Fréttablaðið - 02.06.2004, Page 32
24 2. júní 2004 MIÐVIKUDAGUR
■ KVIKMYNDIR
Rúmlega 9.000 miðar seldust áspennumyndina The Day Aft-
er Tomorrow um helgina. Þetta er
önnur stærsta opnun á kvikmynd
það sem af er árinu en lokahluti
Hringadróttinssögu sló öll met í
byrjun árs. Helgin var reyndar
óvenju löng þar sem myndin var
frumsýnd á miðvikudeginum á
undan hvítasunnuhelginni. Sú
ákvörðun var tekin til þess að þeir
sem ætluðu sér út úr bænum um
helgina gætu átt tækifæri á að
fara fyrst í bíó. Myndin var sýnd
tveimur dögum á undan frumsýn-
ingunni í Bandaríkjunum og telst
því vera heimsfrumsýning.
Tæplega 17 þúsund miðar
höfðu selst á myndina á fyrstu sex
sýningardögunum.
Dreifingaraðilar myndarinnar
hér á landi segjast ekki hissa yfir
móttökunum enda sé veðrið eitt af
uppáhaldsumræðuefni íslensku
þjóðarinnar. Í myndinni tryllast
veðurguðirnir all svakalega og
setja alla heimsbyggðina á annan
endann. Brellurnar þykja stór-
fenglegar og laða þær áhorfendur
í bíósætin. Nú er bara að sjá hvort
þriðja myndin um Potter geri ekki
betur. ■
[ TÓNLIST ]
UMFJÖLLUN
Oft týnast demantar í fjörunni,
innan um öll slípuðu glerbrotin,
þegar sjórinn rennir sandinum
miskunnarlaust yfir þá. Þetta
virðist hafa gerst með aðra plötu
Faultline þegar hún var fyrst gef-
in út árið 2002. Undarlegt í ljósi
þess að á plötunni eru Chris Mart-
in úr Coldplay, Wayne Coyne úr
Flaming Lips og Michael Stipe úr
R.E.M. allir í gestasöngvarahlut-
verki. Sem betur fer hefur sjávar-
guðinn hjá EMI ákveðið að þessi
plata ætti betra skilið, og fleytt
henni núna almennilega upp á
ströndina.
Faultline er hljómsveit plötu-
snúðarins David Kosten. Þetta er
eitursvöl tónlist, blanda af sveim-
andi raftónlist og trip-hoppi. Vel
unnin og útfærð plata, greinilega
unnin af mikilli listfengni og ást-
úð. Einhver Joseph Arthur, sem ég
hef ekki heyrt í áður, syngur svo
frábæra útgáfu af Rolling Stones-
laginu Wild Horses. Það lag hefur
eiginlega aldrei höfðað neitt sér-
staklega til mín, fyrr en nú.
Söngrödd Chris Martin nýtur
sín sérstaklega vel í þessari teg-
und tónlistar. Síþreytuleg rödd
hans á vel við svona dreymandi
tóna. Í lögunum Where Is My
Boy? og Your Love Means Everyt-
hing hljómar hann eins og ný-
vaknaður á sunnudagsmorgni og
lengra er í vælið en þegar hann
syngur með Coldplay.
Eitt besta lag plötunnar er þó
We Came From Lego Blocks, þar
sem Vordul Megilah semur svalt
rapp utan um einfalda píanólínu
og takt. Mjög auðvelt er að
ímynda sér þessa tónlist í athygl-
isverðri bíómynd því tónlistin
framkallar milljón myndir í hug-
anum þegar henni er rennt í gegn.
Önnur plata Faultline er ekki
bara fín, heldur mjög fín. Kjörin
plata til þess að setja á fóninn rétt
áður en maður leggst upp í rúm
svo tónlistin geti leitt mann í
draumaheiminn með bros á vör.
Birgir Örn Steinarsson
Demantur
á ströndinni
FAULTLINE
YOUR LOVE MEANS EVERYTHING
■ KVIKMYNDIR
■ FÓLK Í FRÉTTUM
!
" #
$#
"#
% % &
#
' ('
'##)$ $ * &
+
,' #- . '
Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík, s: 587 1960, www.mosaik.is
MOSAIK
Veljið fallegan legstein
Vönduð vinna og frágangur
Sendum myndalista
Legsteinar
THE DAY AFTER TOMORROW
Bíógestir ruku í bíó í góða veðrinu um
helgina til þess að sjá vonda veðrið.
17 þúsund miðar foknir á vonda veðrið
Kvikmyndin Ali, sem byggir álífi eins þekktasta hnefa-
leikara heims, Muhammads Ali,
kemur á næstunni út í tvöfaldri
DVD-útgáfu sem kallast „Ali: The
Director’s Cut.“
Ekki er hægt að gera ráð fyrir
að finna þar sömu mynd og bauðst
áhorfendum í sölum kvikmynda-
húsanna því Michael Mann, leik-
stjóri myndarinnar ákvað að
klippa tuttugu mínútur úr fyrri
útgáfunni og setja í staðin inn
hálftíma af áður óútgefnu efni.
„Þetta er öðruvísi útgáfa en
myndin sem fór í bíó,“ sagði Mann,
sem segist samt sem áður vera
mjög sáttur við þá útgáfu sem við
höfum áður getað séð. „Kvik-
myndaútgáfan var sú sem ég vildi
hafa en það eru aðrar áherslur á
þessari DVD-útgáfu. Meiri tíma er
varið í pólitíska landslagið á þess-
um árum og stöðu Ali innan þess,
sérstaklega í Afríku.“
Mohammed Ali, sem áður hét
Cassius Marcellus Clay, kynntist
Malcolm X, frægum talsmanni
Þjóðar Íslam en líf hans hefur
einnig verið fært á hvíta tjaldið.
Það var í gegnum kynni hans af
Malcolm X sem pólitísk vitund
Alis vaknaði og hann skipti um
nafn. ■
Auka hálftími af Ali
WILL SMITH
Í hlutverki boxarans Muhammad Ali.
BarbraStreisand
neyddist til þess
að borga ljós-
myndara sem
hún fór í skaða-
bótamál við all-
an málskostnað
eftir að dómari
hafði úrskurðað honum í hag.
Ljósmyndarinn hafði birt myndir
af heimili Streisand á heimasíðu
sinni vegna umhverfisrannsókna
sinna. Þetta fór í taugarnar á
söngkonunni, sem krafðist 10
milljóna dollara í skaðabætur.
Dómarinn sá málið ekki sömu
augum og söngkonan og skipaði
henni að greiða ljósmyndaranum
allan þann pening til baka sem
hann hafði lagt út í lögfræði-
kostnað.
[ TÓNLIST ]
TOP 20 - X-IÐ 97.7 - VIKA 22
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
Duality
SLIPKNOT
Cold Hard Bitch
JET
Float On
MODEST MOUSE
Check It Out
BEASTIE BOYS
Slither
VELVET REVOLVER
Talk Show Host On Mute
INCUBUS
Matinée
FRANZ FERDINAND
Nosirrah Egroeg
LOKBRÁ
Fit But You Know It
THE STREETS
Rising
DOZER
The Others
HOFFMANN
Run
SNOW PATROL
Kiss Of Life
SUPERGRASS
Up At The Lake
THE CHARLATANS
Sing For Absolution
MUSE
There Is No Home For You Here
THE WHITE STRIPES
Orpheus
ASH
Angel In Disguise
MÍNUS
Winning Days
THE VINES
Love Is Only A Feeling
THE DARKNESS
SLIPKNOT
Harðari verða sveitirnar í efsta sæti X-list-
ans nú varla.
* - Umsjónarmenn stöðvarinnar velja
á listann.