Fréttablaðið - 16.07.2004, Qupperneq 32
24 16. júlí 2004 FÖSTUDAGUR
Við mælum með...
...að stuðningsmenn íslenskra knattspyrnuliða fari á námskeið hjá
stuðningsmönnum írska liðsins Shelbourne og læri hvermig á að halda
uppi stemningu á knattspyrnuleikjum. Þeir voru mættir 40 talsins á
leikinn gegn KR en áttu samt stúkuna, sungu, dönsuðu og trölluðu allan
leikinn á meðan varla heyrðist hósti né stuna frá KR-ingum.
„Ég er eins og klósettpappír,
bleiur og tannkrem –
drjúgur og skila alltaf mínu.“
Körfuboltamaðurinn Shaq O’Neal um sjálfan sigsport@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
13 14 15 16 17 18 19
Föstudagur
JÚLÍ
Manst’ ekki eftir mér?
Það voru miklar vonir bundnar við brasilíska
miðjumanninn Kleberson þegar hann var
keyptur til Man. Utd í fyrra. Hann spilaði varla
með liðinu en var samt í byrjunarliði brasilíska
landsliðsins gegn Paragvæ í fyrrinótt.
Fjármálin í höndum
fjölskyldunnar
Norðmaðurinn John Arne Riise, Eiður Smári Guðjohnsen og Frakkinn Nicolas Anelka eiga það
allir sameiginlegt að vera eða hafa verið með umboðsmann í fjölskyldunni.
FÓTBOLTI Umboðsmenn knatt-
spyrnumanna og reyndar flestra
annarra hafa löngum haft slæmt
orð á sér. Þeir eru yfirleitt taldir
vera óheiðarlegir menn sem
hugsa um lítið annað en að skara
eld að eigin köku. Hagur um-
bjóðenda þeirra skiptir þá yfir-
leitt minna máli og allt snýst um
að græða sem mestan pening með
sem minnstri fyrirhöfn.
Nú er svo komið að umdeild-
ustu mennirnir í knattspyrnu-
heiminum eru ekki leikmenn á
borð við David Beckham og Ron-
aldo heldur umboðsmenn sem
enginn knattspyrnuáhugamaður
þekkir í sjón. Þessir menn stjórna
stjörnunum og
hafa gífurleg
áhrif á þær. Þrír
leikmenn, franski
sóknarmaðurinn
Nicolas Anelka,
norski varnar-
maðurinn John
Arne Riise hjá
Liverpool og
íslenski landsliðs-
fyrirliðinn Eiður
Smári Guðjohn-
sen hafa þó valið
að halda öllu inn-
an fjölskyldunnar
með mjög mis-
jöfnum árangri
þó.
Eiður og Arnór
Breski um-
b o ð s m a ð u r i n n
Peter Harrison var umboðsmaður
Eiðs Smára Guðjohnsen þegar
hann gekk til liðs við Bolton
sumarið 1998. Harrison sá um
sölu Eiðs Smára frá Bolton til
Chelsea og samdi fyrir hönd hans
við Chelsea. Um leið og Arnór
Guðjohnsen, faðir Eiðs Smára,
náði prófi sem FIFA-umboðsmað-
ur haustið 2002 og fékk leyfi til að
starfa sem slíkur var hann ráðinn
sem umboðsmaður sonar síns og
hans fyrsta verkefni fyrir Eið
Smára er nú að semja við Chelsea
um nýjan fjögurra ára samning
sem færir Eiði Smára samkvæmt
áreiðanlegum heimildum um 55
þúsund pund á viku eða rúmar sjö
milljónir íslenskra króna.
Hlutur umboðsmanna í samn-
ingum leikmanna er yfirleitt um
10% af heildarlaunum leikmanns-
ins og eru greidd aukalega af fé-
laginu þannig að þessi samningur
færir Arnóri dágóða búbót eins og
menn geta reiknað út. Arnór vildi
ekki tjá sig um málið þegar leitað
var eftir því en áreiðanlegar
heimildir Fréttablaðsins herma að
hann hafi allt að einni milljón
punda upp úr þessum samningi.
Það verður þó ekki tekið af Arnóri
að hann hefur náð góðum samn-
ingi fyrir strákinn þrátt fyrir að
vera nánast reynslulaus í samn-
ingagerð af þessari stærðargráðu.
Eiður Smári hefur því lagt
grunninn að fjárhagslegu öryggi
allrar sinnar fjölskyldu með frá-
bærri frammistöðu á vellinum í
stað þess að láta einhvern mis-
vitran umboðsmann hirða pening-
inn fyrir samningsgerðina. Þess
ber þó að geta að Arnór er hluti af
stórri umboðsskrifstofu og þarf
væntanlega að greiða einhvern
hluta umboðslaunanna til skrif-
stofunnar.
Anelka-bræðurnir
Nicolas Anelka var aðeins
sautján ára þegar hann var keypt-
ur frá Paris St Germain til Ars-
enal árið 1997. Hann hafði ekki
verið þar nema tvö ár þegar um-
boðsmaður hans, bróðir hans
Claude Anelka, fór á stúfana og
reyndi að koma honum burtu frá
félaginu þrátt fyrir að hann ætti
enn þrjú ár eftir af samningi
sínum.
Claude var sniðugur karl og
bjó þannig um hnútana að tvö af
stærstu liðum Evrópu, Lazio og
Real Madrid, börðust um að kaupa
hann. Á endanum féllu samninga-
viðræðurnar við Lazio niður
vegna launakrafna Anelka og nið-
urstaðan var að hann færi til Real
Madrid fyrir 23,5 milljónir punda
og skrifaði undir sjö ára samning
við félagið.
Það tók Anelka aðeins eitt ár að
gera allt vitlaust í Madrid með
hegðun sinni og kröfum um launa-
hækkun og var það mál manna að
góði bróðurinn Claude væri á bak
við það. Á endanum var hann seld-
ur fyrir rúmar 20 milljónir punda
til Paris St Germain en þaðan lá
leiðin í lán til Liverpool og síðan
var hann seldur til Manchester
City þar sem Gerard Houllier, þá-
verandi knattspyrnustjóri Liver-
pool, treysti sér ekki til að kaupa
Anelka vegna allra vandræðanna
á honum og bróður hans.
Anelka hefur hins vegar ekki
verið með nein læti síðan hann
kom til Manchester City og spurn-
ing hvort Claude hafi róast eða
Anelka einfaldlega fundið sér
annan umboðsmann.
Riise og mamma
Norðmaðurinn John Arne Riise
fór ungur að árum til franska liðs-
ins Mónakó frá 1. deildarliðinu
Aalesund. Konan á bak við þau
félagskipti var móðir Johns Arne,
Berit Riise, sem þykir vera mikil
kjarnakona á alla lund. Hún gegn-
di einnig lykilhlutverki í kaupum
Liverpool á stráknum árið 2001 en
eftir það ákváðu mæðginin að
hætta að vinna saman. „Mér
finnst betra að hafa hana sem
mömmu, ekki sem umboðs-
mömmu. Ástæðan fyrir þessu er
að ég vil skilja að vinnuna og fjöl-
skylduna,“ sagði Riise, en bætti
við að móðir hans hefði reynst
honum afskaplega vel.
Það er misjafn sauður í mörgu
fé. Á meðan sumir umboðsmenn
reyna að selja leikmenn á ári
hverju til að græða á sölunni þá
hugsa aðrir um leikmanninn og
leikmanninn eingöngu. Það getur
verið gott að hafa mömmu eða
pabba við hliðana á sér í samn-
ingaviðræðum en það hefur líka
sínar slæmu hliðar að blanda sam-
an fjölskyldu og vinnu.
HVAÐ EIGA ÞESSIR ÞRÍR KNATTSPYRNUMENN SAMEIGINLEGT? John Arne Riise, Eiður Smári Guðjohnsen og Nicolas Anelka hafa allir verið eða eru með bræður, móður eða
föður í hlutverki umboðsmanns síns og hafa þannig haldið fjármálunum innan fjölskyldunnar með misgóðum árangri.
■ ■ LEIKIR
20.00 KR og Valur mætast á KR-
vellinum í Landsbankadeild
kvenna í fótbolta.
20.00 Fjölnir og HK mætast á
Fjölnisvelli í 1. deild karla í fót-
bolta.
20.00 Þróttur og Völsungur
mætast á Valbjarnarvelli í 1. deild
karla í fótbolta.
■ ■ SJÓNVARP
10.00 British Open 2004 á Sýn.
Bein útsending frá öðrum
keppnisdegi Opna breska
meistaramótsins í golfi.
19.15 Trans World Sport á Sýn.
20.05 Heimsbikarinn í torfæru á
Sýn.
MICHAEL PHELPS
Stefnir hátt á Ólympíuleikunum í Aþenu.
Michael Phelps:
Stefnir á átta
gull í Aþenu
SUND Bandaríski sundkappinn
Michael Phelps ætlar að taka þátt
í átta greinum á Ólympíuleikun-
um í Aþenu í næsta mánuði. Hann
stefnir að því að vinna gull í þeim
öllum og bæta þar með met landa
síns, Mark Spitz, frá Ólympíu-
leikunum í München árið 1972 en
þá vann Spitz sjö gull.
Phelps, sem er nítján ára,
ætlar að taka þátt í fimm einstak-
lingsgreinum og þremur boðsund-
um en hann tilkynnti þetta eftir
úrtökumót bandaríska sundlands-
liðsins á dögunum.
Phelps mætir ástralska heims-
methafanum Ian Thorpe og landa
hans Grant Hackett, fyrrum
heimsmethafa, í 200 metra skrið-
sundi og hann sagðist hlakka mik-
ið til jafnvel þótt svo gæti farið að
hann ynni ekki til verðlauna í
þeirri grein. „Það verður heiður
að keppa við Thorpe í hans bestu
grein og ég hlakka til þess,“ sagði
Phelps. ■
GREINAR PHELPS Í AÞENU
200 metra skriðsund
100 metra flugsund
200 metra flugsund
200 metra fjórsund
400 metra fjórsund
4x100 metra skriðsund
4x200 metra skriðsund
4x100 metra fjórsund
Það getur
verið gott
að hafa
mömmu
eða pabba
við hliðana
á sér í
samninga-
viðræðum
en það hef-
ur líka sínar
slæmu hlið-
ar að
blanda
saman fjöl-
skyldu og
vinnu.