Fréttablaðið - 12.07.2004, Blaðsíða 1
● hitar upp fyrir 50 cent
Gino Sydal:
▲
SÍÐA 30
„Ég er aðeins
betri en hinir“
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 550 5000
MÁNUDAGUR
UMHVERFI OG NÁTTÚRA Sumar-
sýning Listasafns Íslands Umhverfi og
náttúra stendur nú yfir. Á sýningunni er
verk sem sem vísa til náttúru landsins og
umhverfis í víðum skilningi allt frá alda-
mótunum 1900 og fram á 21. öldina.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
BJART MEÐ KÖFLUM á landinu.
Lítilsháttar skúrir einkum vestan til. Hiti
10–18 stig hlýjast austan- og suðaustan
til. Sjá síðu 6.
12. júlí 2004 – 188. tölublað – 4. árgangur
MIKIÐ BLÓÐ Í ÍBÚÐ BENDIR TIL
ÁTAKA Mikið blóð var í íbúð mannsins sem
nú situr í gæsluvarðhaldi grunaður um að
eiga þátt í hvarfi á fyrrum sambýliskonu sinni
og barnsmóður. Sjá síðu 2
FARSÆLT LANDSMÓT Afar farsælu
landsmóti ungmennafélaganna var slitið í
blíðskaparveðri á Sauðárkróki í gær. Fimmtán
þúsund gestir sóttu mótið en að sögn lög-
reglu var það friðsælla en ball í Miðgarði. Sjá
síðu 8
RÓTTÆKAR BREYTINGAR Á VEGA-
MÁLUM Breska samgönguráðuneytið skoð-
ar nú af alvöru hugmyndir þess efnis að rukka
ökumenn um 12 krónur fyrir hvern ekinn
kílómetra á vegum landsins. Sjá síðu 10
ÍBÚÐASPRENGING Á SELFOSSI
Gífurleg aukning hefur verið í nýbyggingum
íbúðarhúsnæðis á Selfossi. Landrými er af
skornum skammti og brátt þarf að huga að
nýjum lausnum. Sjá síðu 12
36%50%
Kvikmyndir 30
Tónlist 30
Leikhús 30
Myndlist 30
Íþróttir 22
Sjónvarp 28
Valdimar Gunnar Sigurðsson
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Ljósir litir
endast betur
● hús ● fasteignir
Mannakorn:
▲
SÍÐA 20
Breiðskífa með
nýjum lögum
● sú fyrsta í 10 ár
Landsmót UMFÍ 2004:
▲
SÍÐA 24
UMSK vann stiga-
keppni félaganna
● framkvæmdin tókst frábærlega
SERBÍA, AP Yfir tíu þúsund íbúar
Bosníu komu saman í gær þegar
lík 338 fórnarlamba ógnar-
atburðanna sem urðu í Srebren-
ica 1995 voru loks lögð til hinstu
hvílu. Líkin fundust nýlega í
fjöldagröfum sem enn þann dag
í dag finnast í landinu en áætlað
er að alls átta þúsund múslimar,
bæði karlar og drengir, hafi
verið teknir af lífi af hermönn-
um Serba.
Var um að ræða verstu
fjöldamorð í Evrópu síðan í seinni
heimsstyrjöldinni en daglega
finnast nýjar grafir og er þess enn
langt að bíða að tekist hafi að bera
kennsl á alla þá sem í þeim eru.
Þau 338 lík sem greftruð voru í
gær eru meðal þeirra fyrstu sem
borin hafa verið kennsl á hingað
til og voru fórnarlömbin á aldrin-
um 15 til 77 ára.
Atburðirnir sem kenndir eru
við Srebrenica standa lifendum
ljóslifandi fyrir augum. Í júlí
1995 marséruðu hersveitir
Bosníu-Serba fram hjá varð-
sveitum Sameinuðu þjóðanna og
höfðu á brott með sér alla þá
karlmenn og drengi sem í náðist.
Margir þeirra sem þátt tóku í
voðaverkunum eru frjálsir
menn og hafa fáir verið dregnir
til ábyrgðar vegna hroða-
verkanna fyrir níu árum. ■
FRAMSÓKN Framámenn í Fram-
sóknarflokknum gagnrýna for-
ystu flokksins mjög harkalega í
kjölfar skoðanakönnunar Frétta-
blaðsins sem sýnir að Framsókn-
arflokkurinn hefur misst 60 pró-
sent af kjörfylgi sínu og er nú
minnstur flokkanna. Alfreð Þor-
steinsson, oddviti framsóknar-
manna í borgarstjórn Reykjavík-
ur, segir að eina leiðin fyrir flokk-
inn til að ná fylgi sínu til baka sé
sú að fjölmiðlamálið verði sett í
nýjan farveg.
„Mér finnst það hörmulegt að
ríkisstjórnin sem hefur staðið sig
að mörgu leyti vel á undanförnum
misserum skuli lenda í þessu kvik-
syndi sem hún virðist greinilega
vera komin í og eiga erfitt með að
komast uppúr,“ sagði Alfreð í sam-
tali við Fréttablaðið. „Ég held að
eina leiðin til þess að ná þessu fylgi
til baka sé sú að flokkurinn beiti
sér fyrir því í ríkisstjórn að fjöl-
miðlalögin verði ekki aðeins felld
úr gildi heldur verði málið sett í
nýjan farveg. Það verði samþykkt
þingsályktunartillaga í þinginu um
að setja ný fjölmiðlalög á breiðum
grundvelli.“
Kristinn H. Gunnarsson, þing-
maður Framsóknarflokksins, tek-
ur í sama streng og Alfreð. Ungir
framsóknarmenn hafa samþykkt
nýja ályktun þar sem skorað er á
stjórnvöld að bíða með lögfest-
ingu nýrra fjölmiðlalaga. Formað-
ur Sambands ungra framsóknar-
manna segir augljóst að málið sé
dragbítur á gengi Framsóknar-
flokksins.
Ráðherrar Framsóknar-
flokksins sem Fréttablaðið
ræddi við hvika þó hvergi í af-
stöðu sinni. Aðspurður um ofan-
greind sjónarmið samflokks-
manna sinna, svaraði Guðni
Ágústsson, varaformaður
flokksins og landbúnaðarráð-
herra: „Ég hef ekkert að segja
um þeirra skoðanir á þessu stigi.
Við höfum beygt af leið og
bakkað.“
„Framsókn er að gjalda fyrir
það að gerast vikapiltar sjálfstæð-
ismanna í því að taka af fólki lög-
verndaðan rétt til þess að fá að
kjósa um fjölmiðlalögin í þjóðar-
atkvæðagreiðslu,“ segir Össur
Skarphéðinsson, formaður Sam-
fylkingarinnar. Steingrímur J.
Sigfússon, formaður Vinstri
grænna, tekur í sama streng:
„Framsóknarflokkurinn er búinn
að koma sér í herfilega stöðu og
það er fátt sem bendir til þess að
hann sé í leiðinni út úr henni. Því
enn sem komið er ber ekki neitt á
öðru en að þeir ætli að lötra á eftir
Sjálstæðisflokknum þessa
feigðargötu.“ Sjá síðu 4
Vilja þingsályktunartillögu
í stað nýrra fjölmiðlalaga
Framámenn í Framsóknarflokknum vilja að flokkurinn falli frá fjölmiðlafrumvarpinu og gefi
málinu lengri tíma. Hörmulegt að lenda í þessu kviksyndi, segir oddviti flokksins í borgarstjórn.
Ráðherrar flokksins hvika hvergi í stuðningi við nýtt fjölmiðlafrumvarp.
Skoðanakönnun:
68 prósent
vilja að Davíð
hætti alveg
SKOÐANAKÖNNUN Rúmlega 68 prósent
þeirra sem afstöðu taka í nýrri könnun
Fréttablaðsins telja að Davíð Oddsson,
forsætisráðherra og formaður Sjálf-
stæðisflokksins, eigi að hætta afskipt-
um af stjórnmálum þegar hann lætur
af embætti forsætisráðherra 15. sept-
ember en 32 prósent telja að hann eigi
að halda áfram í stjórnmálum.
Rúmlega 70 prósent stuðnings-
manna Sjálfstæðisflokksins í könnun-
inni telur að Davíð ekki að ekki hætta
í stjórnmálum 15. september en
tæplega 30 prósent stuðningsmanna
flokksins telja að hann eigi að hætta
alfarið á því tímamarki.
Prófessor í stjórnmálafræði segir
það umhugsunarvert hversu margir af
stuðningsmönnum flokksins vilji að
formaður þeirra hætti afskiptum af
stjórnmálum. Sjá síðu 6
TIL HINSTU HVÍLU Fleiri þúsund lík bíða þess að borin séu kennsl á þau áður en greftrun getur átt sér stað.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
Lítill hluti fórnarlambanna frá Srebrenica lagður til hinstu hvílu:
Fórnarlömb fjöldamorðs syrgð