Fréttablaðið - 13.06.2004, Blaðsíða 39
31SUNNUDAGUR 13. júní 2004
Risaleikur á Evrópumótinu í knattspyrnu í dag:
Ledley King byrjar gegn Frökkum
EM Í FÓTBOLTA Stærsti leikur helgar-
innar og einn af stærstu leikjum
Evrópukeppninnar verður í
Lissabon í dag þegar Frakkar og
Englendingar mætast. Það er ekki
nóg með að þjóðirnar séu
nágrannar og erkifjendur í geg-
num tíðina þá spila margir leik-
manna franska liðsins í ensku
úrvalsdeildinni sem gerir þennan
frábæra leik enn fróðlegri.
Sven Göran Erikson er búinn
að tilkynna það að það verði
Ledley King, leikmaður
Tottenham, sem muni fylla skarð
Johns Terry sem getur ekki spilað
vegna meiðsla. Eriksson var
ánægður með spilamennsku Kings
með landsliðinu að undanförnu og
það skipti einnig máli að hann
þekkir vel til Sols Campbel síðan
þeir léku saman hjá Tottenham.
„Ég þarf ekki að segja mínum
mönnum að þeir geti unnið
Frakka. Við berum virðingu fyrir
þessu franska liði en við erum
ekki hræddir við þá. Þetta mót
verður mun betra hjá okkur en
síðasta HM. Við erum nú með alla
okkar menn heila, erum í betra
formi og nú er það okkar að sýna
okkur og sanna sem mikla
knattspyrnuþjóð,“ sagði Eriksson
á blaðamannafundi fyrir leikinn.
Frakkar eru sigurstranglegast
liðið í keppninni. Þeir eru
núverandi Evrópumeistarar, unnu
alla leiki sína í undankeppninni og
hafa ekki fengið á sig mark í rétt
tæpt ár. Lilian Thuram mun spila
sinn 100. landsleik í þessum leik
en aðrir sex aðrir leikmenn í allri
keppninni hafa náð þeim
árangri.■
BYRJUNARLIÐIN:
Frakkland
Barthez, Gallas, Thuram, Silvestre,
Lizarazu, Pires, Viera, Makelele, Zidane,
Henry, Trezeguet.
England
James, G. Neville, Campbell, King, Cole,
Beckham, Lampard, Gerard, Scholes,
Owen og Rooney.
ENSKA STUÐNINGSMANNASVEITIN ER KLÁR Í SLAGINN
Enskir áhorfendur munu örugglega koma til með að setja mikinn svip á leik Englendinga
og Frakka í Lissabon í dag. Leikurinn hefst klukkan 18:45 að íslenskum tíma.
ZIDANE LEIÐIR FRANSKA LIÐIÐ
Zinedine Zidane mun bera fyrirliðabandið
gegn Englandi í dag.
Evrópukeppnin:
Zidane fyrir-
liði Frakka
EM Í FÓTBOLTA Zinedine Zidane
verður fyrirliði Frakka gegn
Englandi í dag þar sem Marcel
Desailly mun byrja á bekknum.
„Marcel mun ekki byrja á
morgun. Rannsóknir okkar sýndu
að hann er langt frá því að geta
spilað í 90 mínútur,“ sagði Jaques
Santini, þjálfari franska liðsins
sem teflir fram Mikael Silverstre
og Liliam Thuram í miðri frönsku
vörninni. Desailly á möguleika á
að setja leikjamen í úrslitum
evrópukeppninnar, þarf þrjá leiki
til þess að eiga metið einn. ■
BALLACK LYKILMAÐUR ÞJÓÐVERJA
Michael Ballack vonast eftir að fleiri leik-
menn þýska liðsins taki á sig ábyrgð.
Þjóðverjinn Ballack:
Ég þarf
meiri hjálp
EM Í FÓTBOLTA Þjóðverjinn Michael
Ballack er í algjöru lykilhlutverki
hjá þýska landsliðinu en hann
hefur varað félaga sína við því að
liðið komist ekki langt í
Evrópukeppninni ef hann á að
bera liðið alla leið á sínum
herðum. „Ég veit að það búist við
miklu af mér og það er í góðu lagi.
Lið má ekki seta allt sitt traust á
einn leikmann því það er ekki
vænlegt til árangurs. Ég ætla mér
að spila vel og liðið getur gert
góða hluti en við höfum ekki sett
okkur nein ákveðin markmið á
mótinu,“ sagði Ballack. ■
Lennart Johannsson:
Vonast eftir
heimasigri
EM Í FÓTBOLTA Formaður UEFA,
Lennart Johansson, vonast til þess
að Portúgalir verði Evrópu-
meistarar. Það er frábært að sjá
svona litla þjóð standa sig svo vel
í umgjörð um keppina og þeir eiga
svo sannarlega skilið að vinna
þessa keppni. ■
Gerðu Portúgölum grikk
Grikkland vann Portúgal 2–1 í fyrsta leik Evrópumótsins í knattspyrnu í gær. Spánverjar
byrjuðu mun betur en nágrannar þeirra og unnu Rússa, 1–0, í seinni leik dagsins.
EM Í FÓTBOLTA Pressan á Portú-
gölum var þeim kannski ofviða í
fyrsta leik þeirra á Evrópu-
mótinu. Tvö mörk Grikkja í
upphafi hvors hálfleiks lögðu
gruninn að 2–1 sigri þeirra og
þrátt fyrir þunga sókn heima-
manna tókst þeim ekki að skora
fyrr en þrjár mínútur voru komn-
ar fram í uppbótartíma.
Nágrannar Portúgala, Spánverjar,
unnu hinsvegar Rússa, 1–0, þökk
sé meistaraskiptingu þjálfarans,
Inaki Saez í seinni hálfleik.
Allir vonsviknir
„Þetta þýðir að næsti leikur er
upp á líf og dauða fyrir okkur,“
sagði Luis Scolari, þjálfari
Portúgala eftir leik. „Við misstum
ekki tökin á miðjunni við misstum
tökin á öllum leiknum. Bæði ég og
leikmennirnir erum mjög
vonsviknir eftir þessi úrslit.“
Grikkir komu Portúgölum í
opna skjöldu með góðri byrjun en
flestir höfðu spáð því að gríska
liðið myndi falla aftur á völlinn og
treysta á sína sterku vörn. En
annað kom á daginn og eftir sjö
mínútur voru heimamenn komnir
undir og áhorfendurnir tóku and-
köf. Í upphafi seinni hálfleiks
fengu Grikkir síðan víti sem
Angelo Basinas skoraði af öryggi
úr og þrátt fyrir að Luis Felipe
Scolari setti inn hvern sóknar-
manninn á fætur öðrum tókst
þeim ekki að skora fyrr en rétt
fyrir lokaflautið þegar Christiano
Ronaldo skallaði inn hornspyrnu
Luis Figo. Ronaldo hafði komið
inn á sem varamaður í hálfleik og
var búinn að gefa víti eftir aðeins
sex mínútur. Ronaldo varð annar
yngsti leikmaðurinn í sögunni til
að skora í úrslitum EM en hann er
aðeins 19 ára og 4 mánaða gamall.
„Þetta er stærsti sigur í sögu
Grikklands,“ sagði Þjóðverjinn og
þjálfarinn Otto Rehagel sem
hefur gerbreytt hugsunarhætti
leikmanna liðsins. „Leikaðferðin
og skipulagið gekk fullkomlega
upp og ég býst við að Grikkir
fagni þessi vel en við þurfum að
komast aftur niður á jörðina því
það eru bara 4 dagar í næsta leik.“
Varamaðurinn Valerón
Varamaðurinn Juan Carlos
Valerón var hetja Spánverja gegn
Rússum en hann skoraði eina
markið í leiknum með sinni fyrstu
snertingu. Valerón leysti
Fernando Morientes af hólmi og
skoraði aðeins nokkrum sekúnd-
um síðar. Spánverjar höfðu mikla
yfirburði stærsta hluta leiksins en
tókst ekki að skora nema einu
sinni. ■
A-RIÐILL
Portúgal–Grikkland 1–2
0–1 Karagounis (7.), 0–2 Basinas, víti
(51.), 1–2 Ronaldo (90.)
Spánn–Rússland 1–0
1–0 Valerón (60.)
STAÐAN Í RIÐLINUM
Grikkland 1 1 0 0 2–1 3
Spánn 1 1 0 0 1–0 3
Portúgal 1 0 0 1 1–2 0
Rússland 1 0 0 1 0–1 0
NÆSTU LEIKIR Í RIÐLINUM
Grikkland–Spánn Mið. 16. júní 16:00
Rússland–Portúgal Mið. 16. júní 18:45
FYRSTA MARK EVRÓPUKEPPNINNAR Í KNATTSPYRNU
Það tók Grikkjann Georgios Karagounis aðeins sjö mínútur að skora fyrsta mark
Evrópumótsins í Portúgal. Markið skoraði hann með hnitmiðaðu skoti af 20 metra færi.
VARAMAÐURINN VALERÓN BJARGAÐI DEGINUM
Juan Carlos Valerón kom inn á sem varamaður fyrir Fernando Morientes og tryggði
Spánverjum sigur á Rússum í gær. Hér fagnar hann markinu með félögum sínum.
■ STAÐA MÁLA
GRIKKIR FAGNA ÓVÆNTUM SIGRI Á HEIMAMÖNNUM Í PORTÚGAL
Leikmenn Grikkja fagna hér ásamt stuðningsmönnum sínum sigri á Portúgal í opnunarleik Evrópumótsins í Portúgal í gær.