Fréttablaðið - 16.07.2004, Qupperneq 17
17FÖSTUDAGUR 16. júlí 2004
Á FRAMBOÐSFUNDI
George W. Bush hampar risasneið af osti
þegar hann var kynntur á framboðsfundi í
Ashwaubenon í Wisconsin í Bandaríkjunum.
Drengur slasaðist:
Sjúkraflug til
Grænlands
SJÚKRAFLUG Rétt eftir miðnætti í
gær fékk Slökkvilið Akureyrar
beiðni um sjúkraflug til Kúlusúk
á Grænlandi. Sækja þurfti níu
ára gamlan dreng sem hafði
slasast alvarlega.
Sjúkraflutningamaður og
tveir læknar, svæfingalæknir og
deildalæknir, fóru í flugið með
Metró-flugvél Flugfélags Ís-
lands. Lent var á flugvellinum í
Kúlusúk og þaðan flogið með
þyrlu til Ammassalik að sækja
drenginn.
Það sem af er árinu hafa verið
farin 170 sjúkraflug frá Akur-
eyri. ■
Útsendingarsvæði Skjás eins:
Stækkun ekki arðbær
FÓTBOLTI Ýmsir verða af útsend-
ingum frá enska boltanum í vet-
ur þar sem munur er á útsend-
ingarsvæði Skjás eins og Sýnar,
en að sögn Helga Hermannsson-
ar dagskrárstjóra Skjás eins, eru
þau álíka stór.
Magnús Ragnarsson, sjón-
varpsstjóri Skjás eins, gerir ráð
fyrir að útsendingar stöðvarinn-
ar munu ná til Sandgerðis og
Ólafsfjarðar í haust en mörg ljón
séu í veginum til að stækka
svæðið frekar. „Það stendur til
að hefja stafrænar útsendingar á
næsta ári og við þurfum að horfa
á dæmið í ljósi þess. Það er nátt-
úrlega hræðileg fjárfesting sem
er hægt að afskrifa á tólf mánuð-
um.“
Vestfirðir virðast vera það
svæði sem mest bitnar á varð-
andi útsendingarsvæði Skjás
eins en útsendingar stöðvarinnar
nást aðeins á Ísafirði og í Hnífs-
dal. Magnús segir óvíst með
frekari útsendingar á Vestfjörð-
um. „Vestfirðirnir eru langerfið-
asta svæðið á landinu til sjón-
varpsútsendinga bæði út af erf-
iðu landslagi og fáum áhorfend-
um á hvern sendi. Þetta þarf
fyrst og fremst að meta út frá
arðsemissjónarmiðum.“ ■
Bráðnun jökla mikil ógnun
Margir vísindamenn búast við að íshellan yfir Grænlandi fari að bráðna verulega á þessari öld.
Þegar og ef það gerist verður eina leiðin til að skoða London eða Los Angeles úr kafbáti.
UMHVERFISMÁL Nægur koltvísýr-
ingur er í andrúmsloftinu í dag
til að bræða alla jökla heimsins
og sökkva borgum á borð við
New York, London og New Or-
leans á stuttum tíma. Hefur
álíka magn koltvísýrings ekki
fundist í 55 milljón ár hér á
jörðu. Þetta lét David King,
aðalráðgjafi breskra stjórn-
valda í umhverfismálum hafa
eftir sér en hann ferðast nú um
og þrýstir á að
þau ríki sem ekki
hafi nú þegar
skrifað undir
Kyoto bókunina
til verndar um-
hverfinu geri
það.
Vísindamenn
þykjast vissir í
sinni sök þegar
fullyrt er að ís-
hellan yfir Græn-
landi muni byrja að bráðna á
þessari öld. Bráðni hún alveg
mun sjávarmál hækka um sjö
metra og skapa stærra vanda-
mál en mannkynið hefur áður
kynnst. Fjöldi stórborga í heim-
inum mun sökkva í sæ, þar með
taldar stórborgir á borð við
London, Los Angeles, Kaíró og
Sidney. Öll austurströnd Banda-
ríkjanna færi að hluta til undir
vatn og hætt er við að vöðlur
verði nauðsynlegar ætli fólk sér í
miðbæ Reykjavíkur.
Fari spár á versta veg er einn-
ig hætt við að heilu löndin fari
forgörðum. Bangladess er líklegt
til að hverfa af landakortum og
þarf sjávarmál í raun aðeins að
hækka um einn metra til að stór
hluti þess hvíli á hafsbotni. Flóð-
garðar Hollands, sem er að mestu
undir sjávarmáli, eru ekki byggð-
ir með sjö metra hækkun í huga
og Danmörk og Belgía liggja
hvorug hátt yfir sjó.
Þá á eftir að minnast á þær
truflanir sem slík hækkun hefur á
vistkerfi sjávar en rannsóknir
benda til að hækkunin geti haft
miklar og slæmar afleiðingar
fyrir sjávarþjóðir. Sem dæmi
þyrftu Íslendingar að sækja fisk
mun norðar en nú gerist þar sem
einu köldu svæðin sem eftir væru
yrðu við pólana tvo.
Þá eru og ótalin þau áhrif sem
verða á veröldina eins og við
þekkjum hana ef heimskautaísinn
á Suðurskautinu bráðnar einnig.
Þá gera vísindamenn ráð fyrir að
yfirborð sjávar hækki um 110
metra til viðbótar við þá sjö frá
Grænlandsjökli.
albert@frettabladid.is
Frakkar:
Kjósa um
stjórnarskrána
PARÍS, AP Frakkar munu kjósa um
nýja stjórnarskrá Evrópusam-
bandsins að því er Jacques
Chirac, for-
seti lands-
ins, lýsti
yfir í gær.
Chirac sagði
k j ó s e n d a
fremur en
þingsins að
taka ákvörð-
un um
s t j ó r n a r -
skrána.
„Í fram-
t í ð i n n i
verða allar
þjóðir að
s t a ð f e s t a
s t j ó r n a r -
skrána. Hún
hefur bein
áhrif á
Frakka og því verða Frakkar
spurðir beint. Það verður þjóðar-
atkvæðagreiðsla,“ segir Chirac.
Þjóðaratkvæðagreiðslan verð-
ur haldin á síðari helmingi ársins
2005 að sögn Chirac. Ekki er talið
að hann sé að taka mikla áhættu
með ákvörðuninni þar sem skoð-
anakannanir hafa bent til þess að
Frakkar séu fremur hliðhollir
nýju stjórnarskránni. ■
BASTILLUDAGURINN
Bastilludagurinn var hald-
inn hátíðlegur í París í
gær. Af því tilefni lýsti for-
seti landsins yfir að hald-
in yrði þjóðaratkvæða-
greiðsla um nýja stjórnar-
skrá Evrópusambandsins.
MAGNÚS RAGNARSSON
Segir það vonda fjárfestingu að fjölga
sendum sem hugsanlega úreldast fljótlega.
FRAMTÍÐARSÝN?
Flóð eru algeng víða um heim en eru hreinn barnaleikur miðað við það sem bíður ef ekki
tekst að hefta hlýnun jarðar og bráðnun jökla.
,,Hætt er
við að
vöðlur verði
nauðsyn-
legar ætli
fólk sér í
miðbæ
Reykjavíkur.