Fréttablaðið - 23.06.2004, Blaðsíða 17
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 8
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 147 stk.
Keypt & selt 16 stk.
Þjónusta 41 stk.
Heilsa 7 stk.
Heimilið 12 stk.
Tómstundir & ferðir 8 stk.
Húsnæði 24 stk.
Atvinna 26 stk.
Tilkynningar 3 stk.
Sparað í sumarfríinu
BLS. 2
Góðan dag!
Í dag er miðvikudagurinn 23. júní,
175. dagur ársins 2004.
Reykjavík 2.55 13.30 00.04
Akureyri 1.29 13.15 00.58
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Þú færð líka
allt sem þig vantar á
„Mér þykir ekkert sérstak-
lega gaman að elda hvers-
dagsmat,“ segir Elva Dögg
Melsted, fyrrum Ungfrú Ís-
land.is. „Kannski af því að ég
kann svo fáa rétti í kollinum
og þarf alltaf að vera að
fletta upp í bókum. Ég þyrfti
að fara að koma mér upp að-
eins stærri gagnabanka.
Matseðillinn á mínu heim-
ili miðast að miklu leyti við
hvað litla stelpan mín, hún
Matthildur, borðar í leikskól-
anum hverju sinni. Við reyn-
um að hafa dálitla fjöl-
breytni í mataræðinu henn-
ar.“ Elva Dögg segist elda
mjög barnvænan mat sem er
auðveldur og hollur. „Kjúkl-
ingur er efstur á vinsælda-
listanum hjá okkur því Matt-
hildur nennir ekki að borða
mat sem er erfitt að tyggja.“
Skiljanlega, því stelpan er
bara tveggja og hálfs árs
gömul. En ekki alls fyrir
löngu eignuðust Elva Dögg
og eiginmaður hennar Magn-
ús Þór Gylfason drenginn
Gylfa Þór, sem nú er að
verða sjö vikna gamall. Aug-
ljóslega er nóg að gera á
heimili fjölskyldunnar um
þessar mundir.
Hversdagsmatur höfðar
ekki sérstaklega til Elvu en
þegar í harðbakkann slær
kann hún ýmis ráð. „Fiskur
verður oft fyrir valinu, bæði
soðinn og steiktur. Í hallæri
steiki ég bara það sem er í ís-
skápnum. Hakk og spagettí
er alltaf klassískt og ef ekk-
ert er til útbý ég súpu eða
pasta. Annars snýst elda-
mennskan aðallega um nýja
gasgrillið okkar, það er ótrú-
legt hvað eru sterk tengsl
milli karlmanna og grills,“
segir hún hlæjandi en bætir
því við að Magnús standi
alltaf fyrir sínu í eldhúsinu.
„Við höfum eiginlega prófað
allan mat sem hægt er að
grilla en kjúklingurinn kem-
ur sterkur inn jafnt á grillið
sem annars staðar.“
thora@frettabladid.is
Hvunndagsmatur Elvu Daggar Melsted:
Soðinn og
steiktur fiskur
fjarmal@frettabladid.is
MEÐALÆVITEKJUR heimilanna
eru 120-150 milljónir króna. Þetta
er dálagleg peningavelta og full
ástæða til að skoða í hvað þessar
hundrað milljónir fara. Á vefsíðunni
fjarmalafrelsi.is er hægt að skrá sig
á námskeið til að læra að
skipuleggja heimilisbók-
haldið og gerast áskrif-
andi að forriti sem
auðveldar þér að
fylgjast með og stýra
tekjum og gjöldum
heimilisins.
FJÁRMÁL HEIMILANNA bjóða
upp á persónulega ráðgjöf um
einkafjármálin. Fyrsti tíminn fer í
greiningu og leiðbeiningar um
næstu skref. Aðstoðin felst í að
finna leiðir til þess að stýra útgjöld-
um en þeim er skipt í þrennt:
sparnað, neyslu og skuldir. Hver og
einn velur þann útgjaldalið sem
honum hentar og hversu mikla ráð-
gjöf og aðstoð hann kaupir sér.
Ráðgjafar taka að sér samninga við
lánardrottna og útvega lögfræði-
aðstoð í deilumálum.
SKULDIR heimilanna aukast
stöðugt og eru nú áætlaðar 176% af
ráðstöfunartekjum heimilanna, segir
í maíhefti Peningamála, tímariti
Seðlabankans. Þetta þýðir
að það tæki heimilin rúm-
lega eitt ár og níu mán-
uði að greiða niður
lánin ef þau notuðu
til þess allar sínar
tekjur. Seðlabankinn
gerir ráð fyrir að aukin
skuldasöfnun muni fylgja
stórframkvæmdum næstu ára en
ráðstöfunartekjur heimilanna muni
aukast að sama skapi.
ÍSLAND ER dýrasta land heims
samkvæmt niðurstöðu ferða-
mannavísitölu breska fyrirtækisins
ECA International. Japan er í öðru
sæti, Martinique í því þriðja, Nor-
egur í 4. sæti og Danmörk í því
fimmta.
Elva Dögg hefur ekki sérlega
gaman af hversdagsmatargerð en
grillið á heimilinu er mikið notað.
Smáauglýsingar
á 750 kr.
visir.is
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Liggur í loftinu
Í FJÁRMÁLUM
Hjólið er 2002 árgerð, lítur mjög vel út
og er ekið 6.600 km. Hjólið er til sýnis
í sal Nítró í Járnhálsi 2 og er á skrá í not-
uð hjól á www.nitro.is síminn í Nítró er
557 4848.
Til sölu sportbátur. 5 metra langur x
1.50 á breidd. Vagn er með bátnum og
stýrisbúnaður er með, enginn mótor.
Uppl. í síma 849 5328.
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TÍSKA NEYTENDUR o.fl.