Fréttablaðið - 16.07.2004, Page 13
13FÖSTUDAGUR 16. júlí 2004
BAGDAD, AP Ellefu létust og tugir
særðust í öflugri sprengingu í mið-
borg Bagdad, höfuðborgar Íraks, í
fyrradag. Sjálfsmorðsárásarmaður
kveikti í sprengjunni í bifreið nærri
breska sendiráðinu og höfuðstöðv-
um bráðabirgðastjórnar landsins.
Árásin átti sér stað einungis
nokkrum klukkustundum eftir að
tilkynnt var að filippseysk stjórn-
völd hefðu hafið brottflutning
herafla síns frá Írak í því augna-
miði að koma í veg fyrir að gísl
verði drepinn.
Meðal þeirra sem létust voru
fjórir íraskir gæslumenn og sjö
óbreyttir borgarar. Þetta er mann-
skæðasta árásin í höfuðborginni
síðan Írakar tóku við völdum þann
28. júní.
Iyad Allawi, forsætisráðherra
landsins, var harðorður í garð árás-
armannanna. „Þetta er bein árás á
írösku þjóðina,“ sagði Allawi. „Við
munum koma þessum glæpa-
mönnum til dóms og laga.“ ■
HUNDAKÚNSTIR
Tíkin Kai stekkur hér yfir eiganda sinn Zain
Nail til að grípa flugdisk á hundasýningu í
Stone Mountain Park í Bandaríkjunum.
Skærur í Kashmír:
Stúlku
misþyrmt
INDLAND, AP Skæruliðar í
Kashmír-héraði skáru eyru, nef
og tungu úr táningsstúlku sem
þeir grunuðu um að hafa aðstoð-
að lögregluna. Í indverska hluta
héraðsins hafa níu fallið í valinn
í átökum allra síðustu daga.
Stúlkunni var haldið fanginni í
rúma viku áður en henni var
misþyrmt og skilin eftir á akri.
Margir hafa særst í skærum
vígamanna í Kashmír-héraði
undanfarið, þar á meðal þrjú
skólabörn sem lentu á milli
stríðandi aðila. Indversk stjórn-
völd eru um þessar mundir að
koma upp gaddavírsgirðingu
meðfram landamærunum sem
skilur að indverska og pakist-
anska áhrifasvæðið. ■
Kosovo-hérað:
Friðarlíkur
víðsfjarri
PRISTINA, AP Ekki hefur tekist að
tryggja íbúum Kosovo héraðs lág-
marksmannréttindi og frelsi sam-
kvæmt skýrslu Sameinuðu þjóð-
anna. Þá tefldu átök þjóðarbrota í
mars síðastliðnum stöðugleika
héraðsins í tvísýnu og margir íbú-
anna búa við skert öryggi.
Ástandið er verst fyrir serb-
neska minnihlutann ásamt öðrum
minni þjóðarbrotum samkvæmt
skýrslunni. Skýrsluhöfundar telja
ólíklegt að það takist að skapa
stöðugt fjölmenningarlegt samfé-
lag í Kosovo þar sem ólík þjóðar-
brot lifa í sátt og samlyndi. ■
Ellefu létust í bílasprengjuárás í Bagdad:
Mannskæðasta árásin síð-
an Írakar tóku við völdum
SPRENGT Í BAGDAD
Sjálfsmorðsárás kostaði ellefu lífið í
Bagdad í fyrradag auk þess sem tugir
særðust. Byggingarnar hýstu eitt sinn inn-
rásarliðið í landinu en nú eru þar til húsa
bæði bandaríska og breska sendiráðið.
Ill meðferð á dýrum:
Grís beitt
fyrir
tígrisdýr
FLÓRÍDA, AP Bandarísk kona sem
notaði fimm mánaða gamlan
grís sem beitu fyrir tígrisdýr
sætir nú ákæru samkvæmt
dýraverndunarlögum. Tígris-
dýrið hafði sloppið frá heimili
leikarans Steve Sipek, sem lék
Tarzan á árum áður, og hugðist
Linda Meredith nota grísinn,
sem heitir eftir kvikmynda-
stjörnunni Badda, til að lokka
dýrið aftur heim.
Það tókst ekki og eftir rúm-
lega sólarhrings leit að tígris-
dýrinu var það skotið á færi eft-
ir að hafa ráðist að lögreglu-
manni. ■
DÓMSTÓLAR Maður á fimmtugsaldri
var sakfelldur fyrir líkamsárás á
konu á svipuðum aldri á heimili
hennar sl. sumar og dæmdur í
tveggja mánaða fangelsi fyrir Hér-
aðsdómi Reykjavíkur. Dómurinn er
skilorðsbundinn í tvö ár.
Í ákæru var maðurinn sagður
hafa slegið konuna hnefahöggi í and-
litið, rifið í hár hennar og misþyrmt
með öðrum hætti. Þá kom hann í veg
fyrir að hún gæti hringt á lögreglu
með því að taka af henni síma en
hún flúði til nágranna. Fram kom að
fólkið átti í sambandi og hafði verið
að skemmta sér kvöldið áður með
vini mannsins. Um kvöldið ætlaði
konan heim með vininum en maður-
inn kom í veg fyrir það og segir í
kæru konunnar að í framhaldinu
hafi hann ráðist á hana.
Manninum var gert að greiða
allan sakarkostnað og til að greiða
konunni 70 þúsund krónur í miska-
bætur. Í skýrslu lögreglu kom fram
að bæði maðurinn og konan hafi
verið ölvuð þegar lögreglu bar að
klukkan að ganga tvö aðfaranótt
mánudagsins 23. júní í fyrra. ■
Dæmdur fyrir líkamsárás í Reykjavík:
Réðst á konu á
heimili hennar
HÉRAÐSDÓMUR
Maður hlaut tveggja ára fangelsi fyrir að
ráðast á kou á heimili hennar. Maðurinn
var ákærður fyrir að hafa slegið konuna
hnefahöggi í andlitið, rifið í hár hennar og
misþyrmt með öðrum hætti.