Fréttablaðið - 23.06.2004, Blaðsíða 38
Leikkonan Vilborg Halldórsdóttir
var ósátt eftir helgina þegar hún
komst að því að óprúttinn einstak-
lingur hafði gert sér lítið fyrir og
rænt hengirúmi úr garðinum
hennar. „Ég var nýbúin að kaupa
mér mjög fallegt hengirúm á Ítal-
íu. Það er handofið og hvítt á lit-
inn og mér fannst einstaklega
skemmtilegt að liggja í því í hlýja
veðrinu með góða bók,“ segir Vil-
borg en hengirúmið fékk aðeins
að standa í garðinum hennar í
viku. „Það er leiðinlegt ef hlutirn-
ir fá ekki að vera á sínum stað og
ég trúi ekki að það þurfi að
hlekkja allt garðdótið við trén í
garðinum eða taka það allt inn á
kvöldin til að það fái að vera í
friði.“
Vilborgar skorar á þann sem
hefur tekið hengirúm hennar í
misgripum eða „fengið það að
láni“ að skila því aftur í réttan
garð. „Mér þykir líklegt að þarna
hafi verið á ferðinni fólk sem var
að koma úr partíi. Ef einhver
hefur vaknað með hengirúmið við
hliðina á sér eftir helgina eða ef
einhver veit hvar hengirúmið er
niður komið væri ég afskaplega
glöð ef því yrði skilað aftur til
mín. Nú er hægt að fá hengirúm í
búðum úti um allan bæ og ég mæli
með því að fólk versli fremur þar
en í görðum annarra.“
Vill fá hengirúmið til baka
30 23. júní 2004 MIÐVIKUDAGUR
„Við förum á slóðir skáldsins og
leyfum fortíðinni að lifna við,“ seg-
ir leikkonan Guðrún Ásmundsdótt-
ir, en síðastliðin þrjú sumur hefur
hún skipulagt feikivinsælar ferðir á
slóð skáldsins og lögfræðingsins
Einars Benediktssonar. „Við byrj-
um í Höfða klukkan tíu um morgun-
inn en Einar keypti húsið árið 1913.
Þarna voru kampavínsár skáldsins
og til að endurvekja stemninguna
sem ríkti í Höfða á tímum Einars
segjum við sögur og bjóðum upp á
kampavín í safni Sigurjóns
Ólafssonar.“
Frá Höfða liggur leiðin til
Krýsuvíkur þar sem kveikt er á
kertum í kirkjunni á staðnum.
„Þegar ég byrjaði að skipuleggja
ferðirnar benti Árni Bergmann
mér á bókina, Þegar sálin fer á
kreik, eftir sagnfræðinginn Ingi-
björgu Sólrúnu Gísladóttur. Sú
saga segir frá Sigurveigu Guð-
mundsdóttur sem fæddist árið
1910 og lifir góðu lífi enn. Hún er
stórkostleg persóna sem hefur
mikið yndi á ljóðum Einars Ben og
fór á sínum tíma í heimsókn til
skáldsins í fylgd Kristínar systur
hans. Í Krýsuvíkurkirkjunni verð-
ur Sigurveig í aðalhlutverki í túlk-
un leikkonunnar Ástu Sighvats
Ólafsdóttur,“ segir Guðrún, en í
ferðinni glæða, auk hennar og
Ástu, leikararnir Ólafur Þór
Jóhannesson og Margrét Ákadótt-
ir lífi í þær persónur sem lifðu á
tímum Einars Ben.
„Við förum líka til Herdísarvík-
ur og þar verður bakkelsi að hætti
Hlínar Johnson, sambýliskonu Ein-
ars, en þær Herdís Tryggvadóttir
og Aðalheiður Ólafsdóttir hafa veg
og vanda að veitingunum. Með
bakkelsinu bjóðum við upp á ís-
lenskt brennivín því Hlín Johnson
lagði það í vana sinn að bjóða upp á
heimabrugg í sínu húsi. Að lokum
förum við í Strandakirkju þar sem
Ólafur Þór fer í hlutverk prestsins
og við flytjum þar í sameiningu
ljóð Einars, Messan á Mosfellsbæ.“
Birgir Matthíasson, bóndi og
eiginmaður Guðrúnar, er eigandi
Ferðar og sögu, fyrirtækisins sem
stendur að ferðinni. „Við höfum
haft afskaplega gaman af þessum
dagsferðum. Í þeim finn ég vel að
leiklistin á alls ekki bara heima
inn í lokuðu leikhúsi því það getur
virkað svo sterkt á fólk þegar sög-
ur eru sagðar í því umhverfi sem
þær tilheyra. Við förum tvær
ferðir í ár en það er nú þegar upp-
selt í aðra ferðina. Hin ferðin
verður farin sunnudaginn 27. júní
og allir sem vilja skemmta sér
með okkur og fræðast um líf Ein-
ar Benediktssonar eru hjartan-
lega velkomnir.“ Nánari upplýs-
ingar um ferðina er að finna
storytrips.com. ■
Á SÖGUSLÓÐUM
GUÐRÚN ÁSMUNDSDÓTTIR
■ Hefur staðið fyrir feikivinsælum ferð-
um á slóðir Einars Benediktssonar und-
anfarin sumur. Í ár fara þrír leikarar með
henni í förina og allt verður lagt í púkkið
til að endurlífga stemninguna sem ríkti
á tímum skáldsins.
GUÐRÚN ÁSMUNDSDÓTTIR
Heimsækir meðal annars Herdís-
arvík í geysivinsælum ferðum á
slóðir Einars Benediktssonar.
VILBORG HALLDÓRSDÓTTIR
Var ekki sátt þegar hún komst að því að
forláta hengirúmi hafði verið rænt
úr garðinum hennar. FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Magadansdísirnar eru í sveiflu
úti um allan bæ í sumar. Hópurinn
saman stendur af fjórum ungum
dísum og þær mynda einn af
hinum skapandi sumarhópum
Hins Hússins. Í sumar munu þær
semja og æfa dansa til að sýna al-
menningi víðs vegar um borgina
og er tilgangurinn bæði að fræða
og skemmta með þessu fallega
listformi. Stelpurnar eru allar
nemendur í Magadanshúsi Josyar
Zareen. Nú hafa Magadans-
dísirnar ákveðið að gera víðreist á
listasöfn í Reykjavík komandi
helgar og verður næsta uppá-
koma í Hafnarhúsinu. Gestir
listasafna geta því átt von á maga-
dansi í bland við myndlist.
Auk þess að troða upp á lista-
söfnum Reykjavíkur heimsækja
Magadansdísirnar félagsheimili
aldraðra, spítala, leikskóla, sund-
laugar og félagsmiðstöðvar. Dís-
irnar halda úti heimasíðu þar sem
áhugasamir geta lesið um það
sem á magadansdaga þeirra hefur
drifið, auk þess sem finna má
upplýsingar um hvað sé á döfinni
hjá stúlkunum og er slóðin
disirnar.blogspot.com. ■
Magadans og myndlist
MAGADANSDÍSIRNAR
Tróðu upp í Hafnarhúsinu um helgina. Þær
halda listasafnaferð sinni áfram
næstu helgar.
MAGADANSDÍSIRNAR
ÆTLA AÐ TROÐA UPP Á MYND-
LISTARSÖFNUM REYKJAVÍKUR-
BORGAR NÆSTU HELGAR.
■ Auk þess eiga borgarbúar von á því að
rekast á þær í miðborginni en þær troða
gjarnan upp öllum að óvörum.
Einar Ben í réttu umhverfi