruce
McLaren dó. Bíll hans, McLaren
M8D, missti afturhluta sinn á
miklum hraða með þeim afleið-
ingum að ökumaðurinn lést.
Þetta gerðist á Goodwood-braut-
inni á Englandi.
1985 Fjöldamorðingjaparið Leonard
Lake og Charles Ng var hand-
tekið. Þeir voru sekir um
grimmdarleg morð á ungum
konum í Kaliforníu á miðjum ní-
unda áratugnum.
ELÍSABET II
51 ár er liðið frá krýningu hennar.
Krýningarafmæli Elísabetar
ELÍSABET II
■ var krýnd drottning í Westminster
Abbey.
1. JÚNÍ 1953
Sýnir barnabörnunum
vorlömbin ljúfu
Sumarskóli FB verður starf-ræktur í sumar í ellefta sinn.
Tæplega 700 nemendur sóttu skól-
ann síðasta sumar og er útlit fyrir
svipaðan fjölda í ár. Fyrstu nám-
skeið hófust á fimmtudag og stend-
ur kennsla yfir til og með 25. júní.
Magnúsi Ingvarssyni, forstöðu-
manni, líst vel á sumarið. „Það eru
mjög margir búnir að skrá sig.
Þetta hangir svolítið saman við
atvinnulífið og það virðist vera
heldur erfiðara að fá vinnu núna en
í fyrra,“ segir Magnús. „Það er
spurning hvort að stjórnvöld
myndu ekki vilja grípa þarna inn í
og koma fólki í skóla frekar en að
láta það vera heima hjá sér. Það
væri afar snjallt hjá þeim.“
Boðið er upp á tæplega sjötíu
áfanga í skólanum og fer þeim
fjölgandi með árunum. Nokkrir
mismunandi hópar sækja skólann.
Fyrst má nefna framhaldsskóla-
nemendur sem vilja flýta fyrir
sér í námi. Síðan geta nemendur
sem hafa ekki gengið sem skyldi í
vetur og jafnvel fallið á sam-
ræmdu prófunum fengið einkunn
sína hækkaða í skólanum. Auk
þess hentar námið vel fyrir nem-
endur úr 10. bekk sem vilja undir-
búa sig fyrir framhaldsskólanám.
Loks má nefna almenning sem
hefur áhuga á einstökum áföng-
um. Mesta aukningin undanfarin
ár felst í nemendum sem eru að
ljúka 10. bekk. ■
UMSJÓNARMENN
Umsjónarmenn Sumarskólans í FB. Frá vinstri: Ólafur Jónsson, Gunnar Magnús Gunnars-
son, Hjördís Hjörleifsdóttir; Torfi Magnússon og Magnús Ingvason.
Margir hafa skráð sig í sumarskóla
NÁM
SUMARSKÓLI FB
■ verður starfræktur í ellefta sinn
í sumar. Búist er við um 700
nemendum í þetta sinn.
GUÐRÚN AGNARSDÓTTIR
Hélt upp á afmælið um hvíta-
sunnuhelgina er hún sýndi
barnabörnum sínum vorlömbin.
■ BESTI VINURINN
Ég get ekki gert upp á milli Sól-eyjar Ragnarsdóttur og Pálma
Sigurðssonar, þau eru bæði mínir
bestu vinir,“ segir Emilía Björg
Óskarsdóttir, söngkona í Nylon.
„Þau eru bæði frábærar manneskj-
ur sem hægt er að treysta fyrir
öllu, skemmtileg og með góðan
húmor.“ ■
DANA CARVEY
Grínistinn mikli er 49 ára í dag. Hann hóf
feril sinn í sjónvarpi í þáttunum Saturday
Night Live árið 1986 og fékk strax góðar
viðtökur fyrir eftirhermur sínar. Hann lék
annað aðahlutverkið í myndinni Wayne’s
World sem byggð var á persónum úr Sat-
urday Night Live og hefur síðan leikið í
fjölmörgum kvikmyndum.