Fréttablaðið - 02.07.2004, Blaðsíða 18
2. júlí 2004 FÖSTUDAGUR
Hjónaband
samkynhneigðra:
Leyft á Spáni
árið 2005
MADRID, AP Dómsmálaráðherra
Spánar hefur lýst því yfir að
spænska þingið muni hugsanlega
samþykkja hjónaband samkyn-
hneigðra snemma á næsta ári.
Hann hefur skipað svo fyrir að
hjónabandslög skuli endurskoðuð
með það í huga að gera samkyn-
hneigðum kleift að giftast. Ef lög-
in verða að veruleika verður
Spánn þriðja landið í Evrópu sem
leyfir giftingar samkynhneigðra,
en þær eru leyfðar í Belgíu og
Hollandi. Í Bandaríkjunum geta
samkynhneigðir gengið í hjóna-
band í Massachusetts. ■
INNFLYTJENDAMÁL Georg
Lárusson, forstjóri Út-
lendingastofnunar, segir
að straumur hælis-
leitenda til Íslands sé
nokkuð jafn yfir árið, þó
aðeins meiri yfir sumarið.
Að jafnaði leita um tíu
manns á mánuði eftir
hæli á Íslandi. „Önnur
lönd gera topp tíu lista
þar sem hælisleitendum
er raðað eftir þjóðerni,
Ísland er frábrugðið að því
leyti að það koma frekar
fáir hingað en frá mörgum
þjóðríkjum,“ segir Georg.
Þó er mikið um að
Rússar leiti hingað. Frægt
er orðið þegar kínversk
sendinefnd sem stödd var
hér á landi gufaði upp en
Georg segir ekki frekari
vandkvæði hafa komið
upp með kínverska ríkis-
borgara. ■
FORSETAKJÖR Framferði Sjálfstæðis-
flokksins og Morgunblaðsins í ný-
afstöðnum forsetakosningum mun
smækka báða aðila til lengri tíma
litið, að því er Ögmundur Jónasson,
þingmaður Vinstri grænna segir á
heimasíðu sinni. „Þeir létu heiftina í
garð Ólafs Ragnars Grímssonar,
forseta Íslands, stjórna gjörðum
sínum,“ segir hann.
Ögmundur segir að Morgunblað-
ið, sjálfstæðismenn og framsóknar-
menn hafi reynt að gera forseta-
kosningarnar flokkspólitískar og sé
það miður. Með því hafi þeir torvelt
mjög tímabæra umræðu um for-
setaembættið, eðli þess og þeirra
væntinga sem menn hafi um fram-
tíðarþróun embættisins.
Ögmundur segir að forsetinn
hafi boðið upp á málefnalega um-
ræðu um embættið fyrir kosningar.
„Hann sagði að hann vildi gera
embættið meira afgerandi á komandi árum til dæmis á sviði ut-
anríkismála og vildi hann gegna
veigameiru hlutverki í samskiptum
við erlend ríki í framtíðinni en hann
hefði gert til þessa,“ segir Ögmund-
ur. Hann bendir á að samkvæmt
þessu telji Ólafur Ragnar Grímsson
sig hafa fengið umboð til að þróa
embættið í þá átt að það sé meira af-
gerandi í þjóðmálaumræðunni og að
hann hafi vald til afskipta af utan-
ríkismálum.
„Ég tel mjög óheppilegt að gera
forsetaembættið að slíkum valda-
pósti. Ég vildi meira að segja fara í
gagnstæða átt og fyndist koma til
greina að málskotsrétturinn hvíldi
ekki hjá embættinu, heldur hjá
þjóðinni. Til dæmis með því fyrir-
komulagi að með tilteknum fjölda
undirskrifta mætti knýja fram
þjóðaratkvæðagreiðslu. Þetta þýddi
að það kostaði átak og brennandi
áhuga hjá stórum fjölmennum hluta
þjóðarinnar að knýja slíkt fram,“
segir Ögmundur.
„Í því tilviki sem við stöndum nú
frammi fyrir hefði þessi formúla
tryggt þjóðaratkvæðagreiðslu. Það
á hins vegar að heyra sögunni til að
treysta á dómgreind og afstöðu eins
manns hvað þetta snertir, hversu
ágætur sem hann annars kann að
vera. Ég tel að forsetaembættið geti
áfram haft hlutverk í samfélaginu.
Ég er heldur ekki að mælast til þess
að forseti Íslands hafi ekki skoðun
og láti hana í ljós. Með hófsemi og
yfirvegun getur hann haft áhrif –
en á allt annan hátt en með þeirri
aðkomu sem nú er boðuð.“
sda@frettabladid.is
ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON Á BESSASTÖÐUM
Ögmundur Jónasson telur að forsetaembættið geti áfram haft hlutverk í samfélaginu:
„Ég er ekki að mælast til þess að forseti Íslands hafi ekki skoðun og láti hana í ljós.
Með hófsemi og yfirvegun getur hann haft áhrif – en á allt annan hátt
en með þeirri aðkomu sem nú er boðuð.“
ÖGMUNDUR JÓNASSON
Segir framferði Sjálfstæðisflokksins og
Morgunblaðsins í nýafstöðnum forseta-
kosningum muni smækka báða aðila
til lengri tíma litið.
Geimferjan Cassini:
Á sporbaug um Satúrnus
KALIFORNÍA, AP Alþjóðlega ómannaða
geimferjan Cassini náði í gær sögu-
legum áfanga í geimrannsóknum
þegar hún komst á braut um reiki-
stjörnuna Satúrnus. Cassini fór á
milli tveggja hringja sem umlykja
Satúrnus í mjög vandasamri aðgerð
en fjarlægðin til jarðar er um 1400
milljónir kílómetra.
Mikill fögnuður braust út í
stjórnstöð bandarísku geimferða-
stofnunarinnar í gærmorgun þeg-
ar ljóst var að takmarkinu um að
koma Cassini á sporbaug um Sat-
úrnus var náð. Vísindamenn hafa
unnið að því undanfarna tvo ára-
tugi að ná þessu takmarki en mjög
litlu mátti skeika að Cassini færi
einfaldlega fram hjá Satúrnusi án
þess að komast á sporbaut. ■
Í NÁMUNDA VIÐ SATÚRNUS
Þessi mynd var tekin 7. maí úr Cassini og sýnir Satúrnus í allri sinni dýrð.
Cassini er nú komin á sporbaug um reikistjörnuna.
Forstjóri Útlendingastofnunar:
Jafn straumur
hælisleitenda
GEORG LÁRUSSON
Segir ekki marga leita
hælis á Íslandi.
Hófsemi og
yfirvegunar þörf
Ögmundur Jónasson segir framferði Morgunblaðsins og Sjálfstæðis-
flokksins í forsetakosningum smækka báða aðila. Hann segir að
forsetaembættið eigi ekki að vera jafn valdamikið og forsetinn vilji.