Fréttablaðið - 23.06.2004, Blaðsíða 39
■ VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á bls. 6
1
3
2
Natalia Wium.
Grænlendingar.
Wayne Rooney.
31MIÐVIKUDAGUR 23. júní 2004
1
6 7
8 9
14
16 17
15
18
2 3 4
1311
10
12
5
Hljóðfærahúsið Laugavegi 176 105 Reykjavík
www.hljodfaerahusid.is info@hljodfaerahusid.is Sími 525 5060
Jam pack
Taktu með þér
í útileguna!
Ibanez Jam pack
kassagítar með ól, tuner
og poka á aðeins
19.900 kr.-
22 ferðalög - KK & Maggi Eiríks
Þessi vinsæla geislaplata fylgir frítt
með á meðan birgðir endast!
„Teiknimyndin sem við vinnum að
fjallar um fordóma og við erum
núna að fá sem flesta til að taka þátt
í gerð hennar,“ segir Guðmundur
Arnar Guðmundsson en hann vinnur
í sumar ásamt félögum sínum að
gerð myndarinnar.
„Þórgnýr fékk hugmyndina og
við ákváðum að fara í samstarf. Við
kvikmynduðum hana í vetur og
fengum til þess styrk frá Ungu fólki
í Evrópu en nú höfum við prentað
hana út ramma fyrir ramma og
fáum fólk til að teikna þá fyrir okk-
ur. Við áætlum að fjöldi þeirra sem
tekur þátt í því að handteikna mynd-
ina verði um sjö hundruð.“
Hugmyndin er nýstárleg en þetta
er í fyrsta sinn sem mynd er gerð
með þessum hætti hér á landi. „Við
fengum vinnu í Hinu Húsinu í sum-
ar til vinna myndina og störfum
fimm að henni. Viðfangsefni mynd-
arinnar er fordómar og er markmið-
ið að fá sem flesta til að sjá hana,
tala um hana og hugleiða,“ segir
Guðmundur.
Hópurinn fer á milli félagsmið-
stöðva ÍTR þar sem þau gefa krökk-
um tækifæri á að taka þátt í verk-
efninu. „Við verðum líka með stórt
tjald á Lækjartorgi þar sem fólk get-
ur komið við og teiknað. Á 17. júní
teiknuðu 250 manns hjá okkur.“
Myndin er algjörlega byggð á
myndmáli og segir Guðmundur þau
hafa viljað gera mynd án landamæra.
„Okkur langaði að ganga sem lengst
með sjónrænar pælingar og við töl-
um því í myndmáli og túlkum tilfinn-
ingar á sama hátt. Við munum sjálf
sjá um að byggja upp útlit myndar-
innar en hinir fjölmörgu teiknararnir
munu sjá um gerð persónanna.“
Að myndinni vinna ásamt Guð-
mundi þau Þórgnýr Thoroddsen,
Una Lorenzen og Þorsteinn Davíðs-
son. Yfirumsjón með tónlistar- og
hljóðvinnslu hefur Guðmundur
Steinn Gunnarsson. ■Teiknimynd án landamæra
TEIKNIMYND
BÚIST ER VIÐ ÞVÍ AÐ HUNDRUÐ
TEIKNARA TAKI ÞÁTT
■ í gerð myndarinnar sem mun taka á for-
dómum. Myndin verður byggð eingöngu á
myndmáli og því á færi allra að skilja
TEIKNAÐ Í FROSTASKJÓLI
Félagarnir ferðast milli félagsmiðstöðva ÍTR
þessa dagana og gefa krökkum tækifæri á
að taka þátt í gerð teiknimyndarinnar.
Baldur Ágústsson forsetafram-bjóðandi ber bæði hag eldri
borgara sem og þeirra sem erfa
munu land fyrir brjósti og í kvöld
ætlar hann að tala til ungu kynslóð-
arinnar þegar hann mætir í þáttinn
70 mínútur á PoppTíví. Þeir sem
hafa fylgst með þessum líflega þætti
þeirra Auðuns Blöndal, Sveppa og
Péturs Jóhanns Sigfússonar vita að
það er ekki heiglum hent að heim-
sækja strákana í settið en þaðan fer
enginn út án þess að drekka ógeðs-
drykkinn fræga og taka háskalegri
áskorun. Baldur lætur þetta þó ekki
aftra sér og sjálfsagt eru nokkur at-
kvæði í pottinum fyrir frambjóðanda
sem þorir að kasta af sér helgislepj-
unni og skella í sig viðbjóðslegu
bruggi strákanna. Þá má Baldur bú-
ast við öðruvísi og krefjandi spurn-
ingum sem hann þyrfti ekki að svara
á nokkrum öðrum fjölmiðli. Þetta út-
spil Baldurs hlýtur því að teljast
hressileg tilbreyting í dauflegri kosn-
ingabaráttunni en lítil hætta er á að
sitjandi forseti, Ólafur Ragnar
Grímsson, feti í fótspor Baldurs
enda benda skoðanakannanir til
þess að staða hans sé svo sterk að
hann þurfi ekki að kyngja hverju
sem er fyrir atkvæði MTV-kynslóðar-
innar.
Lárétt:1 dorgar, 6ima,7ró,8oo,9pan,
10tog,12trú,14kóp,15úr, 16ól,
17 mig,18rann.
Lóðrétt:1dior, 2omo,3ra,4aragrúi,
5rón,9pot,11bóla,13úrgi, 14kór,
17mn.
Lárétt: 1 veiðir, 6 liðuga - f, 7 kyrrð,
8 tveir eins, 9 skógarguð, 10 ull, 12 vissa,
14 ungsel, 15 suddi, 16 belti,
17 persónufornafn (þf), 18 heimili.
Lóðrétt: 1 tískunafn, 2 þvottaefni,
3 sólguð, 4 urmull, 5 fljót í Evrópu, 9 ot,
11 nabbi, 13 voti, 14 sönghópur, 17 í röð.
Lausn:
FRÉTTIR AF FÓLKI