Fréttablaðið - 16.07.2004, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI sími 550 5000
FÖSTUDAGUR
LISTSÝNING Sýning á verkum 40
japanskra listamanna verður opnuð í
Hafnarborg í Hafnarfirði í dag klukkan 17.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
BJART OG FALLEGT VEÐUR syðra í
dag. Hæglætisveður á landinu í dag með
bjartviðri syðra en dálítilli vætu norðan-
og austanlands. Sjá síðu 6.
16. júlí 2004 – 192. tölublað – 4. árgangur
● matur ● tilboð
Tengdadóttir Íslands
Dominique Plédel Jónsson:
nr. 28 2004
etzÇ{|ÄwâÜ
dagskráin 16. júlí - 23. júlí
{ golfari }
Las Njálu
fjögurra ára
birta
Ragnhildur Sigurðardóttir:
▲Fylgir Fréttablaðinu dag
EKKERT FRAMLAG OF SMÁTT Nelson
Mandela sendir ákall til ríkja heims, fyrirtækja
og einstaklinga um framlög í baráttuna gegn al-
næmi. Stefna Bandaríkjamanna harðlega gagn-
rýnd á ráðstefnu um alnæmi. Sjá síðu 2
BRÝNT AÐ DRAGA ÚR SYKUR-
NEYSLU Ráðherra segir að kanna verði allar
leiðir til að draga úr sykurneyslu, þar á meðal
forvarnarskatt. Samtök iðnaðarins segja slíkar
hugmyndir „með öllu óþolandi“ en Lýðheilsu-
stöð telur gagnrýni þeirra á misskilningi
byggða. Sjá síðu 6
FRJÁLSRÆÐI GOTT Ný skýrsla sýnir að Ís-
land stendur sig ágætlega hvað varðar frjáls-
ræði í efnahagsmálum. Fjárfesting, landsfram-
leiðsla og tekjur á mann haldast í hendur við
stöðu þjóða þar sem velsæld er mest hjá þeim
sem búa við mest frjálsræði. Sjá síðu 10
HALLAREKSTUR Fimmtíu stofnanir fóru
svo langt fram úr fjárlögum á síðasta ári að
reglur kröfðust aðgerða. Fjármálaráðherra
segir fjárhagsvanda oft reynast stjórnunar-
vanda. Sjá síðu 16
baksviðs á hárinu ● bestu brettasvæðin
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Kvikmyndir 30
Tónlist 32
Leikhús 32
Myndlist 32
Íþróttir 24
Sjónvarp 36
STJÓRNMÁL Stjórnarflokkarnir eru
sammála um að láta helgina líða
áður en frekari lausnar á ágrein-
ingi þeirra í fjölmiðlamálinu verð-
ur leitað. Samkomulag um annað
liggur ekki fyrir
Framsóknarmenn sem Frétta-
blaðið ræddi við telja málið komið
í ógöngur og vilja draga núverandi
frumvarp til baka. Ekki er stemn-
ing fyrir því í forystu Sjálfstæðis-
flokksins. Þar líta menn svo á að
með því hefðu menn tekið á sig
pólitísk óþægindi vegna málsins án
þess að ljúka því.
Framsóknarmenn telja mikið í
húfi og eru sannfærðir um að
forsetinn muni ekki skrifa undir
nýja frumvarpið. Þeir eru ekki til-
búnir í þann slag. Innan þing-
mannahóps Sjálfstæðisflokksins
telja menn talsverðar líkur á að
forsetinn skrifi ekki undir, en eru
tilbúnir í slaginn.
Davíð Oddsson og Halldór Ás-
grímsson hittust í gær og ræddu
málin. Niðurstaða þess fundar er
að láta helgina líða. Allsherjar-
nefnd mun koma saman eftir helgi
og eftir það munu línur skýrast
frekar. Davíð útilokaði ekki að
frumvarpið yrði dregið til baka.
„Það hefur engin þess háttar
ákvörðun verið tekin. Nefndin er
með málið og kemur saman á nýj-
an leik hygg ég eftir helgi.“ Að því
loknu færi málið til þingsins.
Fyrir fund Davíðs og Halldórs
áttu þeir fundi með sínu fólki. Dav-
íð snæddi hádegisverð í þinginu
með þingmönnum flokksins í alls-
herjarnefnd. Halldór átti fund með
forystufólki Framsóknarflokksins
í utanríkisráðuneytinu.
Hvorki Davíð né Halldór vildu
tjá sig um viðræður sínar eftir
fundinn, en lýstu ánægju með
hann. Þeir telja stjórnarsamstarfið
ekki í hættu.
Innan þingmannahóps Fram-
sóknarflokksins telja menn
afstöðu samstarfsflokksins ein-
kennast af einstrengingshætti.
Þeir telja alltof mikinn tíma fara í
málið og það sé farið að bitna á öðr-
um mikilvægum málum sem
stjórnin eigi að fara að snúa sér að.
Núverandi frumvarp með annarri
synjun forseta héldi því áfram í
þeim ógöngum og það er í nú.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins eru sjálfstæðismenn full-
meðvitaðir um að framsóknar-
menn vilji bakka í málinu. Boltinn
er í herbúðum Davíðs og helgin
verður notuð til að leita niðurstöðu.
haflidi@frettabladid.is
sjá bls. 4
Davíð hefur helgina
til að finna lausn
Halldór Ásgrímsson gerði Davíð Oddssyni grein fyrir sjónarmiðum flokksmanna í
fjölmiðlamálinu. Framsóknarmenn vilja að núverandi frumvarp verði dregið til baka.
Reynt verður að ná sátt um málið áður en allsherjarnefnd kemur saman eftir helgi.
GENGIÐ TIL FUNDAR Meira mæðir á Davíð Oddssyni forsætisráðherra nú um stundir en venja er á þessum árstíma. Skin og skúrir
skiptast á í stjórnmálum. Davíð fundaði í gær með Halldóri Ásgrímssyni um framhald fjölmiðlafrumvarpsins. Veðurspá helgarinnar lofar
blíðu og verður hún nýtt til að leita lausnar.
Sérstakar heimildir
dönsku lögreglunnar:
Skapar frið
á götum
DANMÖRK Dönsk lögregluyfir-
völd hafa heimild til að banna
þekktum ofbeldismönnum að-
gang að þekktum veitingahús-
og næturklúbbahverfum í land-
inu. Er þannig yfir 500 einstak-
lingum bannað að láta sjá sig í
tilteknum hverfum í Kaup-
mannahöfn einni saman og gild-
ir slíkt bann í tvö ár. Eru hörð
viðurlög við brotum á banni
þessu og eru löggæslumenn
hvarvetna sammála um að
þetta gefi góða raun og skapi
meiri frið á götum borganna. ■
Afdrifaríkt símtal:
Dýr myndi
Hafliði allur
ÞÝSKALAND Þýskur karlmaður
hefur kært unga konu sem
starfar hjá erótískri síma-
þjónustu til lögreglu eftir að
honum barst um hálfrar millj-
ónar króna símreikningur
vegna samtals við konuna sem
stóð yfir næturlangt.
Að sögn mannsins hringdi
konan í hann og sagðist hún
hafa fundið símanúmerið hans
á netinu. Hún sagðist vilja
spjalla við manninn og bað
hann um að hringja í sig til
baka. Vel fór á með þeim í sam-
talinu og var því ekki slitið fyrr
en eftir sex klukktíma. Að sögn
mannsins ræddu þau um heima
og geima.
Málið er rannsakað sem
svikamál. ■
RÚSSLAND Rússneski auðkýfing-
urinn, Mikhail Khodorkovsky,
lýsti yfir sakleysi í öllum
ákæruatriðum í dómsal í
Moskvu í gær.
Réttað er yfir honum vegna
ákæru um skattsvik. Aðrir yfir-
menn olíufyrirtækisins Yukos,
sem er að meirihluta í eigu
Khodorkovskys, sem einnig
voru fyrir rétti, neituðu líka sök.
Eru þetta fyrstu skref ákæru-
valdsins en margir telja að
Khodorkovsky sé fyrir rétti á
fölskum forsendum þar sem hann
hefur alla tíð barist gegn Pútin,
forseta landsins, og sé að gjalda
þess nú.
Hann hefur boðist til þess að
láta af hendi 44 prósenta hlut í
fyrirtækinu sem hann ræður yfir
til stjórnenda félagsins ef það
mætti verða til þess að aflétta
skattaskuld fyrirtækisins.
Handtaka Khodorkovsky hefur
valdið óróa á mörkuðum í Rúss-
landi og lækkað hlutabréf olíu-
félaga þar í landi þrátt fyrir
gósentíð í greininni í kjölfar
hækkunar olíuverðs. Krafa rúss-
neskra stjórnvalda er að Yukos
greiði jafnvirði 240 milljarða
króna í sekt. ■
Réttarhöldin yfir Khodorkovsky:
Lýsti sig saklausan af ákærum
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.