Fréttablaðið - 13.06.2004, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 13.06.2004, Blaðsíða 21
Smáauglýsingar byrja í dag á bls. 8 Flokkar & fjöldi Bílar & farartæki 93 stk. Keypt & selt 19 stk. Þjónusta 27 stk. Heilsa 4 stk. Skólar & námskeið 2 stk. Heimilið 9 stk. Tómstundir & ferðir 14 stk. Húsnæði 18 stk. Atvinna 15 stk. Tilkynningar 3 stk. Sístreymistekjur BLS. 2 Góðan dag! Í dag er sunnudagur 13. júní, 165. dagur ársins 2004. Reykjavík 2.58 13.28 23.58 Akureyri 1.47 13.13 24.42 Heimild: Almanak Háskólans Sólarupprás Hádegi Sólarlag Þú færð líka allt sem þig vantar á „Ég er með algjöra dýradellu,“ segir Margrét, búfræðingur og yfirdýrahirðir Húsdýragarðsins. „Þannig hef ég alltaf verið. Ég fór reglulega í sveit til frænd- fólks míns sem barn og var þá alltaf að draga inn ketti, fá lánaða hunda og jarða fugla. Enginn skildi neitt í neinu. Sumir krakkar eru bara svona sjúkir í dýr.“ Margrét er alin upp í Hafnarfirði en í sveitinni kviknaði óbilandi áhugi hennar á dýrum. Hún hefur ekki skánað mikið. Í dag á hún einn kött, tvo hunda og níu hesta. Eitt barn og einn mann. Annar hundanna er sá eini sinnar tegundar á landinu. „Ég flutti Títlu inn frá Banda- ríkjunum en hún er ógurlega skemmti- legur Parson Russell Terrier. Ég væri al- veg til í að eiga fleiri dýr en ég þarf að- eins að reyna að hemja mig. Syni mínum þykir ekkert eðlilegra en að mamma vinni í dýragarði enda hafa dýrin verið sameiginlegt áhugamál hjá fjölskyld- unni.“ Margrét útskrifaðist sem búfræðingur frá Hólum fyrir tíu árum og hefur starf- að sem dýrahirðir í Húsdýragarðinum síðan. „Skemmtilegast við þessa vinnu er fjölbreytnin. Ég sé um fóðurinnkaup, dýrakaup og skipulegg allt starf dýra- deildar garðsins. Stundum sit ég inni á skrifstofu við að reikna eitthvað en þess á milli hleyp ég á eftir kindum. Ekki alls fyrir löngu þurfti ég til dæmis að stökkva til og hjálpa hreindýrskú að bera. Það hafa ábyggilega ekki margir gert áður, að minnsta kosti ekki ég. Nú er mjög skemmtilegur tími í Húsdýragarðinum og öllum burði lokið í bili.“ Eitt þeirra verkefna sem Margrét hef- ur umsjá með í garðinum nefnist Villt dýr í hremmingum. „Verkefnið gengur út á að leiðbeina fólki um villt dýr og taka á móti þeim sem þurfa aðstoð. Fólk hefur komið með munaðarlausa andarunga eða jafnvel þresti sem það hefur áhyggjur af. Stundum eru það bara saddir og fínir fuglar sem hafa sést hreyfingarlausir uppi í tré.“ Aðspurð um uppáhaldsdýrið sitt svar- ar Margrét að lokum; „Maður gerir ekki upp á milli barnanna sinna.“ Búfræðingur í Húsdýragarðinum: Sjúk í dýr atvinna@frettabladid.is Regluleg laun hækkuðu að meðaltali um 1,5 prósent á milli fyrsta ársfjórðungs 2003 og fyrsta ársfjórðungs 2004. Þetta kemur fram í launakönnun Kjararann- sóknarnefndar. Vísitala neyslu- verðs hækkaði á sama tíma um 2,1 prósent. Kaupmáttur launa rýrnaði því að meðaltali um 0,6 prósent. Laun kvenna hækk- uðu meira en laun karla, eða um 1,6 prósent á móti 1,5 prósentum. Árið 2003 voru 129 myrtir í heiminum fyrir það að vera í stéttarfélagi. Líflátshótunum hefur fjölgað í garð félagsmanna stéttarfélaga sem og ofbeldi gegn þeim. Þetta kemur fram í nýlegri skýrslu Alþjóðasam- bands frjálsra verkalýðs- félaga sem kynnt var síðastliðinn miðvikudag. Frestur til að skila inn tilnefning- um vegna Starfsmenntaverðlaun- anna 2004 er til 17. ágúst næst- komandi. Veitt eru verðlaun í þremur flokkum; flokki fyrirtækja og félagasamtaka, flokki skóla og fræðsluaðila og í opnum flokki. Allar nánari upplýsingar um Starfsmenntaverðlaunin er hægt að nálgast á vefsíðu Menntar mennt.is. Þar er einnig að finna eyðublöð vegna tilnefninga og meðmælenda. Atvinnumiðlun í Bretlandi hefur lýst áhyggjum yfir aukningu á veikindadögum í vinnu vegna timburmanna í tenglsum við Evr- ópumótið í fót- bolta. Atvinnu- miðlunin hvetur því vinnuveitend- ur til að gera tíman- legar ráðstafanir og gera ráð fyrir að næstu daga verði fámennt á vinnu- staðnum. Margrét Dögg Halldórsdóttir hefur óbilandi áhuga á dýrum og nýtur sín í botn við starf sitt í Húsdýragarðinum. Smáauglýsingar á 750 kr. visir.is SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 Liggur í loftinu Í ATVINNU Eigum en nokkur Hobby hjólhýsi á lag- er. Ísmax ehf. Akralind 5. 201 Kópavog- ur S. 554 1111 & 893 7333. Landsins mesta úrval af bátum, utan- borðsmótorum og bátavörum. Vélasal- an ehf. Ánanaustum 1. S. 580 5300. www.velasalan.is Ath Sumaropnun til kl. 18.00 Barnahestur til sölu, vegna tímaleysis er til sölu 13 vetra meri sem hentar öllu á 80 þús, er í Hafnarfirði. Uppl. í síma 898 1937. Kötturinn Krummi er týndur. Hann er svartur eins árs högni, frekar loðinn og á heima í Þórufelli, Breiðholti. Ef einhver hefur séð hann eða veit hvar hann er þá vinsamlega hafið samb. í s. 849 4207. FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TÍSKA NEYTENDUR o.fl. FR ET TA B LA Ð IÐ /E .Ó L

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.