Fréttablaðið - 23.06.2004, Blaðsíða 4
4 23. júní 2004 MIÐVIKUDAGUR
Mannræningjar taka annað fórnarlamb af lífi í Írak:
Kaldrifjuð aftaka
ÍRAK, AP Yfirvöld í Suður-Kóreu
hafa staðfest að Kim Sun-il sem
verið hefur í haldi mannræningja
í Írak sé látinn. Mannræningjarn-
ir tóku hann af lífi eftir að ljóst
varð að Suður-Kórea sýndi því
engan áhuga að draga hermenn
sína frá landinu eins og farið var
fram á í skiptum fyrir líf Sun-il.
Verkfræðingurinn Sun-il starfaði
hjá öryggisfyrirtæki sem aðstoð-
ar bandaríska herinn en honum
var rænt í síðustu viku.
Sami hópur hryðjuverkamanna
hefur lýst ábyrgð á aftöku Sun-il
og tók af lífi Bandaríkjamanninn
Nick Berg í síðasta mánuði. Hóp-
urinn er einnig grunaður um fleiri
ódæði eins og drápinu á yfirmanni
írönsku bráðabirgðastjórnarinnar
Ezzedine Salim. Sjónvarpsstöðin
al-Jazeera fékk sent myndband
sem sýndi aftöku Sun-il fram-
kvæmda með sams konar hætti og
við sömu aðstæður og þegar Nick
Berg var tekinn af lífi. ■
Fimmtungur skilar
auðu á laugardaginn
Ólafur Ragnar Grímsson fær tæp 72 prósent atkvæða í forsetakosningunum ef niðurstöður skoð-
anakönnunar Fréttablaðsins ganga eftir. Baldur Ágústsson fengi rúm sex prósent atkvæða og
Ástþór Magnússon rúmt prósent. 20,6 prósent kjósenda virðast ætla að skila auðu.
FORSETAKOSNINGAR Útlit er fyrir að
fimmtungur kjósenda skili auðu í
forsetakosningunum á laugardag-
inn kemur, að því er fram kemur í
skoðanakönnun Fréttablaðsins
sem gerð var í gær. Þegar allt er
talið ætlar fjórðungur lands-
manna annaðhvort að sitja heima
eða skila auðu. Ólafur Ragnar
Grímsson mælist nú með um
tveim prósentum minna fylgi en í
könnun blaðsins sem gerð var 5.
júní. Þá var Ólafur Ragnar með
63,8 prósenta fylgi, en mælist með
61,7 prósenta fylgi nú. Baldur
Ágústsson bætir lítillega við sig,
með 5,3 prósenta fylgi, var með
slétt fimm prósent áður. Ástþór
Magnússon er svo með eitt pró-
sents fylgi og hefur bætt við sig
tæpu hálfu prósenti. 17,7 prósent
aðspurðra ætla að skila auðu og
fimm prósent ætla ekki að kjósa.
Óákveðnir eru svo fimm prósent
og fjögur prósent gefa ekki upp
afstöðu sína og tæpt hálft prósent
vill einhvern annan en er í boði.
Ef þessar tölur eru yfirfærðar
á væntanlegar kosningar og þeir
teknir út sem ætla ekki að kjósa,
eru óákveðnir, eða vilja aðra
frambjóðendur, þá fengi Ólafur
Ragnar 71,9 prósent atkvæða,
Baldur 6,16 prósent og Ástþór
1,17 prósent, meðan auðir seðlar
yrðu 20,6 prósent.
Nokkur munur er á fylgi fram-
bjóðenda eftir því hvort kjósend-
ur búa á landsbyggðinni eða í þétt-
býli. Ólafur Ragnar er t.d. með
73,2 prósenta fylgi úti á landi, en
64,3 prósenta fylgi í þéttbýli, ef
horft er til þeirra sem afstöðu
taka. Þá er Ástþór Magnússon
með áberandi minna fylgi úti á
landi en í þéttbýlinu, eða 0,4 pró-
sent á móti 1,6 prósentum. Baldur
er svo með 6,5 prósenta fylgi í
þéttbýlinu, en 4,7 prósent úti á
landi. Konur eru svo áberandi
minna hrifnar af Baldri og Ást-
þóri en karlarnir. Baldur hefur 3,5
prósent fylgi kvenna og Ástþór
0,9 prósent, meðan 7,5 prósent
karla myndu kjósa Baldur og 1,4
prósent Ástþór. Ólafur Ragnar er
svo með heldur meira fylgi
kvenþjóðarinnar, eða 69,2 prósent
á móti 66,4 prósenta fylgi karla
við hann.
Ef bara er horft á fylgi fram-
bjóðendanna, þá ber Ólafur Ragn-
ar höfuð herðar yfir hina með 90,8
prósent. Baldur mælist með 7,7
prósent fylgi og Ástþór með 1,5
prósent. Úrtakið í skoðanakönnun
blaðsins var 800 manns og skiptist
það jafnt á milli kynja og hlut-
fallslega eftir kjördæmum. Spurt
var: Hvern myndir þú kjósa sem
forseta Íslands ef gengið yrði til
kosninga nú?
olikr@frettabladid.is
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
Ætti Ríkisútvarpið að setja á fót
sérstaka íþróttarás?
Spurning dagsins í dag:
Eiga Íslendingar erindi í öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna?
Niðurstöður gærdagsins
á visir.is
21,21%
78,79%
Nei
Já
KJÖRKASSINN
Farðu inn á visir.is og segðu þína skoðun
visir.is
Serbar og Albanar:
Slíðra sverðin
ALBANÍA, AP Varnarmálaráðherrar
Albaníu og Serbíu-Svartfjallalands
vilja leggja áherslu á að ekki andi
köldu á milli landa þeirra nú þegar
bæði stefna á aðild að Atlanthafs-
bandalaginu. Ráðherrarnir hittust á
fundi í gær. Þetta er í fyrsta sinn
frá árinu 1947 sem varnarmála-
ráðherrar landanna hittast.
Sambandið milli landannna
hefur verið stirt síðan Júgóslavía
sleit tengslum við Sovétríkin árið
1949 en Albanía ekki. Serbía-Svart-
fjallaland sleit síðan öllum sam-
skiptum við Albaníu 1998–1999
þegar Kósóvó-deilurnar stóðu sem
hæst. Serbar sökuðu Albani um að
kynda undir átök albanska minni-
hlutans í Kosóvó. ■
Fást í útibúum Íslandsbanka um land allt og hjá Íslandsbanka-Eignastýringu, Kirkjusandi.
Hægt er að panta bækurnar hjá Þjónustuveri Íslandsbanka í síma 440 4000.
Einnig eru bækurnar til sölu í bókabúðum Pennans-Eymundsson, hjá Máli og Menningu
og hjá Bóksölu stúdenta.
Frábærar bækur frá Íslandsbanka-Eignastýringu
VARNAMÁLARÁÐHERRAR
Albanski varnamálaráðherrann Pandeli
Majko, til vinstri, og Prvoslav Davinic, varn-
armálráðherra Serbíu-Svartfjallalands,
takast í hendur í borginni Tírana í Albaníu.
Drápu kynskipting:
Hatursmorð
KALIFORNÍA, AP Dómari vísaði máli
þriggja manna sem voru ákærðir
fyrir að drepa kynskipting á ung-
lingsaldri frá dómi þar sem kvið-
dómur náði ekki samkomulagi eft-
ir níu daga fundarhöld. Mennirnir
áttu 25 ára dóm yfir höfði sér.
Talsmenn réttindahóps kyn-
skiptinga fylgdust náið með mál-
inu. Þeir höfðu gefið það út að úr-
skurðurinn sendi skilaboð um
hvers virði líf þeirra væri.
Gwen, sem áður hét Edward
Araujo, var sautján ára þegar hún
var barin og síðan kyrkt þegar
mennirnir komust að fyrra kyni
hennar fyrir tveimur árum. ■
SORGIN KNÝR DYRA
Ættingjar og vinir Kim Sun-il komu saman
í Seoul og minntust hans með kertum og
blómum. FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/M
YN
D
/A
P
MENNTAMÁL Að óbreyttu mun
Kennaraháskóli Íslands neyðast
til að hafna samanlagt tæplega
eitt þúsund umsækjendum á
næsta skólaári. Þetta kemur
fram í frétt frá skólanum.
Á þessu vori bárust nær 1.900
umsóknir um nám við Kennara-
háskólann. Því miður leyfir fjár-
hagsrammi hans ekki að nema
tæplega helmingi þessa hóps
verði boðin skólavist, að sögn
forráðamanna hans.
Lokið er úrvinnslu umsókna
fyrir næsta skólaár. Alls bárust
1.500 umsóknir um nám í grunn-
deild og hefur 685 verið boðið
að hefja nám. Í grunndeild
sækja flestir um grunnskóla-
braut eða 631. Af þeim fá 280
inngöngu.
Um nám í framhaldsdeild
sóttu 334 og var 218 umsækj-
endum boðið að hefja nám.
Nemendur við Kennara-
háskóla Íslands eru nú um 2.400
og hefur fjölgað verulega á
síðustu árum.
Harma forráðamenn skólans
að þurfa að hafna fjölmörgum
hæfum umsækjendum og raun
ber vitni, en telja á hinn bóginn
afar ánægjulegt hversu margir
sýna náminu við hann áhuga. ■
Kennaraháskóli Íslands:
Hafnar nær 1000
nemendum
ÁM Ástþór
Magnússon
Baldur
Ágústsson
Ólafur Ragnar
Grímsson
BÁ ÓRG Annað Skila
auðu
Kjósa
ekki
67,7%
5,8%1,1% 1,5%
7,7%
90,8%
0,4%
5,5%
19,4%
NÍU AF HVERJUM TÍU
Af þeim sem gera upp á milli frambjóðen-
danna ætla níu af hverjum tíu að kjósa
Ólaf Ragnar Grímsson.
KEPPIR VIÐ AUÐU SEÐLANA
Ólafur ber höfuð og herðar yfir keppinauta
sína, næst fylgi hans koma auðir seðlar.
Ekki er tekið mið af óákveðnum hér.
BESSASTAÐIR
Nokkuð ljóst er hver verður forseti þjóðarinnar að afloknum kosningum næsta laugardag.
Ólafur Ragnar Grímsson hefur tæplega 72 prósenta fylgi ef marka má
könnun Fréttablaðsins sem gerð var í gær.
Berlusconi:
Fullviss
um svindl
ÍTALÍA, AP Silvio Berlusconi, for-
sætisráðherra Ítala, segist þess
fullviss að um kosningasvindl hafi
verið að ræða þegar flokkur hans
Forza Italia, tapaði miklu fylgi í
kosningum sem fram fóru fyrr í
þessum mánuði. Úrslitin þykja
nokkuð áfall fyrir Berlusconi.
Sakar hann andstæðinga sína um
að hafa ógilt atkvæðaseðla sér í
vil en Forza Italia hlaut aðeins 21
prósent fylgi en fékk 29 prósent í
síðustu kosningum árið 2001.
Stjórnin heldur velli þar sem aðr-
ir hægrisinnaðir flokkar sem ein-
nig eru í stjórn hlutu meira fylgi
en áður. ■
INNBROT Í NJARÐVÍK Brotist var
inn í Skipasmíðastöð Njarðvíkur
aðfaranótt mánudags sam-
kvæmt því sem kemur fram á
lögregluvefnum. Teknir voru
peningar úr afgreiðslunni en
lögreglan í Keflavík hefur ekki
haft uppi á þjófunum. Málið er í
rannsókn.
ÁREKSTUR Á GULLINBRÚ Árekst-
ur varð milli tveggja bíla á
Gullinbrú um tíuleytið í gær-
kvöldi. Óttast var að um alvar-
legt slys væri að ræða og voru
sendir tveir sjúkrabílar auk
tæknimanna en svo kom í ljós
að meiðsli voru lítilsháttar.
BÍLVELTA Í SANDGERÐI Bíll fór út
af veginum við golfskálann í
Sandgerði í gærkvöld. Líklegt
var talið að um fótbrot væri að
ræða hjá farþega en tveir voru í
bílnum, sem er nánast ónýtur.